Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 70

Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 70
6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016 Viðhald húsa Sigurður Helgi Guðjóns- son, formaður Húseigend- afélagsins, segir að það sé skammgóður vermir að spara í undirbúningi framkvæmda. Góður undirbúningur í hvívetna er mjög mikilvægur og einnig það að velja góðan og ábyrgan verktaka. Of mörg dæmi eru um viðhaldsfram- kvæmdir sem farið hafa illa af stað og endað illa og í flestum tilfellum er um að kenna slælegum undirbúningi og einnig röngu vali á verktökum. Hvernig á að undirbúa? Ekki er til nein einhlít regla um það. Verk eru mismunandi og aðstæður sömuleiðis. Í fjöleignarhúsum þarf að liggja fyrir lögleg ákvörðum. Þegar hún er komin er rétt að fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand húss- ins og viðgerðarþörf. Í því ástands- mati felst yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt sundurliðuðum verkliðum með áætluðum magntölum. Húseig- endur eru hvattir til að snúa sér til tæknimanna og fyrirtækja sem fram- kvæma slíkt mat en framkvæma þau ekki sjálfir eða fá fúskara til þess. Sé um minni verk að ræða er hægt að óska eftir tilboðum frá verktaka, byggðum á magntölum og verklýs- ingu samkvæmt ástandsmati. Við stærri verk eru úttektaraðilarnir jafnan fegnir til að fullgera útboðs- og verklýsingu og standa að útboði. æ Skýr, skriflegur verksamningur Að velja verktaka er ekki auðvelt verk. Þannig er alls ekki víst að sá sem býð- ur lægst sé með hagstæðasta boðið þegar upp er staðið. Líta þarf til fleiri atriða svo sem hvort verktaki hafi full- nægjandi fagréttindi, hvort af honum fari gott orðspor og hvort hann virð- ist fjárhagslega burðugur til að ljúka verki. Þegar verktaki hefur verið val- inn er gengið til samninga við hann. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða. Allt of algengt er að enginn skriflegur samn- ingur sé gerður eða að ekki sé vand- að til samningsgerðar að öðru leyti. Skapar það hættu á óþarfa ágreiningi og deilum síðar meir um atriði sem hæglega hefði mátt koma í veg fyrir með skýrum og ítarlegum samnings- ákvæðum. Svartir sauðir Í þessum geira eða bransa eru því miður margir svartir sauðir sem oft hafa enga eða takmarkaða fagþekk- ingu á viðgerðum. Þessir aðilar bjóða gjarnan töfralausnir, bæði í efnum og aðferðum. Húseigendur þurfa að varast þessa aðila. Yfirleitt stenst fátt og enginn verksamningur gerður og jafnvel um vinnu að ræða án reikn- ings, sem er ekki eingöngu ólöglegt heldur stórvarasamt. Án fullgilds reiknings hefur húseigandi ekkert í höndunum sem sannar hvað var gert eða að viðeigandi verktaki hafi yfir- leitt komið nálægt verki og húsinu. Reikningslaus viðskipti lögbrot Því miður eru töluverð brögð að reikningslausum viðskiptum og virð- ast sumir húseigendur telja sig spara á því. Rétt er að ítreka að yfirleitt of- metur verkkaupi hag sinn í þeim við- skiptum. Verkkaupi stendur eftir án nokkurs eða veikburða réttar gagn- vart verktaka og ábyrgð á verki er engin. Einnig er mikilvægt að benda á að virðisaukaskattur fæst aðeins endurgreiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og viðgerðir á húsnæði, ef reikningar frá verktaka eru full- gildir. Aðkoma byggingarfulltrúa Vegna steypuviðgerða, sem hafa í för með sér niðurbrot og endurgerð hluta burðarvirkja, klæðninga og glugga- skipta verður að afla byggingarleyf- is. Ef fyrirhugaðar eru viðgerðir á sprungum og múr nægir að tilkynna það til byggingarfulltrúa með skrif- legri greinagerð um eðli verksins, hver hafi með því eftirlit og sjái um framkvæmd þess. Þess er krafist að iðnmeistarar standi fyrir fram- kvæmdum slíkra viðhaldsverka. Þeir skulu hafa sérþekkingu á viðhalds- vinnu og árita yfirlýsingu hjá bygg- ingafulltrúa um ábyrgð sína. Uppgjör og eftirmál Í minni verkum er oft svo um samið að fasteignareigandi inni verkkaup af hendi í einni greiðslu þegar verki er lokið. Í stærri verkum tíðkast það hins vegar að greitt er eftir framvindu verksins. Þá er nauðsynlegt að fast- eignareigandi fylgist sem best með framvindu verksins og að reikningar verktaka séu sundurliðaðir og skýrir. Lokauppgjör á síðan að fara fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en lokagreiðsla fer fram. Komi þá fram við skoðun að verk sé að einhverju leyti gallað getur fast- eignareigandi skorað á verktaka að bæta úr og ljúka verkinu á fullnægj- andi hátt. Gallar Jafnvel þótt fasteignareigandi eða eftirlitsaðili á hans vegum hafi tek- ið verkið út nákvæmlega við verk- lok geta síðar komið í ljós gallar á verkinu. Lög mæla svo fyrir um að fasteignareigandi skuli í síðasta lagi tveimur árum eftir að verki lauk að hafa uppi athugasemdir um galla því eftir þann tíma er réttur hans til að bera þá fyrir sig fallinn niður. Réttur til að bera fyrir sig galla á verki getur þó fallið niður fyrr þar sem lög áskilja að verktaka sé tilkynnt án verulegs dráttar um gallanna eftir að fasteign- areigandi varð þeirra var. Tryggi- legast er að hafa uppi slíkar athuga- semdir skriflega. Góður undirbúningur er lykilatriði Sigurður Helgi Guðjónsson. flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Fyrir pallinn og stéttina Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l. 4.390 Mako penslasett 590 Bio Kleen pallahreinsir 895 5 lítrar kr. 3.295 Landora tréolía 2.690 Meister fúgubursti með krók #4360430 2.690 (með auka vírbursta) Lavor Galaxy 140 Háþrýstidæla 140 Max Bar 450 lítrar/klst 1900W 9 kg 19.990
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.