Fréttatíminn - 08.10.2016, Page 59
Spænsk gæðamerki
á frábæru verði
Springfield, Cortefiel og Women’s secret hafa hlotið góðar viðtökur.
Unnið í samstarfi við Gjörð
Þegar við ákváðum að fara í þetta ferðalag vorum við sammála um að okk-ur fannst vanta svolítið
upp á breiddina í vöruúrvalinu
hér á landi; og í raun og veru bara
vanta meira af vörum á góðu verði.
Það var það sem við höfðum að
leiðarljósi, að bjóða upp á eitt-
hvað nýtt á íslenskum markaði og
samkeppnishæft verð við erlend-
an markað. Því urðu þessar keðjur
fyrir valinu,“ segir Sigrún And-
ersen, framkvæmdastjóri Cortefi-
el, Springfield og Women’s secret
á Íslandi.
Þessar þrjár verslanir voru
opnaðar í Smáralind fyrr í haust
og hafa hlotið mjög góðar viðtök-
ur hjá íslenskum neytendum, að
sögn. „Við viljum öll geta verslað í
heimabyggð. Með því að bjóða upp
á samkeppnishæft verð erum við
að spara fólki yfirvigtina auk þess
sem mynstrið er að breytast, það
er ekki sami spenningurinn og var
hjá fólki að fara til útlanda í versl-
unarferðir, fólk er meira að sækjast
eftir því að fara út og eiga gæða-
stundir og slappa af. Tollalækkun
haft jákvæð áhrif, verslanir hafa
verið að lækka verðið og munu
lækka það enn meira. Verslunin er
að koma heim!“
Fersk og frjálsleg hönnun
Springfield endurspeglar allt
það nýjasta í tískuheiminum en
hönnuðirnir þar fylgjast afar vel
með nýjustu straumum og stefnum
í hönnun og tísku, góð gæði og
snið. „Þau eru að stíla inn á yngri
aldurshóp, 18+, en engu að síður er
kúnnahópurinn okkar mjög breið-
ur. Þetta er frjálslegur fatnaður
og verðlagið er gríðarlega gott.
Við höfum fengið virkilega góð
viðbrögð við þessu merki og fólk
hefur verið mjög ánægt með að
geta keypt bæði buxur og topp,
hátískufatnað, á undir 10.000
krónum,“ segir Sigrún. „Stærðirnar
spanna breiða vídd og hönnunin er
alltaf mjög fersk. Herralína Spring-
field er einnig sú stærsta á Spáni
svo úrvalið þar er frábært.“
Tímalaus klassík
„Cortefiel verður best lýst sem
lúxusvöru á viðráðanlegu verði.
Markhópurinn þeirra er konur og
karlar 30+. Herralínan er mjög
sterk hjá þeim og þau einblína á
tímalausa klassíska hönnun. Gæði
fyrir fólk sem gerir kröfur um
þægindi,“ segir Sigrún.
Undirföt á viðráðanlegu verði
Women’s secret er verslun með
breitt úrval af undirfötum, náttföt-
um sundfötum og heimafatnaði.
„Merkið er leiðandi á sínu sviði og
er einnig að finna í yfir 70 lönd-
um um allan heim. Þetta er allt frá
frjálslegum og þægilegum náttföt-
um fyrir ungar stelpur yfir í heima-
fatnað fyrir eldri konuna – og allt
þar á milli. Við erum einnig með
mikið úrval af lúxusundirfatnaði.
Verslunin hefur fengið sérstak-
lega góðar móttökur, stelpurnar
hafa verið sérlega ánægðar með
að geta komið og keypt sér fatnað
af þessu tagi á viðráðanlegu verði
án þess að fara til útlanda eða fara
í dýrar sérvöruverslanir,“ segir
Sigrún.
Springfield, Cortefiel og
Women’s secret eru allar á 2.
hæðinni í Smáralindinni – um það
bil fyrir miðju!
Cortefiel „Cortefiel verður best lýst
sem lúxusvöru á viðráðanlegu verði.“
Springfield „Fólk hefur verið mjög ánægt með að geta keypt bæði buxur
og topp, hátískufatnað, á undir 10.000 krónum.“
Women’s secret „Stelpurnar hafa verið sérlega ánægðar með að geta
komið og keypt sér fatnað af þessu tagi á viðráðanlegu verði.
Sigrún Andersen „Með því að bjóða um á samkeppnishæft verð erum við að spara
fólki yfirvigtina. Verslunin er að koma heim.“ Myndir | Rut