Fréttatíminn - 08.04.2016, Qupperneq 72
Þjónustuauglýsingar
Auður I. Ottesen og eigin-
maður hennar fluttu á
Selfoss eftir hrun. Þau
keyptu gamalt funkishús
og hreinsuðu allt út úr því.
Þau hafa síðan tekið allan
garðinn í gegn og vinna nú að
endurbótum á bílskúrnum.
„Ég er að verða sextug og þetta
er afmælisgjöf til mín, að fara
að smíða aftur,“ segir Auður I.
Ottesen, garðyrkjufræðingur og
ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og
garðurinn.
Auður vinnur þessa dagana að
endurbótum á bílskúr við hús sitt á
Fossheiði á Selfossi. Hún og eigin-
maður hennar, Páll Jökull Péturs-
son, hyggjast nýta bílskúrinn, sem
er 36 fermetrar, vel því þar á að
vera lagergeymsla, smíðaverkstæði
fyrir Auði og salur þar sem Auður
getur haldið námskeið og Páll sýnt
myndir sínar.
Í kjól á gröfunni
Auður lætur ekki sitt eftir liggja
í framkvæmdunum enda er hún
menntaður smiður og starfaði við
smíðar áður en hún sneri sér að
garðyrkju. „Ég múra líka og legg
rafmagnsleiðslur og geri bara það
sem þarf að gera,“ segir hún en
fólk sem þekkir til Auðar segir að
framkvæmdagleðin sé slík að hún
sé alltaf að og gangi jafnvel til verka
klædd í kjól.
„Já, ég er mikið í kjólum á sumrin
og berfætt. Svo var það eitt sumarið
þegar kallinn fór í ljósmyndaferð að
ég tók framgarðinn alveg í gegn. Ég
setti bara á mig svuntu og mokaði
allan garðinn með gröfu. Þarna
var ég í ellefu daga. Það fannst
mörgum skrítið að sjá miðaldra
konu í kjól og með svuntu á gröfu.
Ég tók gröfupróf fyrir löngu og það
er voða lítið mál. Maður þarf bara
að samræma fjórar hreyfingar og
svo er helsta áskorunin að brjóta
engar rúður.“
Hún er vön því að sumum finnist
skrítið að sjá hana í hefðbundnum
karlastörfum. „Þegar ég var að
smíða árið 1981 áttu þeir það til að
taka af mér hamarinn, alveg ósjálf-
rátt. Og ef ég er á loftpressu vilja
þeir taka hana af mér líka,“ segir
hún í léttum dúr.
Hreinsuðu allt út úr húsinu
Auður og eiginmaður hennar
bjuggu í Reykjavík en fóru að hugsa
sér til hreyfings í kjölfar hrunsins.
„Við vildum byrja upp á nýtt og
við erum bæði Sunnlendingar. Við
fundum þetta fína fúnkis-hús og
fengum það á góðu verði frá banka.
Það var reyndar ekki að ástæðu-
lausu því það var sveppur í húsinu
og 1.100 köngulær, það var alveg
hersetið af köngulóm. Við sáum
strax möguleikana við þetta hús
og stærsti kosturinn var að það var
ekkert búið að gera í garðinum,
hann var mjög vanhirtur,“ segir
Auður.
Auður og Páll hreinsuðu allt út úr
húsinu þegar þau fengu það afhent.
Þau skiptu um lagnir og endurnýj-
uðu bókstaflega allt. „Við vorum í
þrjá mánuði að gera húsið íbúðar-
hæft. Ég braut sjálf allt niður með
loftpressunni,“ segir Auður.
Hún segir að síðan þau fluttu inn
hafi þau ekki ráðist í stórar fram-
kvæmdir í húsinu, umfang þeirra
hafi einfaldlega ráðist af því hvað
þau hafi átt af peningum hverju
sinni. „Okkur finnst gaman að það
sé ekki allt fullkomið hjá okkur. Við
fengum okkur til dæmis heitan pott
áður en við fengum sturtu og bað-
herbergið var ekki tilbúið fyrr en
á þriðja sumri. Svo hef ég ekki sett
gereftin á dyrakarmana þó ég eigi
efnið tilbúið. Við erum bara með
fullt af blómum til að gera þetta
heimilislegt. Það verður líka að
segjast að við höfum látið garðinn
ganga fyrir. Framkvæmdir í hús-
inu hafa goldið fyrir hann enda er
garðurinn nú nánast fullkominn.“
Drekkur eigið kaffi á afmælinu
Eins og áður sagði verður Auður
sextug í sumar og eitt af því sem
hún hefur einsett sér að gera af því
tilefni er að drekka kaffi sem hún
framleiðir sjálf. Auður og Páll fengu
kaffiplöntu að gjöf þegar þau fluttu
inn í húsið og er plantan nú farin að
gefa af sér dýrindis kaffibaunir.
„Plantan var 40 sentímetrar á
hæð en er nú að nálgast 1,5 metra.
Á öðru ári gaf hún af sér 6-7 baunir
en nú er hún farin að blómstra á
mismunandi tímum árs. Berin eru
fyrst græn, svo gul og loks brún
að lit og svo kroppar maður utan
af henni. Þessar baunir ætla ég að
brenna og mala og drekka svo á
afmælisdaginn.“
Þessi kaffiplanta gefur ágæta hug-
mynd um umfang ræktunarinnar
sem Auður og Páll eru með heima
hjá sér. Þar eru þau bæði með heitt
og kalt gróðurhús og rækta bæði
hefðbundnar tegundir en líka
ætiþistla, apríkósur og sitthvað
fleira sem flestir kaupa sér bara úti
í búð. „Ég hyggst vera nokkuð sjálf-
bær með ávexti, ber, grænmeti og
krydd í framtíðinni.“ | hdm
Í sumarkjól á skurðgröfu í garðinum
Kaffiplanta Auðar er orðin stór og
myndarleg. Á sextugsafmæli sínu
í sumar ætlar Auður að drekka
kaffi úr baunum af plöntunni.Hjónin Páll Jökull og Auður í kaffipásu í framkvæmdum.
Auður gengur í öll störf við smíðar og garðvinnu. Hér er hún á skurðgröfunni úti í garði. Myndir | Páll Jökull
Auður er nú á fullu við að taka bíl-
skúrinn hjá sér í gegn. Hér er hún
að byrja á millivegg sem lokar af
smíðaherbergið hennar í skúrnum.
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
8 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Viðhald húsa