Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 56
56 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
Nammi sem þjóðin saknar
Margir eftirlætis
molar þjóðarinnar
hafa horfið úr hillum
verslana og er mikill
söknuður í hjörtum
þjóðarinnar. Frétta
tíminn fór í rannóknar
leiðangur og
tók saman eftir
lætis týndu mola
þjóðarinnar.
Tromp
Hver elskar
ekki silki
mjúkt
súkkulaði
með ljúfu
marsipani og lakkrís?
Tromp hvarf úr hillunum fyrir
stuttu og er þjóðin í sorg.
Skólajógúrt
Jógúrt með lakkrísbragði, það
verður ekki betra. Umbúðirn
ar gefa flestum börnum sem
fædd eru á tíunda áratugnum
nostalgíu sæluhroll.
Sítrónusvali
Fallega sítrónan sem prýddi svala
fernu Sítrónusvala hvarf fyrir
nokkrum árum. Íslendingar syrgja
að svala sér á heitum sumardegi
með súrum ísköldum Sítrónusvala,
fullum af sykri.
Bleiku brjóstsykrarnir
Súrir að utan, sterkir
að innan. Þjóðin græt
ur þennan fullkomna
gullmola.
Töggur
Karamella
með allskyns
bragði sem
töggur er í.
Hi-C
Besti drykkurinn
fyrir þá sem elska
sykurdrykki. Enginn
furða að hans sé sárt
saknað.
Hið hefðbundna heimboð forseta
Íslands til Bessastaða á fullveld
isdaginn fór fram í vikunni. Glatt
var á hjalla og var þetta í fyrsta
skipti sem Guðni Th. forseti tekur
á móti þingmönnum á fullveld
isdaginn.
Einhverjir viðstaddra tóku ljós
myndir af gleðinni, þar á með
al þessa mynd sem virðist þó
hafa valdið einhverjum óánægju
og hneykslun. Á myndinni sést
þingmaður Pírata, Ásta Guðrún
Helgadóttur, gera að gamni sínu
án vitundar Guðna Th. og gera
kanínueyru með fingrunum bak
við forstetann. Þeir Guðni Th. og
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður
Vinstri Grænna virtust ekki taka
eftir neinu.
Deila má um hvort háttalag
þingkonunn
ar hafi verið
fyndið eða
dónalegt.
Sitt sýnist
hverjum. |
bg
Píratapönk á Bessastöðum
Ásta Guðrún gerir
kanínumerki fyrir
aftan forsetann.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Okkur finnst að það sé vöntun á tengingu og nánd. Maður eru að setja sig á svið á mörg
um stöðum og oft mismunandi
útgáfur af sjálfum sér. Það er
vöntun á alvöru tengingu í þeim
heimi sem við lifum í í dag.
Við erum alltaf tengd en samt
einangruð. Í verkinu okkar er
manneskjan bara í tveimur
hlutverkum, annað hvort áhorf
andi eða listamaður. Getur
hver sem er myndað nánd með
hverjum sem er? Hvað græð
um við á því sem manneskjur í
þessum heimi að skapa nánd?,“
segir Alma Mjöll Ólafsdóttir, ein
úr hópi nemanda Listaháskól
ans sem setur upp níu klukku
tíma sýningu í leigðu húsnæði í
Hafnarfirði í næstu viku.
Hópurinn hefur unnið að
því síðustu vikurnar að rann
saka hvað nánd er og hvernig
hún myndast. ,,Ferlið okkar er
byggt á eigin reynsluheimi og
rannsóknum sem hafa verið að
fjalla um nánd. Einnig fengið
mikla hjálp frá sálfræðingum.
Við bjóðum áhorfandanum inn
í rannsóknarferli. Við vitum
ekki niðurstöðuna, við ætlum
að reyna að finna niðurstöðuna
með áhorfandanum.“ Sýningin
fer þannig fram að áhorfanda er
boðið að eyða nótt með ókunn
ugum listamanni í þeim tilgangi
að rannsaka hvort sé hægt að
skapa nánd með ókunnugri
manneskju yfir aðeins eina
nótt. „Nánd er eitthvað sem
skapast milli tveggja einstak
linga, það er ekki eitthvað sem
gerist í hópi.’“
„Vinsælasta orð Oxford
orðabókarinnar 2016 er „post
truth“ eða síðsannleikur. Fólk
vill frekar lifa í hugmyndum
en raunveruleikanum. Sann
leikurinn er hættur að skipta
máli. Fólk á erfitt með að setja
puttann á hvað er raunverulegt
og hvað ekki. Allt sem við vilj
um í þessum heimi er tenging.
Hugmyndin er að maður þurfi
að afhjúpa sjálfan sig til að finna
fyrir nánd með annari mann
eskju en hvernig gerum við það
í heimi þar sem sviðsetning
sjálfsins er svona flókin? Þetta
eru spurningar sem við leitum
svara við í verkinu,“ segir Alma
Mjöll.
Eyða heilli
nótt með
áhorfandanum
Nemendur Listaháskólans leita að nánd
og afhjúpun sjálfsins.
Alma Mjöll Ólafsdóttir, Ástrós Guðjónsdóttir, Gígja Sara Björnsson, Kari Vig
Petersen og Rita Maria Farias eyða nóttinni með ókunnugum í leit af nánd.
Mynd | Rut
Kanínumerki fyrir aftan forsetann.