Fréttatíminn - 08.04.2016, Síða 22
unni, að ríkisstjórnarsamstarfið
héngi ekki á bláþræði vegna um-
ræðunnar núna. Skömmu síðar
skundaði hann inn um dyrnar á
Bessastöðum til að biðja forsetann
að undirrita heimild til að rjúfa þing
og boða til kosninga. Henni ætlaði
hann að veifa framan í Sjálfstæðis-
flokkinn. Forsetinn neitaði og ræddi
við fréttamenn í beinni á Bessa-
stöðum um efni fundarins, meðan
Sigmundur ók sneyptur í burtu.
Um miðjan sama dag ákvað Sig-
mundur, í samráði við þingflokk
sinn, að gera Sigurð Inga Jóhanns-
son sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra að forsætisráðherra og
framsóknarmenn virtust ekki sjá
neina meinbugi á því að ríkisstjórn-
in sæti til loka kjörtímabilsins, eftir
að Sigmundi hafi verið varpað fyrir
borð.
Forsætisráðherra mætti þó ekki
fréttamönnum eftir þingflokks-
fundinn heldur læddist burt eins og
þjófur að nóttu. Arftakanum, sem
hann hafði sjálfur útnefnt, var falið
að skýra stöðuna.
Stórkostlegt pólitísk flétta
Og allir myrða yndið sitt. Sigmund-
ur Davíð var búinn til og borinn til
valda af fólkinu og drepinn af því
líka. Krossfestur, dáinn og grafinn á
Austurvelli.
Fjölmiðlar heimsins slógu því upp
sem stórfrétt á þriðjudag að fyrsti
þjóðarleiðtoginn hefði sagt af sér í
kjölfar uppljóstrana í Panama-skjöl-
unum. Undir kvöld þann sama dag
kom síðan illa skrifuð fréttatilkynn-
ing úr forsætisráðuneytinu, þar sem
kemur fram, efnislega, að forsætis-
ráðherrann hafi falið varaformanni
flokksins að leysa sig af í forsætis-
ráðuneytinu um ótilgreindan tíma.
Forsætisráðherra þjóðarinnar sé því
ekki búinn að segja af sér.
En upprisan var skammvinn
Þjóðin var agndofa og skoðana-
kannanir voru birtar sem sýndu
að fylgi hrundi af Framsóknar-
flokknum og kallað er eftir nýjum
alþingiskosningum. Erlendir fjöl-
miðlamenn klóruðu sér í kollinum
og sögðust ekki skilja hvað væri
eiginlega um að vera á Íslandi.
Faðir Sigmundar Davíðs, Gunn-
laugur Sigmundsson, lýsti fram-
göngu sonarins í Vísi sem flottri
pólitískri fléttu.
„Þetta var rosa skemmtilegur
dagur og flott flétta,“ segir Gunn-
laugur um aðgerðir sonar síns að
kvöldi þriðjudags. „Ég heyrði í
honum fyrir kvöldmat og þá var
hann mjög keikur og hress. Ég veit
að hann er bara með sinni konu í
kvöld að tjilla, eins og unga
fólkið segir það. Hann var
mjög hress. Það er búið að
girða niður um Árna Pál
og Óttar Proppé – pjatt-
rófuna þarna með aflitaða
hárið. Helgi Pírati stendur
eins og álfur út úr hól og
veit ekkert hvað er að
gerast.“
Þessi endir á ráðherra-
ferli Sigmundar Davíðs er
auðvitað harmleikur og það
eru tragískir þræðir í hans
persónu, það er alveg
ljóst, segir Ólafur Elíasson
fyrrum félagi Sigmundar Davíðs í
Indefence hópnum. Hann segir að
enginn sé ósnortinn af því sem hafi
komið fyrir. Það sé þó ekki hægt að
horfa fram hjá því að Sigmundur
Davíð hafi verið sinnar gæfu smiður
í málinu.
„Já, orðspor okkar fór til fjand-
ans á alþjóðavettvangi, við urðum
hlægileg enn eina ferðina, en ég
veit ekki á þessari stundu, hversu
mikil áhrif það kemur til með að
hafa,“ segir Eiríkur Bergmann.
„Það er þó allavega erfitt, ef ekki
ómögulegt, að reyna að halda því
fram framvegis, að Ísland sé venju-
legt norrænt lýðræðisríki.“
Hann bendir á að atburðir síð-
ustu daga minni fremur á Rússland.
Forsætisráðherrann hafi hrökklast
frá sitji áfram sem formaður. Það
gæti komið mönnum fyrir sjónir
eins og hann ætli að stjórna eftir-
manni sínum úr aftursætinu, líkt
og Pútín, Medevev.
Sigmundur Davíð vildi ekki
mæta fréttamönnum í gær þegar
tilkynnt var um eftirmann hans
og dramatískir þingflokksfundir
stjórnarflokkana voru að baki. Það
er til marks um upplausnina að
hahnn treysti sér ekki til að ávarpa
þjóðina við þessar aðstæður. Það
kom óvænt upp í hendurnar á
keppinaut hans, í upphafi ferilsins,
Höskuldi Þórhallssyni að tilkynna
niðurstöðu þingflokksins, að því að
virtist fyrir mistök.
„Ég fyrirgef honum allt sem hann
hefur sagt og gert síðustu daga því
þetta er með þvílíkum ólíkindum
og svo óbærileg pressa að hann
hefur varla verið með sjálfum sér,“
segir Jón Sigurðsson.
„Þessi grátlegu og barnalegu
mistök að fara á fund forsetans til
að ræða þingrof og kosningar án
þess að hafa nefnt það við sam-
starfsflokkinn en rætt um það á Fa-
cebook. Hann veit ekki að breyting
á stjórnarskránni 1991 útilokar
þingrof við slíkar aðstæður.
Hann hefði ekki getað
fært forsetanum betri gjöf.
Hann varð svo glaður að
maður komst hreinlega
við. Hann bara elskaði
hann Sigmund þegar
þetta gerðist. Þarna fékk
hann það vald sem hann
átti eftir að fá á ferli sín-
um, valdið yfir þinginu.
Ég vona að með tím-
anum læri hann að lifa
með þessu og eignist
framtíð. En hún
verður ekki í stjórn-
málum nema hann
stigi niður til okkar
hinna og fái sjónina
aftur.“
www.hi.is
Á slóðum kræklingsins
í Hvalfirði
Laugardaginn 9. apríl kl. 11
Kræklingur er herramannsmatur en það þarf að kunna á hann, vita
hvenær má tína hann og borða og hvernig á að elda hann. Halldór
Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands
á Suðurnesjum, leiðir ferð upp í Hvalfjörð, fræðir þátttakendur og töfrar
fram veislu í fjörunni. Þátttakendur mæti í stígvélum, með ílát fyrir
kræklinginn og gjarnan með hlýja vettlinga og góða gúmmíhanska.
Brottför er frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, á
einkabílum. Áætlað er að ferðin taki um 3 klukkustundir. Áður
en ekið er af stað í halarófu verður hálftíma fræðsla í Öskju.
Ferðin er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands um göngu- og hjóla-
ferðir undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Reynsla og þekking fararstjóra
Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman
í áhugaverðum ferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess.
Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Með fróðleik í fararnesti
Valitor
er stuðningsaðili
Ferðafélags Íslands
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
61
86
2
Allar nánari
upplýsingar
á hi.is
hafa átt von á því að vera spurð-
ur út í þetta félag, beinlínis legið
andvaka um nætur, en hann kaus
að gera ekki neitt og skýra engum
frá því í hvaða stöðu hann var
búinn að koma sér í. Eitt er þetta
aflandsfélag á Tortóla en hitt er að
vera kröfuhafi í Landsbankanum.
Mér finnst það óskiljanlegt. Og allur
þessi tími sem líður frá þessu við-
tali, hann gerir ekki neitt.“
Það virðast þó ekki hafa verið
upplýsingarnar í Panama-skjölun-
um sem riðu baggamuninn, heldur
að Sigmundur Davíð skyldi gera sig
að athlægi í sjónvarpi frammi fyrir
allri heimsbyggðinni. Forsætisráð-
herrann mátti upp að vissu marki
verða sér til skammar á heima-
velli. En vörn ráðherrans, að það
þetta væri smámál sem væri runnið
undan rótum óvildarmanna hans,
Tortóla væri í raun og veru ekki
skattaskjól, Svíþjóð væri það hins-
vegar, hún kom ekki sérstaklega
vel út sem landkynning. Fólk vissi
ekki hvort það ætti að veltast um af
hlátri eða gráta yfir þjóð sem veldi
slíkan leiðtoga í lýðræðislegum
kosningum, ekki svo löngu eftir al-
gert efnahagshrun landsins.
Hann veitti Stöð 2 viðtal í há-
deginu á mánudag, daginn eftir
Kastljósið. Á sama tíma var hann
á hlaupum undan fréttamönnum
annarra miðla. Einum var boðið
inn í hlýjuna, einn fékk að heyra
viðbrögð ráðherra þjóðarinnar,
sem var á vandræðalegan hátt,
allt í senn, kotroskinn, kjánalegur,
brjóstumkennanlegur, hrokafullur
og sagði eins og gamall skólakenn-
ari við fréttakonuna, „góð spurning
hjá þér,“ eins og hún hefði verið
tekinn upp að töflu og í huga ráð-
herrans átti þetta eflaust að virka
eins og föðurlegt klapp á kollinn.
Svo sagði hann eitthvað um virta
erlenda fjölmiðla sem sæju í gegn-
um vitleysuna.
Leiðtoginn og forsætisráðherrann
Að sama skapi vörðu samflokks-
menn Sigmundar Davíðs hann
opinberlega. „Hann er leiðtoginn
okkar,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir
umhverfisráðherra og í Indlandi
tók Gunnar Bragi Sveinsson til
varna fyrir Sigmund Davíð þegar
erlendir blaðamenn spurðu hann
út í málið. „Það er mjög undarlegt
að klína andliti hans á veggspjald
ásamt einhverjum glæpamönnum
úti í heimi,“ sagði utanríkisráðherra
Íslands. „Það er ósanngjarnt, dóna-
legt og ætti ekki að sjást. Forsætis-
ráðherra minn hefur ekkert rangt
gert.“
Í meðvirkninni kristallast vand-
inn, sem er langt í frá einangraður
við Sigmund Davíð Gunnlaugsson.
Viðbrögðin minna meira á sértrúar-
söfnuð eða stjórnmálamenn í ein-
ræðisríki. Sigmundur Davíð hefur
safnað um sig nýjum þingmönnum,
stuðningsmönnum og ráðgjöfum
sem elta hann í blindni fram af
brúninni, ef því er að skipta.
„Hann lærði ýmislegt af Davíð
Oddssyni, til að mynda var hann
harðhentur við þá sem fylgdu
honum ekki að málum inni í flokkn-
um,“ segir Jón Sigurðsson en það
kann að eiga sinn þátt í því að þagga
niður óþægilega gagnrýni sem
hefði getað breytt stöðunni.
Eiríkur Bergmann Einarsson
bendir á að það hafi þó kvarnast
talsvert úr stuðningsmannaliði
Sigmundar Davíðs. Hann var um-
kringdur stórum hópi jafningja,
núna er þetta þröngur hópur við-
hlæjenda. Þeir allra hörðustu hafa
í raun sokkið dýpra og dýpra í bön-
kerinn, það kannist fáir aðrir við
útsýnið þaðan.“
Almannatenglar og ímyndar-
fræðingar ræða sín á milli um
hversu heimskulegir menn geti
komist upp með að vera í opin-
beru embætti. Það er eins og hitt
umræðuefnið sé enn óviðeigandi,
hversu heimskur maður geti verið,
en verið samt kosinn í embætti.
Áfram er unnið með sjúkdóms-
einkennin en sjúkdómurinn látinn
óáreittur.
Fyrstu viðbrögð Sigmundar Dav-
íðs eftir Kastljósþáttinn voru eftir
því. Hann baðst afsökunar á því að
hafa komið illa út úr viðtalinu. Hann
baðst ekki afsökunar á því sem
fjallað var um í þættinum, þaðan af
síður ætlaði hann að fara frá.
Síðar sama dag flykktist fólk í
miðborgina á stærstu mótmæli Ís-
landssögunnar og lýsti vantrausti á
ríkisstjórnina og krafðist þess að for-
sætisráðherrann segði af sér.
Sneypuför til Bessastaða
Að morgni þriðjudags sagði Sig-
mundur í þættinum Bítið á Bylgj-
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra brást við myndum af for-
sætisráðherranum í vafasömum félagsskap á fundi með blaðamönnum
á Indlandi. „My president has done nothing wrong.“
Í meðvirkninni krist-
allast vandinn, sem er
langt í frá einangraður
við Sigmund Davíð
Gunnlaugsson. Við-
brögðin minna meira
á sértrúarsöfnuð eða
stjórnmálamenn í ein-
ræðisríki.
22 | fréttatíminn | Helgin 8. apríl–10. apríl 2016