Fréttatíminn - 08.04.2016, Page 16
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, er fyrsta
fórnarlamb Panama-skjalanna. Hann tilkynnti afsögn sína 44 klukku-
tímum eftir að sýningu Kastljóssins lauk.
16 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Ný
r b
íll!
Rio II EX
Nýskráður 9/2005, ekinn 59 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur 4 gírar.
Verð kr. 740.000
307SWBreak
Nýskráður 11/2009, ekinn 92 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur 4 gírar.
Verð kr. 1.390.000
CR-V Execuitve
Nýskráður 2/2013, ekinn 38 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 5.590.000
Corsa-C
Nýskráður 8/2005, ekinn 160 þús.km.,
bensín, 5 gírar.
Verð kr. 599.000
Getz GLS sjálfskiptur
Nýskráður 9/2003, ekinn 157 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur 4 gírar.
Verð kr. 470.000
CR-V Executive
Nýskráður 4/2007, ekinn 184 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.900.000
CR-V Elegance
Nýskráður 10/2012, ekinn 83 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 3.890.000
C240 Station
Nýskráður 12/2003, ekinn 134 þús.km.,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.290.000
KIA
PEUGEOT
HONDA
OPEL
HYUNDAI
HONDA
HONDA
MERCEDES-BENZ
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is
Opnunartími
Mánudaga - föstudaga
milli kl. 10:00 og 18:00
Laugardaga milli
kl. 12:00 og 16:00
BÍLL DAGSINS Tilboð kr.
490.000Mitsubishi Montero Limited
Nýskráður 5/2002, ekinn 218 þús.km., bensín.
Verð kr. 850.000
brást ekki við tillögum um eigna-
könnun. Þegar sú stjórn fór frá tók við
minnihlutastjórn sjálfstæðismanna
og síðan tveggja flokka stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar.
Þegar eignakönnun var loks gerð
var hún máttlaus, bæði vegna þess að
langur tími var um liðinn og allir sem
vildu höfðu komið fé sínu í öruggt
skjól og framkvæmd könnunarinn-
ar var deig og bitlaus. Það var helst
Þjóðviljinn sem hélt uppi gagnrýni á
undanskot heildsalanna.
Kerfisbundin undanskot
Falsaðar faktúrur voru áfram hálf
viðurkenndur viðskiptamáti á Ís-
landi. Heildsalar réttlættu meðal
annars þetta fyrirkomulag með því
að vegna verðlagsákvæða væri þeim
skömmtuð of lág álagning til að lifa
af. Óðaverðbólgu og léleg króna ýtti
líka undir þetta fyrirkomulag auk
skattávinnings. Þegar ríkisstjórn
Ólafs Jóhannessonar tók við 1978,
þar sem Svavar Gestsson, fyrrum
Þjóðviljaritstjóri, var viðskiptaráð-
herra, komu þessi mál fyrir í mál-
efnasamningi:
„Óánægja með verðlagningu inn-
flutnings varð til þess að ríkisstjórn-
in samþykkti í samstarfsyfirlýsingu
sinni 1978 að fram færi rækileg rann-
sókn á verðlagsmálum innflutnings-
verslunarinnar,“ segir Guðmundur.
„Árið eftir var birt skýrsla verðlags-
stjóra um innflutningsverslunina
sem leiddi í ljós að erlend umboðs-
laun árið 1977 hefðu numið 4–5% af
innflutningsverðmæti á því ári og var
hlutfallið enn hærra árið eftir. Gróf-
lega áætlað var talið að um þriðjung-
ur gjaldeyris vegna umboðslauna
skilaði sér ekki til banka hér á landi.
Í skýrslu verðlagsstjóra kemur einnig
fram að innkaupsverð á vörum var
allt að 21–27% hærra á Íslandi en ann-
ars staðar á Norðurlöndum. Umboðs-
launin voru talin helsta skýringin á
háu innkaupsverði en einnig voru
nefndir fjórir aðrir þættir: milliliðir,
óhagkvæmni, fjármagnskostnaður
og sérstaða landsins. Þessir áhrifa-
þættir voru taldir nema 14–19% af
innkaupsverði.“
Til að flytja þessar upphæðir til
dagsins í dag má segja að verðmæti
undanskotanna sé nálægt 2,5 millj-
örðum króna sé miðað við verðlag
en um 6 milljarðar króna sé miðað
við vöxt hagkerfisins. Til að gera
langa sögu stutta varð ekkert úr að-
gerðum til að stemma stigu við þeim
skatta- og gjaldeyrisundanskotum
sem bent var á í verðlagsskýrslunni.
Ríkisstjórnin sprakk stuttu síðar og
við tók hin veika ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen.
Klæðskerasaumað
Þegar Landsbankinn kynnti fyrst
aflandsþjónustu sína um aldamót-
in hafa sölumenn bankans því ekki
þurft að halda langar ræður til að
útskýra fyrir íslenskum viðskipta-
mönnum tilganginn með þessum
félögum. Þau féllu sem flís við rass
við viðtekna íslenska viðskiptahætti,
hina séríslensku spillingu sem hafði
grasserað áratugum saman í litlu
hagkerfi með ónýtan gjaldmiðil.
Og að er án efa ein af ástæðum
þess að Íslendingar virðast vera
heimsmeistarar í aflandsfélögum
samkvæmt Panama-skjölunum. Til
viðbótar við leyndina og skattaund-
anskotin eða skattasniðgönguna sem
fólk af öðrum þjóðum sóttist eftir
sáu Íslendingar þarna tækifæri til að
halda utan flótta sinn frá krónunni
auk þess sem þetta kerfi féll fullkom-
lega að almennt viðurkenndum við-
skiptaháttum á mörkum hins löglega.
Mörkin voru óljós vegna þess að þótt
þessir viðskiptahættir hefðu alla tíð
vera ólöglegir vernduðu stjórnvöld
þá með vanrækslu. Þau litu einfald-
lega framhjá þeim.
Að hluta til hafa ráðamenn lit-
ið svo á að það væri ekki hægt að
skamma fólk lengi fyrir að flýja krón-
una og að mörgu leyti fráleit lög til
að láta íslenskt hagkerfi ganga þrátt
fyrir ónýta krónu, óhagkvæmni
smæðarinnar, takmarkað aðgengi
að lánsfé og öðrum einkennum van-
þroska hagkerfis. Kerfið var í eðli
sínu óréttlátt og vitlaust. Og þegar
slíkt gerist eru undanskotin mörg og
veigamikil.
En ástæðan liggur líka í því að
tengsl viðskipta og stjórnmála á Ís-
landi var vanhelgara en víðast ann-
ars staðar í Evrópu. Segja má að al-
menningur hafi aldrei náð völdum í
ríkiskerfinu. Það hafi fyrst og fremst
þjónað hinum ríku og voldugu.
Þetta sést í deigum viðbrögðum
stjórnvalda við tillögum hagfræð-
inganefndarinnar, verðlagsskýrsl-
unnar og skattsvikanefndarinnar.
Og deigum viðbrögðum ráðherranna
og stjórnarflokkanna við uppljóstr-
unum Panama-skjalanna.
600 milljarðar króna utanlands
Miðað við alþjóðlegt mat á umfangi
aflandsfélaga má ætla að Íslendingar
eigi allt að 600 milljörðum króna í
skattaskjólum. Hluti þessa fjár hefur
verið særður fram á síðustu árum
með upptöku CFC-reglnanna. Dæmi
um það eru sjóðir forsætisráðherra-
hjónanna. Panama-skjölin varpa
ljósi á hluta af þessum sjóðum en
stórar upphæðir liggja utan þeirra
félaga sem þar koma fram.
Í ljósi þess hversu hlutfallslega
miklum mun fleiri félög í skjölun-
um tengjast Íslandi en öðrum lönd-
um Vestur-Evrópu má ætla að þetta
alþjóðlega mat á hlutdeild þjóðar-
eigna í skattaskjólum sé varlegt
gagnvart Íslandi. Margt bendir til
að eignir Íslendinga séu hærri en
nemur þessu mati, jafnvel miklum
mun hærri.