Fréttatíminn - 08.04.2016, Blaðsíða 80
16 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016
Kynningar | Viðhald húsa AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Unnið í samstarfi við
Eignaumsjón
Það er því miður staðreynd að viðhaldi fasteigna á Íslandi er víða mjög ábótavant og oftar en ekki er beðið of lengi með
að framkvæma eðlilegt viðhald þeirra.
Starfsfólk Eignaumsjónar kannast vel
við þetta og segir að algengt sé að til
þess komi húsfélög þar sem ástand
fasteignar er orðið mjög slæmt. Ís-
lenska aðferðin hefur lengi verið sú að
bíða með viðhald og viðgerðir þangað
til í óefni er komið með tilheyrandi
aukakostnaði og raski sem hægt hefði
verið að koma í veg fyrir með reglu-
bundnu viðhaldi.
Langtíma viðhaldsáætlun
En hvað er þá reglubundið viðhald
og hvernig er best að sinna og fram-
kvæma eðlilegt viðhald? Ein leið,
að mati starfsfólks Eignaumsjónar,
er að gera viðhaldsáætlun til lengri
tíma. Í viðhaldsáætlun er sett upp
skilmerkilega hvaða verkefni þarf að
framkvæma einu sinni á ári, hvaða
verkefnum þarf að sinna á 1-3 ára
fresti, 3-5 ára á fresti og svo fram-
vegis.
Hjá nágrönnum okkar á Norður-
löndum hafa slíkar viðhaldsáætlanir
verið gerðar mjög lengi með góðum
árangri og sýnir reynslan að góð
langtímaáætlun í viðhaldi fasteigna
leiðir til lægri kostnaðar. Starfsfólk
Eignaumsjónar leggur nú ríkari
áherslu á að viðskiptavinir fyrir-
tækisins fari að hugsa um viðhald
fasteigna sinna til lengri tíma.
Samráð eigenda
Eigendur í fjölbýli þurfa að koma sér
saman um rekstur, viðhald og fjármál
á löglega boðuðum fundum. Mál sem
tengjast viðhaldi fasteignar eru því,
eins og áður sagði, oft ekki rædd eða
skilgreind nógu vel enda skortir oftar
en ekki þekkingu. Nokkrar leiðir eru
í stöðunni en hér að neðan er einfalt
dæmi sem Eignaumsjón notar til að
ráðleggja viðskiptavinum sínum:
• Boða til löglegs húsfundar með
eigendum þar sem fundarefni er t.d
„Viðhaldsáætlun næstu 7-10 ára“.
• Fá samþykkt fundarins til þess að
ráða sérfróðan aðila til þess að gera
ástandsskýrslu og kostnaðarmat á
viðgerðum og viðhaldi.
• Viðhaldsáætlun næstu 7-10 ára
lögð fram á húsfundi með sundur-
liðun á aðgerðum og kostnaði
vegna þeirra.
• Nauðsynlegar aðgerðir og viðhald
sem strax þarf að framkvæma.
• Viðhald og viðgerðir næstu 1-3 ára.• Næstu 3-5 ára.• Næstu 5-10 ára.
Þegar slíkar áætlanir eru gerðar
minnka líkur á óvæntum viðhalds-
kostnaði, verðgildi eignarinnar heldur
sér, heildarmynd fæst á allan rekstur
og viðhald hússins ásamt því að
greiðsludreifing í framkvæmdasjóð
verður jafnari. Þannig helst fasteign
í góðu og stöðugu ástandi. Þetta er í
raun ekki eins flókið og margir ætla.
Einnig þarf að vanda vel til verka
um efnisval og gæði þeirra vöru sem
notuð er til viðhalds og viðgerða í dag.
Oft eru notaðir of ódýrir kostir við
viðhald og viðgerðir á húsum sem eru
í raun einskonar „einnota“ aðgerðir.
Staðreyndin er sú að betra er að
fjárfesta í góðum vörum sem oft eru
dýrari í innkaupum en hafa lengri og
betri endingartíma og verða þarf af
leiðandi hagkvæmari þegar til lengri
tíma er litið.
Hvenær er „rétti tíminn“ fyrir viðhald?
Eignaumsjón er leiðandi í heildarþjónustu í rekstrarumsjón bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis
Eignaumsjón – þjónusta við
eigendur fasteigna
Eignaumsjón hefur verið leiðandi í heildarþjónustu í rekstrarumsjón bæði
atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Í raun er Eignaumsjón skrifstofa húsfélags
og heldur utan um fjármál og bókhald, sér til þess að aðal- og húsfundir
séu haldnir ásamt útvegun og öflun tilboða í aðkeypta þjónustu og
útvegun verktaka í minniháttar viðhaldsverk. En einnig er mikilvægt að
koma viðhaldsframkvæmdum í farveg með öflun tilboða frá fagaðilum í
gerð á ástandsskýrslum og kostnaðarmati við gerð viðhaldsáætlana.
Eignaumsjón hefur þróað öflugan hugbúnað sem er sérsniðinn að
þörfum hús- og rekstrarfélaga sem miðar m.a. að því að safna saman
dýrmætum gögnum og sögu viðkomandi fasteignar. Með þessum búnaði,
ásamt öflugu starfsfólki með haldgóða menntun og reynslu, mun Eigna-
umsjón áfram leitast við að aðstoða eigendur fasteigna af fremsta megni.
Starfsfólk Eignaumsjónar leggur ríka áherslu á að viðskiptavinir sínir
hugsi um viðhald fasteigna til lengri tíma.
Hyrjarhöfði 8 110 Reykjavík
Sími 577-1090
Netfang: sala@vikurvagnar.
is www.vikurvagnar.is
Bjóðum við upp á endingar-
góðar og hentugar kerrur,
bæði íslenskar og frá
Ifor Williams
Höfum kerrur á staðnum til sýnis
Seljum einnig og setjum
undir dráttarbeisli á allar
gerðir bíla
Í GARÐINN OG SUMARBÚSTAÐINN