Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég
spjalla við fólk sem þarf að aka
langar vegalengdir eða sinna
einhæfum störfum og kemst að
því að það hlustar ekki á hlað-
vörp til þess að stytta sér stundir.
Svo djúpt er ég sokkin að ég á
orðið erfitt með að sinna verkum
sem krefjast ekki mannlegra
samskipta án þess að vera með
malandi hlaðvarpsraddir í þráð-
lausu heyrnartækjunum.
Berglind Björk Halldórsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Undanfarið hef ég verið mikið
í því að búa um rúm og þrífa her-
bergi eftir íveru ferðamanna. Það
er ágætis búbót en hvorki sérlega
skemmtileg iðja né auðgandi fyrir
andann. Þegar við bætast almenn
heimilisstörf og önnur leiðindi að
vinnu lokinni geta brúnirnar verið
fljótar að þyngjast. Það er hægt að
lífga upp á daginn með reglulegum
innlitum á samfélagsmiðla en þar
til ég kynntist hlaðvörpum fannst
mér skorta verulega á dýptina. Ég
nenni ekki lengur að hlusta á yfir-
borðskennt kurteisishjal dægur-
málaþátta eða pólitískt þras frétta-
tíma. Nú hlusta ég tímunum saman
á fólk sem fellir grímuna á bakvið
upptökutækið, talar af óheflaðri og
óritskoðaðri ástríðu um það sem
það hefur áhuga á og gaman af og
skellir því á netið í formi streym-
andi hljóðskráa.
Öldur þessa nýja ljósvaka hafa
fært mikla gleði og birtu inn í hvers-
dagsleikann og nú skelli ég oft á
tíðum upp úr við klósettþrifin og
fæ gæsahúð við þvottafráganginn.
Umferðin fer ekki í taugarnar á mér
lengur, biðröðin við kassann í mat-
vöruversluninni er allt of stutt og
ég sit stundum áfram í bílnum fyrir
framan húsið mitt þar til heimilis-
fólkið fer að vinka mér í glugganum.
Ég lít ekki á hlustunina sem tímasó-
un og innantóma afþreyingu held-
ur frábæra nýtingu á annars van-
nýttum tíma. Í gegnum leiftrandi
fyndna og klára persónuleika má
fræð-
ast og
fá góða til-
finningu fyr-
ir samfélaginu,
heimsmálunum, menningunni og
alls konar furðuhlutum eftir smekk
hvers og eins.
Það eru vel yfir hundrað þúsund
virkar hlaðvarpsþáttaraðir í boði á
ensku og tugir íslenskra. Ótalinn
er gríðarlegur fjöldi þáttaraða sem
hafa runnið sitt skeið en það má
finna ýmsa fjársjóði með því að
hlusta aftur í tímann. Ég hef ekki
enn nema rétt gárað yfirborðið
og birti hér einungis lista yfir þau
hlaðvörp og hlaðvarpsflokka sem
ég hlusta mest á í augnablikinu
og endurspegla mín eigin hugðar-
efni (engar íþróttir eða pólitík) en
að sjálfsögðu má finna og nálgast
þáttaraðir um allt milli himins og
jarðar með leit í podcast smáforrit-
um. Einnig er hægt er að fá góðar
ábendingar í hlaðvarpshópum á
fésbókinni. Gleðilega hlustun.
Hlaðvarp Frábær nýting
á vannýttum tíma
EFTIR AÐ BERGLIND BJÖRK HALLDÓRSDÓTTIR UPPGÖTVAÐI ÞENNAN
NÝJASTA LJÓSVAKA SKELLIR HÚN UPP ÚR VIÐ KLÓSETTÞRIF, FÆR
GÆSAHÚÐ VIÐ ÞVOTTAFRÁGANG OG ELSKAR AÐ BÍÐA Í BIÐRÖÐUM.
Viðtöl
WTF with Marc Maron er gamalgróið og virt hlaðvarp en grínistinn
og rithöfundurinn Marc Maron er skemmtilegur spyrjandi sem hefur
einstakt lag á því að fá fræga gesti til þess að slaka á og opna sig meira
en þeir gera í viðtölum við aðra miðla. Meira að segja fráfarandi forseti
Bandaríkjanna hefur komið og veitt viðtal í bílskúrnum heima hjá hon-
um í Los Angeles þar sem hann tekur upp þættina. Marc er hreinskilinn
og heimspekilegur og skammast sín
ekkert þótt það komi fyrir að hann
tárist með viðmælendum sínum þegar
þannig blæs í seglin.
Áhugavarpið með Ragnari Hans-
syni kvikmyndaleikstjóra er dæmi um
góðan viðtalsþátt sem gerður er hér á
landi. Þetta var einn af fyrstu þáttun-
um sem fóru í gang á hlaðvarpsþjón-
ustunni Alvarpinu og ræðir hann í
þeim „við áhugavert fólk um áhuga af
áhuga“ eins og upphafsorð hvers þátt-
ar hljóða.
Vísindi og
fróðleikur
Stuff you Should Know eru
stuttir og heillandi þættir sem
leitast við að útskýra á einfald-
an hátt allt sem þú vissir ekki
að þú hefðir áhuga á að vita
um. Þarna má meðal annars
finna umfjallanir um þrívíddar-
prentun, marglyttur, snáka-
temjara, fellibylji, loftbelgi,
pez-karla, bréfdúfur, kóngulær
og brenninetlur, svo eitthvað
sé nefnt. Hlaðvarpið er hluti af
fræðslusíðunni Howstuffworks.
com sem birtir greinar, mynd-
bönd og önnur hlaðvörp sem
varpa ljósi á það hvernig
heimurinn virkar.
Mynd | Rut
7.999 kr.
BRISTOL f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - f e b rú a r 2 0 1 7
7.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
9.999 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
9.999 kr.
DUBLIN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
EDINBORG f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
5.999 kr.
STOKKHÓLMUR f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - a p r í l 2 0 1 7
Halló
Evrópa!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.