Fréttatíminn - 08.04.2016, Side 18
Forsætisráðherrann, millj-
ónamæringurinn og fyrr-
verandi sjónvarpsmaðurinn
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson komst í heimsfrétt-
irnar í vikunni þegar hann
hrökklaðist úr embætti eftir
að hafa orðið að athlægi í
sjónvarpi þegar hann var
spurður út aflandsfélag eigin-
konunnar á Tortóla. Þar lauk
litríkum forsætisráðherra-
ferli Sigmundar Davíðs sem
þjóðin leiddi á skömmum
tíma til æðstu metorða í
íslenskum stjórnmálum.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Guðirnir slá menn blindu,“ segir
Jón Sigurðsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins um
brotthvarf Sigmundar Davíðs úr
stjórnmálunum. „Mér verður bara
hugsað til Forn-Grikkja. Þetta er
harmleikur og manni hættir til
að hrífast til samúðar með hinni
óhamingjusömu hetju þótt maður
hafi ekki verið sammála henni.
Sigmundur Davíð kom fram á
Íslandi eins og frelsarinn sjálfur,
maðurinn sem ætlaði að bjarga
litla Íslandi undan vondu kröfuhöf-
unum, ástmögur þjóðarinnar, ungi
hugsjónamaðurinn sem bjargaði
okkur úr klóm Icesave.
Hann gekk í Framsóknarflokk-
inn mánuði áður en hann var
kjörinn formaður á sögulegum
fundi í Valsheimilinu 18. janúar
2009, þá hafði hann ekki skipt sér
af stjórnmálum. „Hann kom inn í
stjórnmálin sem ungur, glæsilegur
maður með mikinn áhuga,” segir
Jón Sigurðsson. „Ekki spillti fyrir
að hann var þjóðkunnur úr sjón-
varpi og tókst að hrífa flokksþingið
með sér enda bjartur yfirlitum og
ferskur. Almennir flokksmenn vildu
gjarnan losna við þá sem höfðu
stjórnað í aðdraganda hrunsins og
báru ábyrgð á ósigri og vandræðum
flokksins. Það réði mestu um að
hann hlaut svona skjótan frama.
Þess þá heldur eru þetta hræðileg
vonbrigði fyrir hinn almenna fram-
sóknarmann. Ég kaus ekki Fram-
sóknarflokkinn núna síðast enda
var ég ekki sáttur við þá stefnu sem
hann hefur tekið. En ég finn rosa-
lega til með þeim.“
Vegna mistaka við talningu á
flokksþinginu var því lýst yfir að
Höskuldur Þórhallsson væri orðinn
formaður en þegar hann ætlaði
að fara að ávarpa flokksþingið og
þakka stuðninginn, var hnippt
í hann og réttkjörinn formaður,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
leiddur að ræðupúltinu.
Eftir sat Höskuldur Þórhallsson
með sárt ennið og mátti sætta sig
við að lúta í lægra haldi fyrir manni
sem var tiltölulega nýgenginn í
flokkinn.
Verndari alþýðunnar
Sigmundur var kjörinn á Alþingi
fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður
í maí 2009, sama ár og hann varð
formaður flokksins. Hann vakti
athygli sem þingmaður fyrir vask-
lega framgöngu í baráttu sinni gegn
Icesave-samningunum og í skulda-
málum heimila. Hann lofaði nýrri
stjórnarskrá og þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild að ESB. Hann
kom fram sem verndari alþýðunnar
gegn spilltri auðstétt, sem kom
spánskt fyrir sjónir, vegna þess
hver hann var og hvaðan hann
kom.
Til að snúa hnífnum í sári Hösk-
uldar, gamla keppinautarins, flutti
formaðurinn sig úr Reykjavíkur-
kjördæmi norður í Norðausturkjör-
dæmi, þar sem Höskuldur var odd-
viti. Skoðanakannanir voru ekki
hagstæðar og ekki útlit fyrir að for-
maðurinn kæmist á þing í Reykjavík
Bless, Sigmundur
norður. Hann skráði lögheimili sitt
að eyðibýlinu Hrafnabjörgum 3.
Niðurstaðan í Icesave, hjá EFTA
dómstólnum, færði honum risa-
stóra inneign sem stjórnmálamanni
og þjóðarbúinu var hætt að blæða,
landið var að rísa. Jón tekur undir
að EFTA-dómurinn hafi lyft mikið
undir Sigmund Davíð sem stjórn-
málamann, en niðurstaða hans
hafi þó að mörgu leyti verið óvænt.
“Hann hefur sjálfur sagt að hann
hafi aldrei ætlað sér í stjórnmál en
það er svolítið erfitt að trúa því,
hann virtist hafa stúderað sjón-
varpsframkomu stjórnmálamanna
mjög rækilega. Hann reyndist
skarpur og brattur bardagamaður
en hann skorti tilfinnanlega reynslu
og yfirsýn.”
„Hann barðist vel í Icesave-mál-
inu. Hann má þó eiga það alveg
skuldlaust,” segðu Ólafur Elíasson í
samtökunum Indefence.
Jón segir að sér hafi fundist Sig-
mundur ganga allt of langt í sínum
málflutningi, til dæmis ávítum og
skömmum gegn Icesave og ESB og í
loforðum um peninga til skuldara.
„Mín afstaða í þessum málum er
nær því að vera gamalgróin fram-
sóknarmennska. Hann tók ein-
faldlega allt og stórt upp í sig. Og
sumt gat hann alls ekki staðið
við. Skuldalækkunin var aðeins
fjórðungur af því sem hann hafði
lofað og mér liggur við að segja sem
betur fer.“
Silfurskeiðadrengirnir ná saman
Stjórnarmyndun núverandi ríkis-
stjórnar bar keim af því að báðir
formenn stjórnarflokkanna voru til-
tölulega ungir, ríkir og myndarlegir.
Silfurskeiðadrengir voru þeir kall-
aðir sem héldu hönd í hönd inn í
stjórnarráðið, annar var erfðaprins
Engeyjarættarinnar og hinn ríkur
og vel tengdur inn í auðmannaklíku
Framsóknarflokksins. Hafi nýir
Jón Sigurðsson segist vona að Sigmundur Davíð eigi framtíðina fyrir sér. Hún verði þó varla í stjórn-
málum, þá verði hann að stíga niður til okkar hinna og fá sjónina aftur.
Mynd | Hari
Mynd | Hari
Mynd | Hari
Fyrrverandi formanni Framsóknarflokksins verður hugsað
til grískra harmleikja þegar Sigmund Davíð ber á góma.
Sigmundur gerði mikið til að vera maður fólksins. Stilla sér
upp í liði með alþýðunni gegn elítunni. En fólkið snerist
að lokum gegn honum og fjölmennustu mótmæli Íslands-
sögunnar voru haldin til að fá hann til að segja af sér.
18 | fréttatíminn | Helgin 8. apríl–10. apríl 2016