Fréttatíminn - 03.12.2016, Page 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
Thera°Pearl margnota
hita- og kælipúðarnir
eru hannaðir af læknum.
Thera°Pearl eru með ól
sem auðveldar meðferð
meðan á vinnu eða leik
stendur.
Jólagjöfin
í ár
Einhver þarf að taka sæti í ríkisstjórn og stjórnarmyndun gengur víst eitthvað illa. Allt er
komið í hnút. Fréttatíminn leitaði eftir hugmyndum að ráðherrum hjá vel völdum hópi fólks.
Má bjóða þér ríkisstjórn?
Atvinnuvegaráðherra
„Bubbi Morthens fær sjávarútvegs-
ráðuneytið og hugar að aðbún-
aði fiskverkafólks í þeirri vinnu
og aðlagar fluguveiði að nýtingu
tegunda í hættu. Verðandi fyrrver-
andi yfirmaður Matvælastofnunar
ætti að fara í landbúnaðarráðu-
neytið og halda þar áfram að bíða.
Það er hvort sem er búið að binda
þetta í tíu ár.“
Pétur Grétarsson
„Auðvitað verður að vera Eng-
eyingur í stjórninni. Guðrún
Pétursdóttir líffræðingur er fram-
úrskarandi sérfræðingur.“
Árni Snævarr
„Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son er skarpur og þvert á fréttir af
honum er hann ekki fégráðugur
maður.“
Jónína Benediktsdóttir
„Dr. próf. Jón Steinsson í New York
hefur nú sannað sig í frábærum
greinum í blöðum um þessa mála-
flokka. Það hefur enginn getað
mátað þennan þegar hann t.d.
tekur kvótakerfið og misskiptingu
tekna og eigna í gegn.“
Hans Kristján Árnason
„Kött Grá Pé. Hann er mikill
dýravinur og hefði aldrei leyft
Brúneggjabræðrum að pína hæn-
ur.“
Jón Mýrdal
Iðnaðar-og viðskipta-
ráðherra
„Helgi Hrafn Gunnarsson hefur
nýja sýn á atvinnuvegi og iðnað.
Hann mun virkja mannauðinn en
ekki eyðileggja auðlindirnar, og
taka á ferðaþjónustuvandanum.“
Unnur
Þóra Jökulsdóttir rithöfundur
„
Halla Helgadóttir hefur staðið sig
frábærlega sem framkvæmdastýra
Hönnunarmiðstöðvar, er skýr og
skorinorð og ætti að þekkja vel
möguleikana sem felast í hug-
verkaiðnaðinum.“
Úlfur Eldjárn
Frosti Sigurjónsson. „Frosti stóð
sig vel sem þingmaður og var
nokkuð óumdeildur og myndi
vafalaust standa sig vel sem iðnað-
arráðherra.“
Vilhjálmur Birgisson
„Margrét Erla Maack því hún er
iðin og kann að skapa tækifæri
hvar og hvenær sem er.“
Jón Mýrdal
„Þorsteinn Víglundsson . Fyrir
atvinnulífið.“
Unnsteinn Manuel Stefánsson
„Í því ráðuneyti væri ég til í að sjá
Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur
– bara henda henni út í djúpu
laugina. Hún mun synda í land.
Hlynur Sigurðsson
Fjármálaráðherra
„Myndi treysta Katrínu Jakobs til
að halda rétt um málin.“
Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður
Dómnefnd:
Pétur Grétarsson tónlistarmaður, Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur, Árni Snævarr blaðamaður, Jónína Benediktsdóttir
heilsufrömuður, Úlfur Eldjárn tónskáld, Arnþrúður Karlsdóttir útvarpskona, Hans Kristján Árnason skáld, Þórður Snær
Júlíusson blaðamaður, Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður, Ingimar Karl Helgason blaðamaður, Unnur Þóra Jök-
ulsdóttir rithöfundur, Unnsteinn Manuel Stefánsson hljómsveitarstjóri, Rut Hermannsdóttir athafnakona, Lára Björg
Björnsdóttir, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður, Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi, Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
fjölmiðlakona, Jón Mýrdal bareigandi, Grímur Atlason athafnamaður, Hrafnkell Sigurðsson hljóðmaður, B rynjar Örnuson,
grafískur hönnuður, Jón Örn Loðmfjörð skáld, Ingi Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri, Hildigunnur Sverrisdóttir arki-
tekt og Hlynur Sigurðsson fjölmiðlamaður.
„Guðrún Johnsen háskólakennari.
Hún hefur vakið athygli fyr-
ir fræðilega gagnrýni á þá þætti
í íslensku efnahagslífi sem ollu
hruninu.“
Árni Snævarr
„Það er löngu kominn tími til að
við hvílum okkur á hagkerfi taln-
anna. Sigurður Pálsson er sá mað-
ur sem ég treysti best til að endur-
hugsa hagkerfi byggt á orðum,
póesíu og listrænu gildi.“
Úlfur Eldjárn
„Ólafur Ísleifsson hefur góða þekk-
ingu á fjármálakerfinu og mikil-
vægi þess að tekið sé á okurvöxt-
um og verðtryggingu hér á landi.“
Vilhjálmur Birgisson
Pawel Bartoszek. Bara svo að
fólk muni að skiptingin hægri og
vinstri er ennþá gild. Vinstri-krat-
ar munu læra góða lexíu af þessu.
Jón Örn Loðmfjörð
Brynjar Níelsson yrði geggjaður
fjármálaráðherra. Grjótharður og
ekkert kjaftæði.
Hlynur Sigurðsson
„Það þarf að vera pólitíkus í fjár-
málaráðuneytinu og sá þarf að
vera með hjartað á réttum stað
og heila í hausnum. Með Katrínu í
forsætisráðuneytinu koma fáir til
greina aðrir en Óttarr.“
Ingimar Karl Helgason
„Jón Steinsson. Tökum þetta á
næsta „level“.“
Grímur Atlason
Félagsmálaráðherra
„Einhver sem er að leigja. Alveg
sama hver.“
Lára Björg Björnsdóttir
„Fransisca Mwansa, starfskona í
Bónus, er manneskja með ótrúlega
meðfædda samskiptahæfileika og
býr örugglega yfir sterkri sam-
kennd. Þekkir málaflokkinn ör-
ugglega vel eftir að hafa afgreitt og
spjallað við ólíkasta fólk í verslun-
um Bónus og veit hvernig er að lifa
af láglaunastarfi og hvernig er að
vera ný á Íslandi.“
Úlfur Eldjárn
„Eygló Harðardóttir fær áfram að
halda á óreiðunni og aðgerðarleys-
inu sem hún skóp á síðasta kjör-
tímabili. Vegna þess að það leggur
enginn annar í þetta verkefni.“
Þórður Snær Júlíusson
Ólafur Arnarson. „Ólafur hefur
mikinn skilning á félagsmálum og
mikilvægi þess að tekið sé á hags-
munum þeirra sem höllum fæti
standa í íslensku samfélagi.“
Vilhjálmur Birgisson
„Halldóra Geirharðsdóttir. Ræð-
urnar hennar segja manni hvað
hún yrði góður félagsmálaráð-
herra. Þolir ekki misrétti.“
Jón Mýrdal
Forsætisráðherra
„Davíð Oddsson hefur aldur og
reynslu og þrífst ekki á peningum
sjálfur.“
Jónína Benediktsdóttir
„Lars Lagerbäck er með allt á
hreinu og myndi ekki vaða með
okkur í annað hrun.“
Jón Mýrdal
„Katrín jakobsdóttir. Augljóst val.
Liggur beint við. Hún ber af.“
Eiríkur Guðmundsson
„Katrín Jakobs er leiðtoginn sem
nýja Ísland kallar eftir.“
Unnsteinn Manúel Stefánsson
„Katrín Jakobsdóttir er yfirburða
þingmaður gáfuð og eðlileg mann-
eskja.“
Þorkell Máni Pétursson
„Bjarni Ben. – Stjórn landsins er
ekki ólík kökubakstri og þar er
minn maður á heimavelli.“
Hlynur Sigurðsson
Heilbrigðisráðherra
„Heilbrigðismálin klárlega best
komin í höndum hinnar flug-
mælsku Ingu Sæland. Leyfa flokki
fólksins að tala fyrir þrjú pró-
sentin ... og eða félagsmálin.“
Pétur Grétarsson
„Kári Stefánsson. Fyrst hann hef-
ur svona ofboðslega miklar skoð-
anir á því hvernig þetta á að vera,
hvernig væri að hann tæki bara að
sér að endurreisa heilbrigðiskerf-
ið? Hann kæmist ekki upp með
sitja með hendur í skauti eftir þau
stóru orð sem hann hefur haft um
málaflokkinn.“
Úlfur Eldjárn
„Tómas Guðbjartsson hefur skiln-
ing á málaflokknum og fram-
kvæmir það sem hann trúir á.“
Unnur Þóra Jökulsdóttir
„Kári Stefánsson hefur sýnt það
í verki að hann vill endurreisa
íslenska heilbrigðiskerfið og gera
það öflugt þjóðinni til heilla.“
Vilhjálmur Birgisson
„Solla í Gló því hún myndi fara í
fyrirbyggjandi aðgerðir og minnka
þörfina á heilbrigðisþjónustu.“
Jón Mýrdal
„Oddný Harðardóttir. Er ekki í
pólitík fyrir völd heldur til þess að
gera samfélagið betra. Yrði frek á
peninga í þennan málaflokk.“
Þorkell Máni Pétursson
„Klárlega Kári Stefánsson. Harð-
ur baráttumaður sem gæti valtað
yfir stjórnmálaöflin í landinu sem
hingað til hafa valtað gjörsamlega
yfir þennan málaflokk.“
Ingi Rafn Sigurðsson,
„Kári Stefánsson „Put your money
where your mouth is.“
Brynjar Örnuson Guðnason
Innanríkisráðherra
„Óttarr Proppé. Steinliggur, skoð-
ið framgöngu á þingi.“
Hildigunnur Sverrisdóttir
„Þórunn Ólafsdóttir baráttukona.
Þórunn er eins manns hjálparsam-
tök sem fer um heiminn og berst
fyrir málefnum flóttafólks.“
Lára Björg Björnsdóttir
„Ragnar Aðalsteinsson. Þetta
ráðuneyti er búið að vera í ruglinu
of lengi. Það þarf alvöru mann-
eskju þangað inn. Ragnar er
orðinn fullorðinn en aldur er af-
stæður.“
Grímur Atlason
„Manni finnst einhvernveginn
að þar ætti að vera hjartahreinn
lögfræðingur. Af þeim er víst nóg.
Kannski Ragnar Aðalsteinsson
væri góður þar með svona lands-
lið umboðsmanna allra stétta og
greina -manna og -dýra á bak við
sig.“
Pétur Grétarsson