Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
„Það er uggur og ótti í fólki. Það
hefur lengi verið þung undir-
alda í gangi sem skaust upp á
yfirborðið í síðustu viku og er
að koma aftur upp núna,“ segir
Ragnar Þór Pétursson, trúnað-
armaður kennara við Norðlinga-
skóla.
Ragnar Þór er einn af þeim tólf
kennurum sem sögðu starfi sínu
lausu í gær, miðvikudag. „Ég veit
að fleiri eru með bréf tilbúin en
flestir eru að bíða og halda í von-
ina. Eins og flestir muna þá voru
kennarar notaðir sem blórabögg-
ull fyrir síðast launaskrið, það var
gefið í skyn að kennarar hefðu feng-
ið mjög rækilega launahækkun
árið 2013 en sú launahækkun var
að stórum hluta keypt með meiri
vinnu og var því í raun ekki launa-
hækkun. Á þessum þremur árum
höfum við svo dregist aftur úr í
launum en þurfum samt að kvitta
upp á að launin verði áfram lág til
að viðhalda friði og stöðugleika á
vinnumarkaði.“
Kennarar brenna út
Ragnar segir baráttuna fyrst og
fremst snúast um launin en auk
þess hafi síðustu hækkanir verið
keyptar með meiri vinnu. Sú yfir-
vinna sé núna að skila sér í allt of
miklu álagi með tilheyrandi veik-
indum kennara.
„Það hefur blasað við í mörg ár
að stéttin er ekki að endurnýja sig
og við sáum fram á mjög alvar-
legan kennaraskort strax árið 2013.
Samningurinn sem kennarar gerðu
þá var mjög umdeildur en þar var
aðalatriðið það að elstu kennararn-
ir tóku að sér að kenna miklu fleiri
stundir en þeir höfðu gert fram að
því. Þeir kennarar sem ekki skrif-
uðu upp á það fengu ekki hækkan-
ir og eru því verst launaðir í dag.
Í raun og veru fjármögnuðu elstu
kennararnir hækkanirnar síðast
með meiri vinnu. Það er að koma
Kennarar eru að brenna út
í bakið á okkur núna með veikind-
um kennara. Það hefur sýnt sig í
Reykjavík þar sem langtímaveik-
indi hafa aukist stórkostlega. Fólk
er einfaldlega að gefast upp und-
an álagi og það þarf ekki marga
kennarar í veikindaleyfi í einum
skóla til að álagið verði miklu meira
álag á alla. Rannsóknir hafa sýnt
að það tekur ungan kennara örfá
ár að brenna út sem getur að hluta
til verið ástæða þess hversu illa
gengur að halda í unga fólkið. En
svo geta gamalgrónir kennarar líka
brunnið út á ógnarhraða ef aðstæð-
urnar verða yfirþyrmandi og það er
að gerast út um allan bæ.“
Mikið af nemendum í vanda
Ragnar segir niðurskurð eftir efna-
hagshrunið ekki einungis hafa bitn-
að á kennurum heldur einnig nem-
endum. „Hrunið bitnaði mjög illa á
ákveðnum þjóðfélagshópum. Þau
vandamál hafa skilað sér á einn eða
annan hátt inn í skólana og sérstak-
lega vegna þess að sveitarfélögin
brugðust við hruninu með því að
skera niður allt sem mögulega var
hægt að skera niður, þar á meðal
stuðning við nemendur í vanda.
Þannig að þetta blandast þarna allt
saman, efnahagshrunið, hár með-
al aldur stéttarinnar og lítil endur-
nýjun. Staðan hefur ekki verið jafn
alvarleg í mörg ár.“
„Fólk er einfaldlega að gef-
ast upp undan álagi og það
þarf ekki marga kennara í
veikindaleyfi í einum skóla
til að álagið verði miklu
meira álag á alla.“
Mikill hiti var í kennurum við Norðilingaskóla
þegar Fréttatíminn mætti á staðinn á þriðju-
dag. Í gær, miðvikudag, sögðu tólf kennarar við
skólann starfi sínu lausu.
Ragnar Þór segir alvarlegan kennaraskort hafa blasað við síðan 2013. Hann er
einn þeirra tólf kennara sem sögðu upp í gær, miðvikudag.