Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 13.05.2016, Qupperneq 10

Fréttatíminn - 13.05.2016, Qupperneq 10
Í strætó Það er reyndar svo að þegar eigendakeðja hefur verið rakin í gegnum ýmis félög, að þá standa eftir um 90 einstaklingar. Með öðr- um orðum sá hópur sem tekur til sín megnið af 46 milljarða króna árlegri auðlindarentu kemst fyrir í einum strætisvagni. Þetta fólk, sem raunar má efast um að fari sinna daglegu erinda með strætó hefur samtals fengið í sinn hlut vel yfir 230 milljarða króna af 322 milljarða króna auðlindarentu landsmanna. Það skiptist raunar ekki svo jafnt milli fólks. En hverjir eru þessir einstak- lingar og hvaða fyrirtæki er um að ræða? Stærstu fyrirtækin HB Grandi er það fyrirtæki sem mestan kvóta fær í sinn hlut, yfir 10 prósent. Þar á eftir kemur Samherji með um 6 prósent. Fyrirtækið Þorbjörn í Grinda- vík fær um 5 prósentum af kvót- anum úthlutað, svo FISK seafood á Sauðárkróki og Brim í Reykjavík. Vísir í Grindavík og Vinnslustöð- in í Eyjum fá um 4 prósent hvort. Svipað fá Rammi í Fjallabyggð og Skinney-Þinganes á Höfn í Horna- firði. Síldarvinnslan á Seyðisfirði og Gunnvör fyrir vestan fá ríflega 3 prósent. Nesfiskur, Gjögur, Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Ögurvík og Út- gerðarfélag Akureyringa í kringum 2 prósent. Bergur-Huginn, Jakob Valgeir, Loðnuvinnslan, Eskja, Guð- mundur Runólfsson og Stakkavík milli 1 og 2 prósent af heildarkvót- anum kemur í þeirra hlut. Hafa ber í huga að innbyrðis eignatengsl eru milli sumra þessara fyrirtækja. Þannig á Samherji 100 prósent í Útgerðarfélagi Akureyr- inga, auk þess að eiga stóran hlut í Síldarvinnslunni ásamt Gjögri. Síldarvinnslan á svo aftur Berg- -Hugin. Enn hefur Samherji bein ítök í útgerðunum Pólaris sem fær 0,7 prósentum af heildarkvótan- um úthlutað, og auk þess Gullberg í gegnum Síldarvinnsluna. Þá hefur Ísfélagið í Vestmannaeyjum eignast útgerðina Dala-Rafn og Brim tengist jafnframt öðrum fyrirtækjum, auk þess að eiga stóran hlut í Vinnslu- stöðinni í Vestmannaeyjum. Sam- þjöppun er því mun meiri en fjöldi fyrirtækja gefur til kynna og færri einstaklingar á bak við stærri hluta af heildinni en virðist á yfirborðinu. Fáir græða mest á Granda Enda þótt HB Grandi sé almenn- ingshlutafélag með hátt í 2000 hlut- hafa, eru örfáir einstaklingar sem eiga þar áberandi stóra hluti og hafa ítök og völd í samræmi við það. Systkinin Kristján Loftsson, kenndur við Hval, og Birna Lofts- dóttir eiga áberandi stóra hluti í gegnum félagið Vogun, sem er að lang mestu leyti í eigu Hvals hf. Þar er jafnframt Sigríður Vilhjálms- dóttir. Öll eru þau stórir hluthafar í Fiskveiðihlutafélaginu Venusi, sem á bróðurpartinn í Hval hf. Eigna- tengsl eru einnig við Hampiðjuna sem á beinan hlut í HB Granda. Erfingjar Ragnhildar Skeoch sem átti ríflega 10 prósenta hlut í Hval hf., eru nú eigendur að verðmætum Það er reyndar svo að þegar eigendakeðja hefur verið rakin í gegnum ýmis félög, að þá standa eftir um 90 einstaklingar. Innan við hundrað manns hirða 33 þúsund milljóna króna auðlindarentu á hverju ári Ingimar Karl Helgason ritstjorn@frettatiminn.is Ætla má að auðlindarenta í sjávar- útvegi leggi sig á 46 milljarða króna árlega, miðað við árin 2008-2014. Um þrír fjórðu alls fiskveiðikvóta við Ísland falla í skaut rúmlega tutt- ugu fyrirtækja. Innan við eitthund- rað einstaklingar hirða bróðurpart- inn af auðlindarentunni í gegnum eignarhald sitt á þessum fyrirtækj- um sem telja má á fingrum og tám. Þessir einstaklingar hirða 33 millj- arða af auðlindarentunni í sjávar- útvegi á hverju ári. Frá hruni og þar til í hittiðfyrra lagði auðlindarentan sig á um 322 milljarða króna, sam- kvæmt útreikningum Indriða H. Þorlákssonar. 22 fyrirtæki fá úthlutað einu pró- senti eða meira af fiskveiðikvóta við Ísland. Samanlagt fá þau í eig- in nafni yfir 70 prósent af kvótan- um. Þegar könnuð eru eignatengsl þessara fyrirtækja við önnur sjáv- arútvegsfyrirtæki má ætla að hlut- fall heildarkvótans sem þeim er út- hlutað aukist upp í 73% eða jafnvel meira. Hér er miðað við stöðuna árið 2015. Þegar ársreikningar (2014) þessara fyrirtækja eru kannaðir með tilliti til eignarhalds sést glögg- lega að enda þótt hluthafar í sum- um þeirra séu margir – skipti jafnvel hundruðum – þá eru þeir fáir sem eiga bróðurpartinn í fyrirtækjun- um, hafa áberandi yfirráð og/eða fá megnið af arðinum í eigin vasa. Græða á tá og fingri Guðbjörg Matthíasdóttir Ísfélag Vestmannaeyja Ætla má að ekki minna en fimm milljarðar króna af auðlindaarði hafi runnið til Guðbjargar frá hruni. Þorsteinn Már Baldvinsson Samherji Tíu milljarðar króna af reiknuð- um auðlindaarði hafa runnið til Þorsteins Más frá hruni. Kristján V. Vilhelmsson Samherji Um tíu þúsund milljóna króna auðlindaarður safnast á hendur Kristjáns V. Vilhelmssonar. Hann er einn þeirra sem Panamaskjöl- in sýna að var með félag í skattaskjólinu Tortóla. Guðmundur Kristjánsson Brim Þeir eru ófáir milljarðarnir sem fara til Guðmundar Kristjánssonar í Brimi, af auðlindaarði þjóðarinnar, ef miðað er við útreikninga Indriða H. Þorlákssonar. Eiríkur Tómasson Þorbjörn hf. Systkinin á bak við Þorbjörn hf. í Grindavík fá þúsundir milljóna króna af auðlindaarði þjóðar- innar í sinn hlut. Kristján Loftsson HB Grandi Einn af helstu eigendum HB Granda sem ætla má að hafi fengið 32 milljarða í sinn hlut af auðlindaarði þjóðarinnar frá Hruni. Kristján, ásamt fáum öðrum, hefur mikil ítök í fyrirtækinu. 10 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.