Fréttatíminn - 08.04.2016, Síða 24
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
Íslenskan þjóðin gerði byltingu í byrjun vikunnar. Eftir að Sig-mundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra afhjúpaði sig
í viðtali við sænskan blaðamann á
sunnudagskvöldið reis fólk upp og
krafðist þess að hann tæki saman
föggur sínar í stjórnarráðinu og
færi heim. Þjóðin sagði honum
upp.
Auðvitað var það ekki svo að
hver einn og einasti borgari hafi
risið upp og mótmælt. Það gerist
aldrei. En það voru nógu margir
sem létu í sér heyra til að öllum
varð strax ljóst að Sigmundi Davíð
væri ekki sætt í embætti. Nema
Sigmundi sjálfum. En öðrum var
ljóst strax á sunnudagskvöldið
að þjóðin myndi aldrei láta það
yfir sig ganga að ráðherra sæti
áfram eftir að hafa orðið uppvís að
ósannindum og undanbrögðum.
Aðeins 44 klukkustundum eftir
að sýningu Kastljósþáttarins lauk
tilkynnti Sigmundur Davíð þing-
flokki Framsóknarmanna að hann
vildi hætta.
Þetta er mikið afrek hjá þjóð-
inni. Forsætisráðherra hafði aldrei
áður sagt af sér vegna hneykslis-
mála á Íslandi. Það hefur sára-
sjaldan gerst að ráðherrar hafi sagt
af sér á Íslandi. Þrátt fyrir augljós
brot tók það Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur meira en ár að segja af
sér sem innanríkisráðherra þrátt
fyrir að lekamálið hefði þá verið til
rannsóknar hjá opinberum aðilum
mánuðum saman. Illugi Gunnars-
son situr enn í menntamálaráðu-
neytinu þótt öllum sé ljóst hvernig
einkahagsmunir hans blönduðust
inn í embættisfærslu hans.
Í ljósi þess ber að fagna hversu
fljótt og vel þjóðinni tókst að losa
sig við Sigmund. Það bendir til að
tímarnir séu að breytast. Og batna.
En er þetta bylting? Og ef svo er;
hvar erum við stödd í byltingunni?
Þau okkar sem ólust upp á
síðustu öld eru ágætlega meðvituð
um hversu ólíkt íslenskt samfélag
er ríkjunum í kringum okkur.
Gamla Ísland var um margt líkara
samfélögum austan járntjalds en
ríkjum Vestur-Evrópu. Á Íslandi
ríkti vanhelgt samband viðskipta,
stjórnmála og ríkisvalds. Þótt hér
hafi ekki verið eins flokks kerfi þá
var eðli fjórflokkakerfisins ekki
svo frábrugðið. Pólitískir hags-
munir og viðskiptalegir hagsmunir
runnu saman og urðu það sem
kallað var íslenskir hagsmunir þótt
þeir hafi alls ekki verið hagsmunir
meginþorra fólks. Þvert á móti gat
þetta kerfi af sér samfélag þar sem
launafólk bjó við lakari kjör en í
nágrannalöndunum, veikari rétt
og minni völd. Ríkisvaldinu var
beitt fyrir hagsmuni fyrirtækja en
ekki almennings.
Stjórnmálaflokkarnir réðu fjöl-
miðlunum og því var öll umræða
um samfélagsmál veikburða, af-
vegaleidd og skökk. Saga frjálsrar
fjölmiðlunar er miklu styttri á Ís-
landi en í öðrum löndum. Það má
vart sjá meira en vísi af henni fyrr
en á áttunda áratugnum. Kerfi
flokksblaða lagðist ekki af fyrr en
undir lok síðustu aldar. Stjórn-
málaflokkar gamla tímans reyna
enn að hafa áhrif á fréttastefnu
Ríkisútvarpsins.
Það er sérstakt fagnaðarefni
að fulltrúi Gamla Íslands skuli
hafa fallið fyrir frjálsri fjölmiðlun
á vegum Ríkisútvarpsins. Það
er táknmynd þess að hið gamla
mun ekki geta staðist hið nýja.
Það er óhjákvæmilegt að Ísland
muni færast í háttum og siðum að
nágrannalöndunum. Þeir sem hafa
viljað halda í Gamla Ísland eru
dæmdir til að tapa.
Það er byltingin sem við lifum á Ís-
landi. Við höfum séð Kolkrabbann
deyja og Sambandið, viðskipta-
arma helmingaskiptaflokkanna
tveggja. Og þótt þessum skepnum
vaxi nýir armar þá eru þeir veikari
og skammlífari en forverar þeirra.
Við höfum séð skoðanakúgun
stjórnmálastýrðrar fjölmiðlunar
deyja og frjálsa fjölmiðlun rísa
upp. Við fylgjumst með almenn-
ingi gera háværari kröfur um að
íslenskt samfélag verði líkara því
sem fólk í nágrannalöndum býr
við og hvernig stjórnmálaflokk-
arnir beygðu sig undir þær kröfur
í vikunni.
Þetta er hin gleðilega bylting. Ís-
land er að færast úr Austur-Evrópu
til vesturs. Velkomnir til Vestur-
Evrópu, Íslendingar.
Gunnar Smári
VELKOMIN
TIL VESTUR-
EVRÓPU
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki
og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur.
Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum
ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa
og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt
fyrir sínar glæsi byggingar sem margar
eru á minjaskrá Unesco, forna menningu
og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði
blandast saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta
borg Póllands, saga hennar nær aftur til
ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn
menning og tónlistar-hátíðir hafa gert
borgina að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki
á sinn líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt
augnayndi hvert sem litið er og setur
borgina á stall með fallegri borgum Evrópu.
Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti
Péturs og Dómkirkjan.
Flogið er tvisvar í viku frá maí til október.
VERÐ FRÁ 89.000.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
24 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016