Fréttatíminn - 23.09.2016, Síða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. september 2016
„Það voru mikil vonbrigði að
hafa ekki náð settu marki.
Maður fær ekki alltaf það
sem maður vill en lífið
stendur ekki og fellur með
því hvort maður er á lista hjá
Sjálfstæðisflokknum,“ segir
Unnur Brá Konráðsdóttir
sem lenti í fimmta sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi en miklar
umræður spunnust um jafn-
réttismál í Sjálfstæðisflokkn-
um í kjölfarið. Nú hefur verið
ákveðið að flytja hana í fjórða
sæti eftir að Ragnheiður Elín
Árnadóttir, sem lenti þar,
ákvað að hætta í pólitík.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Þetta er mjög harkalegur skellur. Átt-
irðu á einhverjum tímapunkti von á
þessu áður en úrslitin voru tilkynnt?
„Ég vissi að það yrði á brattann að
sækja en bjóst aldrei við því að falla
svona langt niður listann. En ég vissi
að það hefði örugglega áhrif á niður-
stöðuna að ég gæti ekki tekið þátt í
baráttunni á lokametrunum,“ segir
Unnur Brá en hún eignaðist stúlku-
barn tíu dögum fyrir prófkjörið og
þurfti því að hafa hugann við aðra
hluti.
En nú vissi fólk að þú varst að eiga
barn og þurfti því ekki að gera ráð fyr-
ir þér. Hvaða skilaboð eru flokksmenn
að senda þér?
„Veistu það, ég hef ekki áttað mig
alveg á því ennþá. Það er misjafnt
eftir því við hvern þú talar. Ég hefði
sjálfsagt bara þurft að vera meira
á ferðinni. Það eru fjögur þúsund
manns að kjósa og þau vissu kannski
ekki alveg öll að ég væri komin
á steypirinn en það var auðvitað
kynnt og lesin yfirlýsing í upphafi
framboðsfunda. Ég hef verið hvött
til að halda áfram og taka þessu ekki
persónulega.“
En hvarflaði ekki að þér að hætta
bara?
„Jú, vissulega þurfti ég að endur-
meta allt þegar ég fékk þessa niður-
stöðu. En niðurstaðan er sú að ég er í
pólitík af hugsjón og til að hafa áhrif
og ég er ekki búin að klára það sem
ég vil gera. En það var vissulega einn
af valkostunum.“
Nú voru þið Ragnheiður Elín Árna-
dóttir iðnaðarráðherra í fyrsta og
öðru sæti fyrir síðustu kosningar.
Hvaða skilaboð voru menn að senda
henni?
„Það er ekki mitt að svara því. Ég
ber virðingu fyrir hennar ákvörðun
þótt ég hafi kosið aðra leið. Ég mun
sakna hennar úr pólitíkinni.“
Nú hafa jafnréttismálin í Sjálfstæðis-
flokknum verið rædd eftir prófkjör-
in i Suður- og Suðvesturkjördæmi,
staða kvenna virðist fremur bágborin
og fáar starfandi þingkonur úr Sjálf-
stæðisflokksins verða áfram á Alþingi
samkvæmt þessu.
„Mér finnst umræðan eiga rétt á
sér í ljósi þess að engin þingkona er
í öruggu sæti á framboðslista. En ég
held að ástæðan fyrir mínu falli liggi
ekki í því að ég er kona. Ég hef hing-
að til fengið það sem ég hef sóst eft-
ir. Ég beitti mér ekki nóg fyrir próf-
kjörið enda önnum kafin við að eiga
barn og koma því á brjóst. Það voru
þrír einstaklingar að berjast um
fyrsta sætið og það hafði þessi áhrif.“
Var mikil harka í þessari prófkjörs-
baráttu?
„Nei, það var engin harka. Þessir
þrír karlar fengu bara góða kosningu
og mega vera ánægðir með það. Það
var enginn vondur við mig, ég var
bara á fæðingardeildinni.“
En þarf að skoða hvort prófkjör eru
verri aðferð fyrir konur í ljósi þessa?
„Mér finnst allt í lagi að skoða
hvort þessi aðferð sé meira fráhrind-
andi fyrir konur, til dæmis í ljósi þess
að einungis þrjár konur gáfu kost
á sér. Ég hef hinsvegar alltaf verið
mikill talsmaður prófkjöra og þess
að almennir flokksmenn fái að velja
hverjir skipa á lista en kannski þarf
einhverja nýja umgjörð. Kannski
á kjörnefndin að skoða hvort það
sé nauðsynlegt að bæta við fólki í
framboð þegar það hallar á ákveðna
aldurshópa eða karla og konur. Ég
veit það ekki.“
Hvað með kynjakvóta?
„Ég er ekki viss um að það sé rétta
leiðin. Í síðasta prófkjöri urðum við
Ragnheiður Elín í tveimur efstu sæt-
unum, ef það hefði verið kynjakvóti,
hefði ég verið færð niður.“
Margar Sjálfstæðiskonur urðu reiðar
vegna úrslitanna og það kom meðal
annars upp sú hugmynd að vera með
kvennaframboð. Var það rætt í fullri
alvöru?
„Nei, það var aldrei rætt. Ég las
það bara í blöðunum.“
Er það eitthvað sem þú hefðir getað
hugsað þér?
„Nei.“
Þú hefur vakið athygli og aflað þér
virðingar meðal pólitískra and-
stæðinga þinna á Alþingi fyrir mann-
úðlega nálgun í málefnum hælisleit-
enda og flóttamanna og gengið lengra
í þá átt en aðrir í þingflokki Sjálfstæð-
ismanna. Ásmundur Friðriksson hef-
ur hinsvegar verið gagnrýndur fyrir
skort á umburðarlyndi. Hann vermir
nú sæti þitt á framboðslista flokksins.
Hafði það eitthvað að segja?
„Ég vona að svo sé ekki því mín-
ar skoðanir á þessum málum eru í
samræmi við grunngildi Sjálfstæðis-
flokksins. Við viljum standa vörð um
frelsi einstaklingsins og jöfn tæki-
færi. Vinna mín í þessum málaflokki
hefur verið því marki brennd. Ég hef
gegnt ábyrgðarstörfum fyrir flokk-
inn í þingnefndum og náð stórum
og flóknum málum í gegn.“
Þú hefur á stundum farið þínar eigin
leiðir þvert á vilja flokksforystunnar.
Til að mynda greiddirðu atkvæði með
þingrofi þegar flokkurinn lagðist gegn
því. Er verið að refsa þér.
„Ég fylgi minni sannfæringu sem
þingmaður og reyni að gera það sem
mér finnst rétt. Ég þarf að vera sátt
við sjálfa mig.“
Nú er á brattann að sækja innan
flokksins, líður þér eins og þú sért á
byrjunarreit?
„Nei, það er spennandi að vera
komin í baráttusæti. Þegar maður
fær ekki það sem maður vill, er hægt
að fara í fýlu og hætta eða fara í fýlu,
jafna sig og koma til baka. Ég valdi
þann kostinn. Og hér er ég. Og ég
kvíði ekki samtalinu við kjósendur
fyrir kosningar.“
Það var enginn vondur við mig, ég var bara á fæðingardeildinni, segir Unnur Brá
Konráðsdóttir. Mynd | Hari
Kvíði ekki samtalinu
við kjósendur
Yfirheyrsla Unnur Brá Konráðsdóttur um stöðu kvenna
í Sjálfstæðisflokknum.
Mikil ólga á meðal vélhjólagengja
Jón Trausti Lúthersson fór mikinn
á síðasta áratug og varð frægt þegar
hann ruddist inn á ritstjórnar-
skrifstofu DV og réðist þar á Reyni
Traustason.
Lögregla Fylgst er grannt
með þróun mála eftir að Jón
Trausti Lúthersson snéri
aftur heim í ágúst. Sá er
forsvarsmaður Outlaws og
óttast kunnugir að upp úr
kunni að sjóða á milli hans
og Vítisengla.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Mikil ólga er á meðal vél-
hjólagengja hér á landi eftir að Jón
Trausti Lúthersson snéri aftur til
landsins í ágúst síðastliðnum og
fylgist lögreglan grannt með gangi
mála.
Jón Trausti fór mikinn á Íslandi á
síðasta áratug og er líklega þekkt-
astur fyrir að ryðjast inn á rit-
stjórnarskrifstofu DV.
Hræringar virðast vera að eiga
sér stað hjá vélhjólagengjunum
hér á landi. Meðal annars greindi
Stundin frá tilurð nýs vélhjólageng-
is í Garðabæ, Bad Breed MC, sem
er í raun byggt á gömlu félagi sem
kallaðist Devils Choice.
Þá virðist sem lykilmenn í vél-
hjólagenginu Outlaws, sem Jón
Trausti er núna í forsvari fyrir,
hafi yfirgefið klúbbinn og gengið
til liðs við Hells Angels fyrr á ár-
inu. Jón Trausti kom til Íslands
upp úr miðjum ágúst og mun vera
að leita að nýjum félagsmönnum
í Outlaws, auk þess sem hann er
sagður hafa ógnað fyrrum félögum
sínum með alvarlegum hætti þar
sem það þykja mikil svik að skipta
um vélhjólaklúbba.
Sjálfur á Jón Trausti harma að
hefna, en hann var í forystu fyr-
ir vélhjólagengið Fáfni, sem síðar
varð að Hells Angels. Félagar hans
voru þó ósáttir við Jón Trausta sem
varð til þess að hann var að lokum
rekinn úr klúbbnum.
Einn heimildamaður Fréttatím-
ans sagði augljóst að einhverskonar
uppgjör verði á milli hópanna, þá
helst vegna þess að Jón Trausti er
á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu fylgjast menn þar á bæ með
þróun mála. Heimildir Fréttatím-
ans herma að auki að áhugi lög-
reglu hafi aukist nokkuð á mál-
efnum vélhjólagengjanna eftir að
Jón Trausti snéri aftur, en gengin
hafa lengi verið skilgreind sem
skipulögð glæpasamtök í bók-
um Ríkislögreglustjóra. Þau hafa
háð blóðugar orrustur á götum
stórborga víða í Skandinavíu, og
því þykir ástæða til þess að hafa
allan varann á. Þá hefur erlendum
liðsmönnum vélhjólagengjanna
umsvifalaust verið vísað úr landi,
komi þeir til Íslands.
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Fyrir þínar bestu
stundir
NATURE’S
LUXURY
heilsurúm Aðeins 142.490 kr.
Nature’s Luxury heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 189.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
Aðeins 49.900 kr.
Plano
svefnsófi
Click – Clack svefnsófi.
Grátt og rautt slitsterkt áklæði.
Svefnsvæði: 120 x 190 cm.
Fullt verð: 59.900 kr.
10.000
króna
AFSLÁTTUR
Nettur
Þú finnur nýja bæklinginn
okkar á www.dorma.is
Smáratorg | Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður www.dorma.is
NATURE’S
LUXURY
heilsurúm
Aðeins 142.490 kr.
Nature’s Luxury heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 189.900 kr.
Fyrir þínar bestu
stundir
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
HELSINKI
rúmgafl
Rúmgafl fæst í svörtu og hvítu PU leðri og í gráu áklæði. Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.Verð að neðan miðað við rúmbreidd 120 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
Aðeins 31.920 kr.