Fréttatíminn - 13.05.2016, Side 40
Mynd | Hari
Stefán Ingvar Vigfússon er líklega einn
dyggasti áhorfandi spunasýninga Improv
Ísland, en hann hefur farið á tólf sýningar
hópsins af fimmtán í vetur.
„Mér fannst reyndar ekkert mjög
gaman á minni fyrstu Improv-sýningu,
en svo fór ég á námskeið í Haraldinum
(innsk.blm. spunaforminu sem notað
er í sýningunum) og þar var mælt með
að fara á sýningarnar því maður lærir
mikið af því. Ég fór því aftur og fannst
ótrúlega skemmtilegt.“
Stefán fer nú á sýningu í hverri viku en
hefur þó misst af þremur sýningum vegna
skóla eða vinnu: „Þetta er ódýr dægra-
stytting á miðvikudagskvöldi. Svo hefur
hitt svo á að það er frídagur á fimmtudegi
og þá eru miðvikudagssýningarnar gott
fyrirpartý fyrir djammið,“ bendir Stefán á.
Spurður um uppáhalds spunaformin sín
í sýningunni nefnir hann Martröð leikar-
ans, þegar leikari fer með senu úr leikriti
og spunaleikari spinnur á móti, og Follow
the fun, spunaform þar sem hópurinn
fær orð að vinna með og einu reglurnar
eru í raun að elta fjörið, hvar sem þar er
í senunni. Þegar Fréttatíminn náði tali af
Stefáni var hann svo að sjálfsögðu á leið á
Improv Ísland sýningu um kvöldið – hvað
annað? |sgþ
Missir ekki af sýningu
Improv Ísland er gott fyrirpartý
Í heimi þar sem bragðarefirnir í Vesturbæjarís virðast stækka sífellt og
Ikea-kjötbollunum á diskinum okkar fjölga getur verið erfitt að meta sjálfur
hversu mikill matur er of mikill matur.
En það er kannski ekki okkur að kenna - aðeins lítil börn hafa náttúru-
lega getu til að hætta að borða þegar þau eru södd. Og sá öfundsverði eig-
inleiki hverfur við þriggja eða fjögurra ára aldurinn.
Þegar við höfum enga skynjun sjálf um hvað við þurfum mikinn mat
treystum við á að matariðnaðurinn segi okkur það og þar erum við kom-
in í klandur. Matariðnaðurinn vill miklu frekar selja okkur mikið af mat í
einu fyrir meiri peninga en minni mat á sama verði – það segir sig sjálft.
Vandamálið er að enginn neytandi vill fá minna en hann fær nú þegar
og því er erfitt að snúa þróuninni til baka. En það er hægt að vera með-
vitaður um þessa þróun. Til að sjá hversu hröð hún er er nóg að kíkja á
matarstellin í næstu antíkbúð. Það sem virðast vera einhvers konar mat-
ardiskar í dúkkustærð eru einfaldlega aðalréttadiskar eins og þeir voru
fyrir öld síðan. | sgþ
Tölum um matarskammta
Hvað eigum við að borða?
Heimildir í grafi: Food Standards Agency
Hér eru skammtastærðirnar eins
og þær ættu í raun að vera
180 g af kartöflum
sem er eins og tölvumús
80 g af kjöti
sem er eins og
spilastokkur
30 g af osti
sem er eins og eldspýtustokkur
25 g af snakki
sem er eins og venjulegur tebolli
150 g af pasta eða hrisgrjónum
sem er eins og tennisbolti
Hver óttast
föstudaginn 13?
„Triskaidekaphobia“ = ótti
við föstudaginn þrettánda
Svo lamandi er ótti manna við
daginn að margir sleppa því
jafnvel að fara fram úr. Þó verða
færri slys þennan dag, lík-
lega vegna þess að margir fara
sérstaklega varlega eða halda
sig einfaldlega heima. Ástæða
þess að dagurinn er alræmdur
óhappadagur er óljós. Margir
rekja hjátrúna til kristni, enda
var Kristur krossfestur á
föstudegi og 13 manns
sátu til borðs í
síðustu kvöld-
máltíðinni.
„Ég var með harð-
sperrur í maganum
ég hló svo mikið.
Ég skil ekki á hvaða
tímapunkti við hætt-
um að leika okkur.“
Lögmaður á daginn
spunadrottning á kvöldin
Katrín Oddsdóttir lögmaður
segir spunaleikhúsið kenna
sér að lifa í núinu. Við erum
aldrei of gömul til þess að gera
okkur að fíflum, bulla og fara
í þriggja tíma hláturskast.
Lögmaðurinn Katrín Oddsdóttir er
ein þeirra sem stígur á stokk hvern
miðvikudag í Þjóðleikhúskjallaran-
um ásamt spunahópnum Improv
Ísland. Uppselt hefur verið á allar
sýningar Improv í vetur og virðast
Íslendingar sólgnir í skemmtunina,
enda fá áhorfendur töluvert fyrir
sinn snúð en sýningin kostar litlar
1.500 krónur.
Katrín er hluti af söngleikjahópn-
um sem spinnur söngleiki út frá
orðum og sögum áhorfenda. Áður
sótti hún nokkur spunanámskeið
hjá Haraldinum. „Ég hafði heyrt
vel til látið af námskeiðunum hjá
henni Dóru Jóhanns. Ég ákvað því
að skella mér og stíga langt út fyrir
þægindarammann. Í dag er ég al-
gjör spunafíkill.“
Katrín segir fyrsta tíma nám-
skeiðsins einkennast af þriggja tíma
hláturskasti og frelsi til þess að
leika sér. „Ég var með harðsperr-
ur í maganum ég hló svo mikið.
Ég skil ekki á hvaða tímapunkti
við hættum að leika okkur. Allt í
einu er maður orðinn fullorðinn að
taka á móti gluggapósti, sitjandi á
skrifstofu. Í spunaleikhúsinu leyfi
ég mér allavega einu sinni í viku að
bulla, leika mér og vera frjáls.“
Að stíga á svið með óskrifað
handrit er bæði stressandi og
frelsandi samkvæmt Katrínu. Hún
segir alltof stóran hluta lífs okkar
fyrirfram ákveðinn. „Maður veit
í raun hvað dagurinn ber í skauti
sér þegar maður vaknar, nema
kannski mætir einhver óvænt með
kanilsnúða í vinnuna. Spunaleik-
húsið er andstæðan við það, þú
ferð inn og veist ekkert hvað ger-
ist. Hvort þú þurfir að bregða þér
í hlutverk krókódílaömmu eða
gospelsöngvara. Þetta þvingar
mann til þess að lifa í núinu sem er
meinhollt fyrir fólk í þessu hraða
nútímasamfélagi.“
Heimspeki spunans segir Katrín
nýtast öllum í lífinu. Að segja frekar
já en nei, treysta og gefa af sér.
„Maður lærir fljótt að treysta mót-
leikurum sínum. Við styðjum hvert
annað, gerum okkur að fíflum og
lærum að það er bara allt í lagi.“ | sgk
12/15
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–14, sunnud. lokað
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Við leitum að
listaverkum
erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir
Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur,
Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar,
Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400
Helgarblað 8.
apríl–10. apríl
2016 • 14. tölub
lað 7. árgangur
www.frettatim
inn.is
ritstjorn@fretta
timinn.is
auglysingar@fre
ttatiminn.is
Hemúllinn
Fjölskyldufaðir
í Breiðholti −
pönkari á Austurv
elli
Mannlíf 62
Mynd | Hari
Jóhannes Kr. Kr
istjánsson 28
Panama-skjölin
Viðhald húsa
FRÉTTATÍMIN
N
Helgin 8.–10. ap
ríl 2016
www.frettatimi
nn.is
Við getum tekið
sem dæmi sólpa
lla
þar sem algenga
sta
aðferðin er að g
rafa
holur og steypa
hólka. Með þess
um
skrúfum er ferlið
mun einfaldara,
öruggara og
kostnaðarminna
. 17
Dýrleif Arna Guðm
undsdóttir,
verkfræðingur hjá
Áltaki.
• Steinsteypa
• Mynsturstey
pa
• Graníthellur
• Viðhaldsefni
• Stoðveggjake
rfi
• Múrkerfi
• Einingar
• Gólflausnir
• Garðlausnir
Fjárfesting sem
steinliggur
20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
Hafðu samband í s
íma og láttu
sérfræðinga okkar
aðstoða þig
við að finna réttu l
ausnina.
4 400 400
4400 600
4 400 630
4 400 573
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörðu
rHrísmýri 8
800 SelfossSmiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbæ
r
Sími 4 400 400
www.steypustod
in.is
Húsið var herseti
ð
af köngulóm
Auður Ottesen o
g eiginmaður he
nnar keyptu sér
hús á Selfossi
eftir hrun. Þau þ
urftu að vinna b
ug á myglusvepp
i og heilum
her af köngulóm
en eru ánægð í e
ndurbættu húsi
í dag. Auk
hússins hefur ga
rðurinn fengið a
ndlitslyftingu og
nú eru þau
að taka bílskúrin
n í gegn. 8
Mynd | Páll Jökull
Pétursson
Sérblað
Maðurinn sem fe
lldi
forsætisráðherr
a
Sven Bergman
Illnauðsynleg
aðferð í viðtalinu
Sænski blaðama
ðurinn 8
Ris og fall
Sigmundar
Upp eins og rake
tta,
niður eins og pri
k
Spilltasta þjóðin
10
Bless 18
332 ráðherrar í V
estur-Evrópu
4 í skattaskjóli þa
r af 3 íslenskir
KRINGLUNNI IST
ORE.IS
Sérverslun með A
pple vörur
MacBook Air 13"
Þunn og létt með rafh
löðu
sem dugar daginn
Frá 199.990 kr.
MacBook Pro Re
tina 13"
Alvöru hraði í nettri o
g léttri hönnun
Ótrúleg skjáskerpa
Frá 247.990 kr.
Mac skólabækur
nar
fást í iStore Kring
lunni
10 heppnir sem versla
Apple tæki frá
1. mars til 15. maí vin
na miða á Justin Bieb
er.
www.sagamedic
a.is
SagaPro
Minna mál me
40 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016