Fréttatíminn - 23.09.2016, Side 2
• Erlend greiðslukortavelta
ferðamanna 30 milljarðar
í ágúst
• Útflutningur sjávarafurða
22 milljarðar á mánuði að
meðaltali
• Greiðslukortaveltan þegar
hærri en allt síðasta ár
08 Hliðarefni fyrirsögn
ctrl+8
Ferðamenn Gífurleg aukning
er á kortaveltu ferðamanna
hér á landi og er hún þegar
orðin um átta milljörðum
hærri en allt síðasta ár.
Í ágúst síðastliðnum nam erlend
greiðslukortavelta 30,6 milljörð-
um króna samanborið við 22,2
milljarða í sama mánuði 2015, sam-
kvæmt samantekt Rannsóknarset-
urs verslunarinnar.
Það sem af er ári hafa erlendir
ferðamenn greitt tæpa 162 millj-
arða með kortum sínum en til sam-
anburðar var erlend greiðslukorta-
velta allt árið í fyrra 154,4 milljarðar
króna. Kortavelta á tímabilinu janúar
til ágúst 2016 er því um 5% meiri en
allt árið í fyrra.
Til samanburðar má geta þess
að útflutningur sjávarafurða á síð-
asta ári nam rúmlega 264 milljörð-
um króna, samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Íslands. Ef þeirri upphæð
er deilt niður mánuði þá var útflutn-
ingur á mánuði rúmir 22 milljarðar.
Tæpir 6,5 milljarðar króna fóru um
posa gististaða í ágúst en gististarf-
semi er veltuhæsti flokkurinn í korta-
veltu ferðamanna. Upphæðin nú er
32,3% hærri en í ágúst 2015 þegar er-
lendir ferðamenn greiddu 4,9 millj-
arða króna til gististaða með kortum
sínum. | vg
Kortavelta ferðamanna meiri en allt síðasta ár
Ferðamenn eyða gífurlegum fjárhæð
um á Íslandi.
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. september 2016
Viðskipti Fyrirtæki Ásdísar
Höllu Bragadóttur og Ástu
Þórarinsdóttir högnuðust
um 350 milljónir í fyrra.
Reka hjúkrunarfyrirtæk
ið Sinnum og sjúkrahótel
Landspítala meðal annars.
Ásdís Halla segir hagnað
inn tilkominn vegna sölu á
fasteigninni að Ármúla 9 sem
hýsir sjúkrahótelið, Sinnum
og Klíníkina.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Eignarhaldsfélög fjárfestanna Ás-
dísar Höllu Bragadóttur og Ástu
Þórarinsdóttur, sem halda utan um
hluti þeirra í einkarekna hjúkrunar-
fyrirtækinu Sinnum, Klíníkinni og
rekstri sjúkrahótels Landspítalans,
högnuðust um tæplega 350 milljónir
króna í fyrra. Þetta kemur fram í árs-
reikningnum fyrirtækjanna.
Fyrirtæki Ásdísar Höllu heitir
Gekka ehf. og fyrirtæki Ástu heitir
Flösin ehf. Meðeigendur þeirra að
félögunum eru eiginmenn þeirra,
Aðalsteinn Jónasson og Gunnar Við-
ar. Fyrirtækin eru hluthafar í heil-
brigðisfyrirtækinu EVU Consorti-
um, ásamt fjárfestingarsjóði í eigu
lífeyrissjóðanna sem heitir Kjölfesta.
Ásdís Halla segir að um sé að ræða
hagnað vegna sölu á fasteigninni Ár-
múla 9 en ekki vegna rekstrar hjúkr-
unar- og umönnunarfyrirtækjanna
sem hún á hlut í. „Hagnaðurinn
kemur til þegar EVA selur dóttur-
félag sitt, Hótel Ísland, til Reita. […]
Ekkert af hagnaði Gekka, eða öðr-
um sem eiga EVU, kemur frá Sinn-
um, sjúkrahótelinu, Klíníkinni eða
annarri heilsutengdri starfsemi þar
sem hún var öll rekin með tapi.“
Félag Ásdísar Höllu hagnaðist um
rúmlega 217 milljónir króna í fyrra
og var ákveðið að greiða rúmlega
99 milljóna króna af hagnaðinum
út sem arð á þessu ári. Arðgreiðsla
Gekku ehf. til Ásdísar Höllu og Að-
alsteins nam 44.5 milljónum í fyrra.
Samanlagðar arðgreiðslur félags
Ásdísar Höllu nema því tæpum 145
milljónum króna á síðustu tveimur
árum. Félag Ástu, Flösin ehf., hagn-
aðist um tæplega 133 milljónir í fyrra
og var ákveðið að greiða 25 milljóna
króna arð til hluthafa. Árið þar á
undan nam arðgreiðslan 6.5 milljón-
um króna og 8 milljónum árið 2013.
Ásdís Halla segir að hluti hagn-
aðar Gekku hafi farið í endurbæt-
ur á húsinu í Ármúla 9 vegna þeirr-
ar heilsutengdu starfsemi sem þar
fer fram. „Hagnaðurinn sem er til
og verður til í fyrra er að stórum
hluta nýttur í að breyta sjúkrahótel-
inu og Ármúla 9.“ Aðspurð um arð-
greiðslurnar út úr félaginu segir Ás-
dís Halla. „Það er eins og félög eru:
Sum ár er greitt inn í félög og sum
ár út úr. Á þessu ári greiddi Gekka
út þessa upphæð. Það er verið að
greiða út hagnað af starfsemi Gekka,
sem er þetta og önnur starfsemi. Á
sama tíma standa yfir framkvæmd-
ir við Ármúla 9 og við sem eigendur
höfum líka verið að setja peninga í
þær.“
Höfuðstöðvar Sinnum, lækna-
fyrirtækisins Klíníkurinnar og
sjúkrahótels Landspítalans eru í
þessu húsi í Ármúlanum og gerðu
fyrirtæki sem eru í eigu Ásdísar
Höllu og Ástu leigusamninga við
eignarhaldsfélagið sem á húsið,
Hótel Ísland ehf., áður en félagið
var selt til Fasteignafélagsins Reita
í fyrra en stærstu eigendur þess fé-
lags eru lífeyrissjóðir. Verðmæti at-
vinnuhúsnæðis getur verið meira
við sölu þess ef fasteignunum fylgja
leigusamningar við rekstraraðila til
lengri tíma.
EVA Consortium hefur ekki skil-
að ársreikningi fyrir síðasta ár og
því er ekki hægt að sjá söluverð Ár-
múla 9 þar en miðað við ársreikn-
ing eignarhaldsfélags hússins get-
ur kaupverðið hafa numið tæpum
þremur milljörðum króna. Árið
2013 keypti EVA húsið hins vegar á
rúmlega 830 milljónir króna. Tekið
skal fram að eigendur EVU lögðust
í kostnaðarsamar breytingar á hús-
inu til að þar gæti farið fram rekstur
heilbrigðisþjónustu.
Rekstur eignarhaldsfélaga Ásdísar Höllu Bragadóttur og Ástu Þórarinsdóttur var
arðbær á síðasta ári og skilaði þeim 350 milljóna króna hagnaði og 125 milljóna
útgreiddum arði. Þær sjást hér ásamt Kolbrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra
Kjölfestu, sem er fjárfestingarfélag nokkurra lífeyrissjóða sem keypti sig inn í
fyrirtæki þeirra árið 2013.
„Hagnaðurinn kemur til
þegar EVA selur dótturfé-
lag sitt.“
Greiðir út 99 milljóna arð
eftir sölu á sjúkrahóteli
Markaðsleyfi
Icepharma kostar
almenning rúmar
60 milljónir
Lyfjamál Heilbrigðis
stofnanir þurfa að greiða 62
milljónir á þessu ári fyrir
Bvítamín í sprautuformi en
greiddu áður 1,5 milljónir.
Reyndar var upphæðin 75
milljónir í fyrra en lækkaði
vegna megnrar óánægju
viðskiptavina.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
frettatiminn.is
Fyrirtækið Parlogis f lutti inn
B-vítamín sprautulyf samkvæmt
undanþágu og seldi á 525 krón-
ur skammtinn án virðisauka. „Við
fluttum þetta inn frá Þýskalandi,
fyrst að beiðni Landspítalans og
síðar fleiri heilbrigðisstofnana og
SÁÁ,“ segir Ólafía Elísabet Þórðar-
dóttir, innkaupastjóri hjá Parlog-
is, en fyrirtækið seldi rúmar 3000
pakkningar í fyrra fyrir 1,3 milljón-
ir. Þær kosta stofnanirnar núna 62
milljónir.
Icepharma sótti um markaðsleyfi
fyrir lyfið Tiacur, sem er B-vítamín í
sprautuformi, en samkvæmt lögum
ganga slík lyf fyrir í innkaupum og
því hefur Parlogis hætt að flytja inn
vitamin b1. Samkvæmt upplýsing-
um frá Lyfjagreiðslunefnd var tekin
ákvörðun um verð lyfsins með hlið-
sjón af meðalverði á Norðurlönd-
um, eins og verklagsreglur gera ráð
fyrir. Lyfið er framleitt af Abkur í
Svíþjóð og er selt úr apóteki í Nor-
egi á 1619 krónur norskar eða rúmar
24.000 krónur.
Þörfin fyrir lyfið er um 3000
skammtar á ári. Icepaharma
seldi skammtinn á um 25.113
fyrst eftir að það fékk mark-
aðsleyfi en lækkaði verðið
í kjölfar gagnrýni í 20.097.
Parlogis keypti lyfið frá Þýska-
landi og seldi skammtinn á
525 krónur.
Icepharma
= 20.097 kr.
2016
Parlogis
= 525 kr.
2015
Tiacur Vitamin B1
Í tilkynningu frá Jarþrúði, Þóreyju
og Helgu Dögg segir að þær hafi
varið kröftum sínum og tíma í þágu
flokksins og að tala fyrir jafnrétti
kynjanna þegar kemur að vali í
áhrifastöður. Nú telji þær fullreynt
að hreyfa við íhaldssömum skoðun-
um á jafnréttismálum sem ríki inn-
an flokksins. Í samtali við Frétta-
tímann segir Jarþrúður að engin
viðbrögð hafi borist frá forystunni,
eða þingmönnum og ráðherrum
flokksins en þær séu spenntar að sjá
hvað gerist í framhaldinu. „Við höf-
um verið í sambandi við Sjálfstæð-
iskonur um allt land sem fylgja okk-
ur að málum og við erum að fá mikil
og sterk viðbrögð úr grasrótinni.“
Í yfirlýsingu þeirra segir með-
al annars: „Víðtæk andstaða hefur
verið gegn því að ganga lengra í að
breyta kerfi og ásýnd flokksins í þá
veru að konur fáist til þátttöku. Mik-
ið hefur verið talað fyrir því að velja
„hæfasta einstaklinginn“.
Það sannaði sig í prófkjörum síð-
ustu vikna að þessi málflutningur
er úreltur og ekki í neinum takti við
nútímann og enn einu sinni kom í
ljós að prófkjör skila ekki endilega
góðum niðurstöðum þótt að þau
séu kannski lýðræðisleg fyrir þann
þrönga hóp sem tekur þátt í þeim.
Það er kominn tími til að horfast
í augu við það að prófkjör eru úr-
elt leið við val á lista. Ýmsir aðrir
stjórnmálaflokkar veigra sér ekki
við því að velja þannig á lista að
konur fái jöfn tækifæri til ábyrgðar
á við karla. Nema staðan sé sú inn-
an Sjálfstæðisflokksins að allir „hæf-
ustu einstaklingarnir“ séu karlar,”
segja þær í yfirlýsingunni. | þká
Sjálfstæðiskonur gera uppreisn
Stjórnmál Tveir fyrrver
andi formenn Landssam
bands Sjálfstæðiskvenna,
Þórey Vilhjálmsdóttir og
Jarþrúður Ásmundsdóttir,
og nú verandi formaður þess,
Helga Dögg Björgvinsdóttir,
hafa sagt sig úr Sjálfstæðis
flokknum. Til viðbótar þessu
hafa tíu konur sagt sig úr
Landssambandi Sjálfstæðis
kvenna en hluti þeirra er
genginn úr flokknum.
Þórey, Jarþrúður og Helga Dögg telja fullreynt að ná jafnrétti innan Sjálfstæðis flokksins.