Fréttatíminn - 13.05.2016, Qupperneq 28
ist hvernig þetta byrjaði, að ég
held. Fyrsta fólkið kom mest af
4chan og karlmenn eru í miklum
meirihluta þar,“ segir Sigmundur
Þórir en hann bendir á að í upp-
hafi hafi margir horft á þættina í
nokkurs konar kaldhæðni. Hvað
sem því líður þá fengu þættirnir
byr undir báða vængi og sumir
netverjar áttuðu sig á því að þeim
fundust þættirnir í raun og veru
góðir.
„Lauren Faust ákvað að gera
sjónvarpsþáttinn þannig að allir
gætu horft á þetta, sem sagt systk-
ini, foreldrar og aðrir gætu haft
gaman af því horfa með börnum
á þættina. Ofan á þetta er gott fólk
sem skrifar handritið, persónurnar
eru mjög vel gerðar og ekki „one
dimensional“ eins og gerist oft
með einfaldara barnaefni,“ segir
Sigmundur Þórir.
Hann telur að eina ástæða þess
að það séu fyrst og fremst karlar
sem séu yfirlýstir aðdáendur þátt-
anna vera að margar konur forðist
karlaklúbba. „Hin ástæðan er, held
ég, sú sama og með nördahópa í
heild, karlmenn eiga til að draga
ekki dul á sín áhugamál. Þegar
hópur er nú þegar troðfullur af
karlmönnum, þá er lítið af konum
sem þora vera þær fyrstu. Og eins
og gerist stundum þá eru alltaf ein-
hverjir sem skemma fyrir og eru
með neikvætt viðmót gagnvart
konum, sem hægir á aukningu á
nýjum konum í hópinn,“ segir Sig-
mundur sem bendir þó á að þetta
hafi skánað mikið í seinni tíð. Til
marks um það eru um fjórðungur
meðlima í íslenska Facebook-hópn-
um kvenkyns.
„Ekkert helvítis clop!“
Í hinum lokaða hópi ís-
lenskra brony á Facebook
eru aðeins fjórar reglur sem
ganga flestar út á að öll dýrin
í skóginum eigi að vera vin-
ir. Ein undantekning
er á því og það er
sú fjórða: „EKK-
ERT HELVÍT-
IS CLOP“.
Til að ein-
falda
málið
má segja
að stunda
hófaskell
sé slangur
brony-a yfir
að fróa sér yfir
myndum þar
sem búið er að teikna persónur úr
My Little Pony í erótískum stelling-
um. Rétt er að taka fram að einung-
is minnihluti brony-a stundar það
og í flestum tilvikum er ást þeirra
á My Little Pony platónsk. „Það er
frekar lítill partur af bronies sem
fílar það,“ skýrir Sigmundur.
Tíu þúsund manna ráðstefna
Líkt og fyrr segir er um alþjóðlegt
fyrirbæri að ræða. Fjölmennar ráð-
stefnur eru haldnar bæði í Banda-
ríkjunum og Evrópu og til dæmis
mættu tíu þúsund manns á Brony-
Con sem haldið var í Baltimore í
fyrra. Sigmundur Þórir segir að hér
á Íslandi hafi verið velheppnaðir
og fjölmennir „hittingar“. Fyrsta
skiptið gekk þó ekki hnökralaust
fyrir sig. „Ég man að í fyrra skipt-
ið þá var ég að plana „hitting“ og
hann var stilltur á „public“ á Fa-
cebook. Það voru alveg 150 manns
sem ætluðu að mætta, en svo var
viðburðinum póstað á einhvern
asnalegan „cringe“ hóp og þá kom
fullt af tröllum og eyðilögðu þetta,“
segir Sigmundur. Seinni „hitting-
ar“ gengu þó betur og hittust ís-
lenskir brony-ar og horfðu á þætti
og spjölluðu saman.
Ljóst er að brony-ar mæta nokkr-
um fordómum og er það algengt
umræðuefni í lokaða Facebook-
hópnum. Í upphafi þessa mánaðar
birti einn ungur maður mynd af
My Little Pony rúmfötum úr Rúm-
fatalagernum og skrifar: „Rakst
á þessi í rúmfó, bað mömmu um
svona í afmælisgjöf. Hún sagði að
ég væri klikkaður. Af hverju geta
foreldrar ekki samþykkt áhugamál
krakkanna sinna?“ Félagi hans
svarar á móti: „mamma þín
er alltaf með stæla þegar við
horfum á My Little Pony.“
Karlar sem elska
Pony-
hesta
Tvö hundruð Íslendingar
eru í lokuðum Facebook-
hópi til heiðurs My Little
Pony. Fullorðnir karlmenn
eru í miklum meirihluta. Um
er að ræða alþjóðlegt fyrir-
bæri sem á rætur að rekja til
skúmaskota internetsins
Hjálmar Friðriksson
ritstjorn@frettatiminn.is
Ríflega tvö hundruð Íslendingar
eru í lokaða Facebook-hópnum „Ís-
lenskir bronies“ en þar er á ferð-
inni aðdáendahópur teiknimynda-
þáttanna My Little Pony. Ugglaust
halda flestir að helsti markhópur
teiknimyndaþátta sem fjalla um
vináttu smáhesta sé ungar stúlkur,
en svo er ekki, fullorðnir karlmenn
eru þar í meirihluta. Um er að ræða
alþjóðlegt fyrirbæri sem á rætur að
rekja til skúmaskota internetsins.
Fréttatíminn ræddi við Sig-
mund Þóri Jónsson, einn stjórn-
enda íslenska Facebook-hópsins,
um hvað valdi því að fullvaxta
karlmenn taki ástfóstri við teikni-
myndir um smáhesta. Hann segir
ástæðuna margþætta en það sem
skiptir meginmáli er að þættirnir
séu einfaldlega fantavel skrifaðir
og höfði því til allra aldurshópa.
Þess má geta að Sigmundur er einn
stofnenda Pírata og er varamaður í
framkvæmdaráði flokksins.
„My Little Pony er ekki bara
fyrir litlar stelpur. Hvort sem þú
ert stelpa, strákur, karl eða kona
og hefur gaman af því að horfa á
skemmtilegar teiknimyndir um
hestavinkonur, þá er þessi hópur
Það eru ekki bara smástelpur sem halda upp á smáhesta
„Skemmtilegar
teiknimyndir um
hestavinkonur.“
Aðdáendur klæða sig eins og smáhestar á ráðstefnu.
Eflaust kannast
margir við
dúkku sem
og þessa
frá níunda
áratugnum.
Barna 4.995
Barna stígvél 5.995
Fullorðins 6.995
crocs
fyrir sumarið
fyrir þig,“ segir í lýsingu hópsins
á Facebook.
Reagan og 4chan
Rekja má upphaf My Little Pony til
níunda áratugar síðustu aldar en
þá setti leikfangarisinn Hasbro á
markað litla plasthesta, nokkurs
konar hestaútgáfu af Barbie, og
þekkja vafalaust flestir Íslendingar
vörumerkið þannig. Á þeim tíma
var Ronald Reagan forseti Banda-
ríkjanna og stefna hans að draga
úr regluverki varð til þess að bann
á auglýsingum, dulbúnum sem
barnaefni, var aflétt. Það varð til
þess að leikfangaframleiðendur,
eins og Hasbro, gátu framleitt 20
mínútna auglýsingar sem barna-
efni. Sem dæmi um slíkt má nefna
G.I. Joe, Transformers, He-Man og
auðvitað My Little Pony.
Eftir fjölda þáttaraða og kvik-
myndir var ákveðið árið 2010 að
byrja með nýja þáttaröð af My
Little Pony og var Lauren Faust fal-
ið það verkefni að endurræsa vöru-
merkið. Síðla það sama ár gerist
nokkuð sérstakt, notendur hinnar
umdeildu vefsíðu 4chan fengu dá-
læti á teiknimyndaþáttunum og
fóru að kalla sig brony, samsuðu
af bro og pony. Í kjölfarið varð My
Little Pony og Brony að nokkurs
konar brandara á netinu. „Það var
mikið hatur á móti ponies fyrst,“
skýrir Sigmundur Þórir.
Varð að karlaklúbbi
Sigmundur Þórir segir að rekja
megi að hluta vinsældir þáttanna
hjá fullorðnum karlmönnum til
þessarar tengingar við vefsíðuna
4chan. „Partur af ástæðunni teng-
Sig-
mund-
ur Þórir
er einn
stjórnenda
íslenska
Facebook-
hópsins.
28 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016