Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 08.04.2016, Side 64

Fréttatíminn - 08.04.2016, Side 64
Spurt er… Hvernig líður þér eftir vikuna? HELGIN Í ÆÐ SÚRREALÍSKT Hrafnkell Örn Guðjónsson Mér líður í raun ömurlega og veit ekki hvort ég á að gráta eða hlæja. Á mánudag var maður reiður en nú er ástandið svo súrrealískt að það er eins og Fóstbræðraskets. BUGUÐ OG ÞREYTT Alma Mjöll Ólafsdóttir Ég er bara frekar buguð á því. Það er ótrúlegt hvað ástandið hefur mikil áhrif á mann andlega. Ég kom heim eftir gærdaginn alveg búin á því og steinrotaðist. Síðan er maður líka súr yfir þessum raunveruleika. KVÍÐI OG ÓVISSA Aldís Mjöll Geirsdóttir Ástandið í þjóðfélaginu leggst ofan á allt annað sem er í gangi í lífi manns. Það styttist í prófin hjá mér og mikil óvissa og kvíði fylgdu þessari viku. Það kraumar í manni mikil reiði. MÆLIRINN FULLUR Kristján Sævald Pétursson Eftir Kastljós sunnudagsins var ég í sjokki. Mælirinn er fullur. Ég er bjartsýnn svo lengi sem ríkisstjórnin fer frá og við fáum að kjósa strax. Gott að hlusta: DJ sett af hljómsveitunum Sykur, Vök, Sísí Ey og Good Moon Dear spila á Paloma á föstudagskvöldið. Það heitir ekki Rafnæs af ástæðulausu en þarna eru sameinaðir ólíkir hljóðheimar undir hatti raftónlist- ar. Gott og næs til að hlusta! Gott að tína kræklinga: Skelltu þér í kræklingaleit í Hvalfirði. Ferðafélag barnanna stendur fyrir leitinni sem hefst í náttúrufræðahúsi HÍ klukkan 11 á laugardag með fræðslu um kræk- linga. Þaðan verður haldið af stað upp í Hvalfjörð. Þátttaka ókeypis. Gott að ralla: Hefur þig alltaf langað að prófa að drifta? Fyrsta æfing sumarsins hjá driftdeild AÍH verður í dag, föstudag, á Rallycross-braut- inni við Ásbraut í Hafnarfirði. Allar tegundir bíla velkomnar! Þú þarft bíl, ökuskírteini, tryggingaviðauka og síð- ast en ekki síst – löglegan hjálm.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.