Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 54
54 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
Þú hefur tíma
fyrir þessar
bækur
Þessi texti er 140 slög, eins og gott tíst. Bækur
eru langar og lestur bóka tekur tíma, lengri tíma
en að lesa tíst. Hér eru #nokkrarstuttar.
Takk fyrir að láta mig vita
Smásögur eftir Friðgeir Einarsson.
Sviðslistamaðurinn Friðgeir býður í sinni fyrstu bók
upp á smámyndir úr daglegum veruleika víða um lönd.
Hversdagsleikinn er margslung nari en margur heldur
og það sannast hér. Sögurnar lifa með manni og margt
liggur milli línanna á þessum 144 blaðsíðum.
Kompa
Skáldsaga eftir Sigrúnu Pálsdóttur.
Ung fræðikona vinnur að doktorsritgerð en uppgötvar
að hún er byggð á sandi. Hún hrekst heim til Íslands og
tekur upp þráðinn í samskiptum sínum við ýmsa í lífi
sínu. Bók er oft dálítið dularfull, fjölbreytt í stíl og því
gott að lesa hana hægt og njóta stílbragðanna. Hún er
168 bls.
Ránið á Húnboga Höskulds syni
alþingismanni
Skáldsaga eftir Ófeig Drengsson.
Nokkrir vinir eru að drekka bjór í miðbænum áður en
þeir halda í veiðiferð vestur á firði. Á leiðinni bjóða þeir
Húnboga Höskuldssyni, þingmanni Framsóknarflokks-
ins, far heim en ákveða svo að sleppa honum ekki. Þeir
vilja heldur rökræða pólitík við þingmanninn. 82 bls.
Ljón norðursins
Ævisaga eftir Bjarka Bjarnason
Ævisögur geta verið forvitnilegar og skemmtilegar,
sérstaklega um forvitnilegt fólk. Leó Árnason (1912-
1995) var svo forvitnilegur að hann tók sér lista-
mannsnafnið Ljón norðursins. Hann auðgaðist á
viðskiptum en snéri sér svo að listinni af fullum
þunga. Nóg af myndum á 120 síðum.
Samskiptaboðorðin
Handbók eftir Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur.
Það er nauðsynlegt að átta sig á því hvernig við höfum
samskipti. Hér er þessum samskiptum lýst og aðferð-
ir settar fram sem gætu bætt þau, en eins og við vitum
hefur fátt meiri áhrif á líðan okkar en einmitt sambandið
við annað fólk. Þetta er gert upp á 184 síðum.
Hestvík
Skáldsaga eftir Gerði Kristnýju.
Í sumarbústaðalandi í Grafningnum kemur fólk til
að vera í friði með minningar sínar og leyndarmál
á meðan dagarnir styttast. Gerður Kristný fjallar í
þessari þriðju skáldsögu sinni fyrir fullorðna um
skilin milli barnæsku og fullorðinsára og hvernig
við upplifum æsku okkar. 163 bls.
Draumrof
Skáldsaga eftir Úlfar Þormóðsson.
Hvað gerir maður þegar fyrrum vinur manns skrifar
bók um atvik úr lífi manns? Í þessari bók ákveður
söguhetjan að brjótast inn í tölvu rithöfundarins og
upplýsa lesandann um hvað hann finnur þar. Jafn-
framt því er best að segja satt og rétt frá eigin ævi.
Segja frá velgengni og falli, óbærilegum harmi og
djúpstæðri sátt. 157 bls.
Sonnettan
Skáldsaga eftir Sigurjón Hjartarson.
„Land, þjóð og tunga – þrenning sönn og ein,“ segir í
frægri sonettu skáldsins Snorra Hjartarsonar. Sigur-
jón Magnússon veltir fyrir sér hvernig þessi orð ríma
við fjölmenningu dagsins í dag. Deilur um þetta verða
svo miklar innan menntaskólans þar sem söguhetjan
Tómas starfar að hann hrökklast úr starfi og alla leið
til Spánar. Á Spáni stækkar spurningin um hvað sé til
í orðunum úr sonettunni í huga Tómasar. 160 bls.
Sturlugötu 5, 101 Reykjavík, Sími: 5517030, www.nordichouse.is
Höfundakvöld
Katarina Frostenson
5. desember kl. 19:30
Katarina Frostenson hefur um árabil verið meðal
virtustu ljóðskálda Norðurlanda. Hún hlaut nýlega
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2016 fyrir ljóða
bókina Sånger och formler. Hún hefur frá árinu 1992 verið
meðlimur í Sænsku akademíunni og tekur þar með þátt í vali
á handhafa Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum ár hvert.
Frá haustinu 2015 hefur Norræna húsið staðið
mánaðarlega fyrir höfundakvöldum með spennandi
norrænum höfundum.
Veitingastaðurinn Aalto Bistro hefur opið fyrir matargesti og býður upp
á ljúffengan kvöldverð og smárétti.
Streymt verður frá viðburðinum frá www.nordichouse.is
Dagskráin fer fram á sænsku. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Höfundur sigurverks Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016
L E D L Ý S I N G Í
S K Ó L A ,
Í Þ R Ó T TA H Ú S
O G H E I M I L I
LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS
www.ledljós.is
S; 565 8911 - 867 8911
ludviksson@ludviksson.com
LEDLJÓS SPAR A
ALLT AÐ
80 - 92% ORKU
Gæði - Ábyrgð 3-8 ár - Bestu verðin
Ludviksson_Mbl 16052016.indd 1 16.5.2016 10:58:32