Fréttatíminn - 08.10.2016, Page 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 8. október 2016
„Það væri minna mál að ganga
þetta í júlí en mig langaði til að
setja mig enn betur í spor gömlu
landpóstanna og fara um vetur.
Upplifa almennilega skammdeg-
ið, myrkrið, þögnina og óvissuna,“
segir atvinnugöngugarpurinn Einar
Skúlason sem ætlar að ganga gömlu
póstleiðina milli Reykjavíkur og Ísa-
fjarðar. „Ég hef lengi verið áhuga-
samur um gamlar þjóðleiðir en það
eru til hundruð gamalla leiða sem
eru margar hverjar horfnar. Leið-
irnar eru oft merktar með vörð-
um en sumstaðar sjást líka slóðar
í landinu eftir mörg hundruð ára
umgang manna og hesta. Sumar
þjóðleiðirnar eru frá upphafi land-
náms og liggja þær flestar yfir holt
og hæðir en stundum dett ég inn á
fjölfarna vegi því sumstaðar er búið
að leggja vegi yfir gömlu leiðirnar.
Til eru fjölmargar frásagnir af ferð-
um landpóstanna og þeim raunum
sem þeir lentu í og það er þekkt að
sumir komust ekki alla leið með bréf
og böggla til fólks,“ segir Einar sem
verður með nokkur bréf í farteskinu,
meðal annars eitt frá forseta Íslands
til Ísafjarðarbæjar. Hann leggur af
stað sunnudaginn 16. október með
nesti, tjald og nýja skó og áætlar
um tvær vikur í ferðina. Það er þó
allra veðra von á þessum árstíma
svo bréfin gætu borist á eftir áætlun,
eða á undan. | hh
Einar stefnir á að vera tvær vikur á leiðinni en gamla póstleiðin milli höfuðborgar-
innar og Ísafjarðar er um 400 km. Hægt verður að fylgjast með ferðum hans á
facebook-síðunni Póstleiðin. Mynd | Rut
Halldór semur tónlist
með áður óþekktum
hljóðfærum.
„Á þessari vinnustofu fer fram
smíði og önnur tilraunastarfsemi,“
segir tónlistarmaðurinn Halldór
Eldjárn um vinnustofu sína sem
hann notar á kvöldin og um helgar.
Halldór hefur verið að hanna
sjálfspilandi hörpu og trommu-
vélmenni sem hann hyggst nota
fyrir sólóverkefni sitt sem tón-
listarmaðurinn Halldór Eldjárn.
„Ég kem fram undir eigin nafni í
því verkefni en ég er trommari að
mennt og finnst það lang skemmti-
legast. Hef ekki spilað á trommur
að neinu ráði með hljómsveitinni
minni Sykur en langar að gera
meira af því. Þar sem ég er líka
tölvunarfræðingur frá HÍ fannst
mér tilvalið að sameina þetta
tvennt og búa til verkefni sem er
mjög skemmtilegt að vinna í.“
Halldór stefnir á að vera búinn
að ljúka við smíði hörpunnar og
trommuvélmennanna fyrir tón-
listarhátíðina Airwaves en hann
spilar í Gamla bíói á laugardegin-
um klukkan átta. „Ég ætla bara
að sitja við trommusettið mitt og
spila á trommur. Svo eiga harpan
og vélmennin bara að geta spilað
sjálf, fundið út úr sínu.“ segir hann
og hlær.
Tónlistarmaðurinn stefnir á að
gefa út lag um miðjan mánuðinn
þar sem hlýða má á tóna hinna
framandi hljóðfæra. | bg
Vinnustofan: Sjálfspilandi harpa
og trommuvélmenni
Smíðar hljóðfæri á kvöldin og um helgar. Mynd | Rut
Gengur frá
Reykjavík til
Ísafjarðar með bréf
Göngugarpurinn Einar Skúlason ætlar að ganga
gömlu póstleiðina, einn með nesti og nýja skó.
Haust er …
„ … þegar mömmur á
náttsloppum eru á bak
við stýrið fyrir utan MR og
afferma syfjaða unglinga,“
segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík,
ferðafrömuður hjá Mundo.
volundarhus.is · Sími 864-2400
VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m²
með 9 m² yfirbyggðri verönd
kr. 1.699.900,- án fylgihluta.
kr. 1.999.900,- með fylgihlutum og
byggingarnefndar teiknisetti.
Grunnmynd og nánari
upplýsingar á heimasíðu
volundarhus.is
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
V
H
/1
6-
04
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7m²
m/opnanlegum glugga
kr. 189.900,- án fylgihluta
kr. 219.900,- m/fylgihlutum
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m²
kr. 299.900,- án fylgihluta
kr. 359.900,- m/fylgihlutum
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,4m²
kr. 169.900,- án fylgihluta
kr. 199.900,- m/fylgihlutum
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is ATH! 34 mm bjálki / Tvöföld nótun
RISA HAUSTTILBOÐ
Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM