Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 28.10.2016, Síða 38

Fréttatíminn - 28.10.2016, Síða 38
…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Coolio slapp við fangelsisvist Rapparinn Coolio sleppur við fangelsisvist eftir að hann viðurkenndi að hafa haft byssu meðferðis á flugvelli í Los Angeles. Coolio var handtekinn í síðasta mánuði eftir að byssan fannst við öryggis- eftirlit. Hann var dæmdur til 45 daga samfélags- þjónustu og má ekki eiga byssu eða hafa byssu um hönd næstu þrjú árin. Coolio er 53 ára og kvaðst þakklátur fyrir þá málsmeðferð sem hann fékk. Hann viðurkenndi að hann hefði gert mistök. Fór á nektarströnd Martha Stewart kom öllum á óvart í sjón- varpsþætti Ellen DeGeneres í vikunni með svörum sínum í föstum lið sem kallast Never Have I Ever. Hún svaraði ýmsum spurningum ásamt öðrum gestum þátt- arins, Snoop Dogg og Önnu Kendrick. Hin 75 ára gamla Stewart viðurkenndi að hún hefði skipst á kynæsandi skilaboðum í gegnum símann sinn og bætti svo um betur þegar hún játaði að hún hefði farið á nektarströnd. Angelina líka rannsökuð Yfirvöld í Kaliforníu rannsaka nú fleiri anga í skilnaðarmáli Brads Pitt og Angelinu Jolie en meinta uppákomu milli Pitts og barna þeirra. Eins og fram hefur komið er talið að Brad hafi öskrað á börn sín og sleppt sér í einkaþotu á leið frá Frakklandi til Bandaríkjanna. Rannsakað er hvort hinn 52 ára gamli Pitt hafi slegið Maddox, fimmtán ára son sinn. Nú er talið að hegðun Jolie sé einnig til skoðunar. Um er að ræða fleiri en eitt at- vik þar sem samskipti Brads og Angelinu fyrir framan börnin þóttu aðfinnsluverð. Tom Cruise hefur haft í nógu að snúast við kvikmyndatökur síðan hann skildi við Katie Holmes árið 2012, um það leyti sem hann var við tökur á stórmyndinni Oblivion hér á landi. Hann hefur gefið sér lítinn tíma til að sinna ástarlífinu eða hinni tíu ára dóttur sinni Suri. Því hefur meira að segja verið haldið fram að heilt ár hafi liðið á milli þess að þau hittust. Tímaritið UsWeekly greinir frá því að nú sé þetta að breytast, að Tommi sé farinn að umgangast dóttur sína á ný og sé ástfanginn af breskri konu. Þegar hann fagnaði afmæli sínu í sumar lét Cruise Suri fljúga til sín til Englands og þau eyddu fimm dögum saman. Með í för voru líf- vörður og barnfóstra Suri en Katie Holmes var hvergi nærri. Ekki hefur verið upplýst hver breska ástkona Krúsa er en þau hafa að sögn verið saman síðan í júní hið minnsta. Þá voru þau saman í sama þorpi og hann heim- sótti með Suri í sumar, Bourton-On- -The-Water, og nutu sumarblíðunn- ar með hjólaferðum og fleiru. Bresku konunni er lýst sem „mjög fallegri“ og „venjulegri“. Tom Cruise er þrígiftur. Auk Katie Holmes var hann kvæntur Nicole Kidman, og á með henni tvö ættleidd börn, og Mimi Rogers. Tom Cruise hittir dóttur sína á ný Fjögur ár frá skilnaði hans og Katie Holmes. Nýtt líf Tom Cruise er farinn að umgangast tíu ára dóttur sína á ný. Mynd | NordicPhotos/Getty Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég hannaði úlpu með Zo-On og það voru gerð-ir sjónvarpsþættir um ferlið. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni, allt öðruvísi en Zo-On hefur verið að gera, og frábært fyrir mig, ný- útskrifaða úr skólanum að fá þetta verkefni,“ segir samfélagsmiðla- drottningin og fatahönnuðurinn Manuela Ósk Harðardóttir um sjónvarpsþætti sem fara í loftið á Stöð 2 í byrjun nóvember. Manuela útskrifaðist úr fata- hönnunardeild Listaháskóla Íslands síðastliðið vor, en er nú flutt til Los Angeles þar sem hún leggur stund á fram- haldsnám í „social media“ við FIDM (Fashion Institute of Design and Merchandis- ing). Hún er hins vegar væntanleg til Íslands á næstu dögum til að leggja loka- hönd á síðasta þáttinn, þar sem lokaútgáfan af úlpunni mun birt- ast. Og fer hún í sölu samhliða því. Unnið langt fram í tímann „Þetta var í raun algjört drauma- verkefni. Ég fékk að starfa með hönnuðum Zo-On sem kenndu mér heilan helling. Svo fékk ég að koma með mínar hugmyndir sem voru ferskar fyrir þau, þannig samstarfið var mjög gott. Auðvit- að lærði ég mjög mikið í skólanum en það var gaman að fá loksins að gera eitthvað í alvöru og nýta það sem maður hefur lært. Þetta var pínu „skerí“ en samt besta verkefni sem ég gat fengið. Um- hverfið var svolítið verndað en samt fékk ég að gera mikið sjálf,“ segir Manuela sem er að sjálfsögðu orðin mjög spennt, bæði fyrir þátt- unum og úlpunni. „Mér skilst að fyrsta eintakið af úlpunni sé kom- ið til Zo-On og að ég fái það þegar ég kem til landsins. Ég er svo sjúk- lega spennt að sjá lokaútgáfuna og máta. Þetta er búið að vera svo langt ferli. Það sem er mest pirr- andi við þennan tískubransa er að maður er að vinna allt svo langt fram í tímann. Maður þarf alltaf að bíða svo lengi eftir lokaútkom- unni,“ segir hún og hlær. Fata- hönnunarbransinn er því alls ekki fyrir óþolinmóða. Spennt fyrir útkomunni Manuela er spennt að fá í hendurnar úlpuna sem hún hannaði ásamt fatahönnuðum Zo-On. Þarf að girða sig í brók á samfélagsmiðlum Manuela Ósk hannaði úlpu með Zo-On og sjónvarpsþættir voru gerðir um ferlið. Hún er nýflutt til LA og byrjuð í draumanáminu. Á dögunum opnaði hún bloggsíðuna heymanu.com til standa undir kröfum námsins. Þá er Manuela búin að sjá nokkr- ar stiklur úr þáttunum og segir þá lofa góðu. „Þetta er léttur og skemmtilegur þáttur. Það er að- eins fjallað um mig, hvaðan ég fékk innblástur og hugmyndir, svo er kynning á fyrirtækinu og sam- starfinu,“ útskýrir hún. Nýtt blogg í LA Spurð út í námið í LA segir Manu- ela það lofa mjög góðu og hún tel- ur sig algjörlega vera á réttri hillu. Lokaverkefni hennar í BA-náminu í fatahönnum fjallaði einmitt um samfélagmiðla og hvernig þeir hafa haft áhrif á tískubransann. Sjálf hefur Manuela verið frekar virk á samfélagsmiðlum í langan tíma, en hún segist þó alls ekki vera jafn opin og fólk heldur. Þvert á móti þá reynir hún að halda sínu persónulega lífi utan sviðsljóssins. Reynsla hennar af samfélagsmiðl- um reynist henni vissulega vel í náminu en það er ákveðin pressa frá skólanum að nemendur séu virkir á sem flestum miðlum. „Þau vilja til dæmis að við séum með bloggsíðu og Youtube-rás. Ég þarf því aðeins að fara að fara að girða mig í brók,“ segir Manuela kím- in. Hún hefur reyndar nú þegar látið undan pressu með bloggsíðu og opnaði á dögunum síðuna: heymanu.com. Snappið sprakk út „Það er eitt verkefni í skólanum að rannsaka bloggið aðeins, hvort samfélagsmiðlar séu alfarið búnir að taka við af blogginu, eða hvort fólk sé enn að lesa það, þannig að ég gerði bloggsíðu og ákvað að fyrst ég væri að þessu á annað borð að hafa hana opinbera. Og ef einhver vill lesa þá er það bara frá- bært. Ég er reyndar ekki búin að ákveða hvað fer þarna inn. En ég er ekki að gera þetta í neinum öðr- um tilgangi en vegna námsins. Ég er ekki að fara að selja auglýsingar og þetta er ekki að fara að vera fréttaveita. Auðvitað veit maður svo ekkert hvernig svona þróast. Eins og með „snappið“, það átti ekki að vera neitt en sprakk út í eitthvað rosalegt,“ segir Manuela og hlær, en fylgjendur hennar á þeim vettvangi skipta nokkrum tugum þúsunda. „Þetta er léttur og skemmtilegur þáttur. Það er aðeins fjallað um mig , hvaðan ég fékk innblá stur og hugmyndir, sv o er kynning á fyri rtækinu og samstarfin u.“

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.