Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 28.10.2016, Side 28

Fréttatíminn - 28.10.2016, Side 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 28. október 2016 Hvar varstu þegar Prince dó? Lát frægra einstaklinga eða stórir heimsvið­ burðir geta haft mikil áhrif á sálarlíf okkar og lifir lengi í minn­ ingunni. Fréttatíminn spyr landann hvar hann var á þess­ um stóru augna­ blikum. Ragnheiður Haralds- og Eiríksdóttir. „Þegar mér bárust fregnir af full- komlega ótímabæru andláti tón- listarmannsins sem eitt sinn var þekktur undir nafninu Prince, svo undir töfrum þrungnu merki, svo aftur undir nafninu Prince, var ég stödd í Düsseldorf, á heimili Svövu systur minnar. Það mild- aði áfallið einna helst að akkúrat á því augnabliki sat ég í mjúkum sófa með litlu systkinabörn mín á báðar hendur. Suri, sem er með stærstu augu í heimi, brúnar krullur og talar helst þýsku, og Ísak sem er með mýkstu kinnar í heimi, kyssileg- asta munninn og talar helst japönsku. Þennan dag rifjuðum við Svava upp þegar við f órum á Prince tónleika í Worcest- er í Massachusets árið 1988. Þá vorum við 16 og 17 ára og bjugg- um í W Rhode Island þar sem við gengum í Chariho Regional High School. Tónleikarnir voru mik- il upplifun, enda var Prince einn af þeim tónlistarmönnum sem settu svip sinn á mótunarárin. Síðasti bekkur grunnskóla leið til dæmis undir tónum platn- anna 1999 og Purple Rain, og þegar leiðin lá í MH tóku Around the World in a Day og Parade við, svona á milli þess sem unglingarnir í Norðurkjallara skrif- uðu ljóð og tileink- uðu sér lífsspeki Morriseys.“ | bg Ragnheiður fór á tónleika með Prince þegar hún var 17 ára í Massachusets. Mynd | Hari Poppstjarnan Prince dó um aldur fram. Mynd | Getty Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is „Ég sá þetta auglýst og fannst þetta sniðugt, langaði að prófa eitthvað nýtt. Í fyrsta tímanum voru ekkert svo flóknar æfingar, en þetta er eitthvað nýtt fyrir manni og maður er að nota vöðva sem maður hefur ekki notað mikið áður. Þetta eru öðruvísi hreyfingar og skemmtilegar,“ segir Katrín Magnúsdóttir sem skellti sér á Silfursvanina, ballettnámskeið fyr- ir konur eldri en 65 ára. „Enginn hraði, aðeins mýkt og glæsileiki eru einkunnarorð nám- skeiðsins sem er nýtt fyrir konur á besta aldri í dansskóla Eddu Scheving,“ segir Brynja skólastjóri. Hún hefur tekið eftir auknum áhuga eldri kvenna á að koma í balletttíma: „Það eru allskyns kon- ur sem koma á námskeiðið. Sumar voru ballettdansmeyjar þegar þær voru yngri en aðrar hefur alltaf langað að verða ballerínur og láta nú drauminn rætast á sjötugsaldri. Það er farið í grunninn í ballett, grunnstöður, æfingar og spor. Allt mjög mjúkt og ekkert hopp, allt grundvallast á þeirra getu og þoli.“ Sigrún Halldórsdóttir er annar þáttakandi í námskeiðinu en hún hafði aldrei hugsað sér að byrja í ballett: „ Það er ekkert svo langt síðan ég skráði mig á jóganám- skeið, full fordóma. Hef prófað ýmislegt. Fordómarnir hurfu þó og ég hugsaði; afhverju ekki að prófa ballett líka?“ Sigrún segir þó að ballettinn sé meira listform en íþrótt: „Þetta byggir á því sem er gott fyrir líkamann en maður reynir nú að vera glæsilegur líka,“ segir Sigrún og hlær. Ætlarðu að taka þátt í jólasýn- ingunni í enda námstkeiðsins? „Það held ég nú varla í dag en það er langt í jólin.“ Hjá Silfursvönunum spyr ballett ekki um aldur Þar sem allt er mjög mjúkt og ekkert hopp. Kristínu finnst æfingarnar ekkert svo flóknar. Mynd | Hari Bæði gamlar ballerínur og nýjar dansa ballett í Silfursvönunum. Mynd | Hari Nú 3 sinnum í viku fimmtudag, föstudag & laugardag auglysingar@frettatiminn.is | 531 3310 Heimili & hönnun Þann 4. nóvember auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300 ALLT UM STOFUNA & BORÐSTOFUNA Jólablaðið Þann 24. nóvember auglysingar@frettatiminn.is 531 3310 Endilega hafið samband við okkur til að vera með Afþreyingarvefur fyrir konur á öllum aldri...

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.