Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 03.12.2016, Page 20

Fréttatíminn - 03.12.2016, Page 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016 „Saga afa er saga Kópavogs“ Þau voru ekki endilega stór húsin sem risu fyrst í þéttbýlinu á Digraneshálsi. Síðar, þegar hagur íbúanna vænkaðist, voru þau oft stækkuð og endurnýjuð. „Þessi saga fyrstu áranna í þéttbýl- ismyndun Kópavogs byggir á minni fjölskyldusögu sem ég hef verið að rannsaka síðustu ár. Sveinn Móses- son, afi minn, var meðal þeirra fyrstu sem byggðu sér hús í Kópa- vogi þegar þéttbýli tók að myndast þar. Við vorum mjög nánir á sínum tíma þó að langt sé milli kynslóða, hann fæddur 1907 en ég 1971. Ég fékk gamla tímann eiginlega beint í æð frá honum og held að hann hafi kveikt hjá mér sagnfræðiáhugann. Hann sagði mér til dæmis sögur af Guttóslagnum og þessar sögur heill- uðu mig mikið,“ segir Leifur Reyn- isson. Önnur bókin um afa Leifur segir að afi sinn, Sveinn, hafi verið fróður alþýðumaður og þegar Kópavogur er næst fjölmenn- asta sveitarfélag landsins, á eftir höfuðborginni. Þar búa nú ríflega 34 þúsund manns og enn stækk- ar bærinn. Þéttbýlismyndun í bænum á sér hins vegar ekki ýkja langa sögu. Hún hófst á 4. áratug síðustu aldar og kaupstaðar- réttindi hlaut Kópavogur ekki fyrr en árið 1955. Þá voru íbúarnir 3783 talsins. Leifur Reynisson sagnfræðingur hefur verið að kanna þessa sögu á undanförnum mánuðum og hann speglar hana í gegnum sögu afa síns, Sveins Mósessonar. Leifur hefur nú ritað bókina Landnemar í Kópavogi. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is kom að því að rannsaka sögu hans fór Leifur í stóran frændgarð sinn til að leita efnis, finna ljósmyndir og safna sendibréfum og alls konar pappírum og taka viðtöl við þá sem mundu gamla tíma. „Þessi bók er verk númer tvö þar sem ég skrifa um afa minn,“ segir Leifur. „Ég hef líka skrifað um fyrstu árin í lífi hans vestur á fjörðum þar sem ég spegl- aði sögu hans í samfélagsbreyting- um á fyrstu áratugum 20. aldar. Ég dró fram mynd af umbreytingu frá bændasamfélagi og yfir í nútíma- þjóðfélagið sem þá var að hefja inn- reið sína. Síðar er afi meðal allra fyrstu frumbyggja Kópavogs þegar hann byggir sér hús þar á árunum 1937- 38. Ég fann myndir frá þessum tíma á filmum í gömlum vindlakassa og sá að þær vörpuðu ljósi á þess- ar breytingar sem ekki hefur ver- ið skrifað mikið um, það hvernig Kópavogur verður til út af ákveðn- um félagslegum og sögulegum að- stæðum.“ Kópavogur úr kreppu Leifur nálgast því sögu Kópavogs í gegnum Svein afa sinn og bróður hans, Finnjón Mósesson. Báðir voru þeir málarar sem komu sér upp húsi í Kópavogi. „Þéttbýli í Kópavogi kemur til upp úr kreppunni miklu í upphafi fjórða áratugarins,“ seg- ir Leifur. „Þetta var ótrúlega mikil sveit á þessum árum og þarna var fólk að koma undir sig fótunum sem ekki náði í lóð eða húsnæði í Reykja- vík. Þannig féll afi í þann flokk sem var oft kallaður „landshornaflakk- ararnir á hálsinum“ en þar var vísað til Digraneshálsins, þar sem byggðin byrjaði fyrst. Sögulegur bakgrunnur þéttbýlis í Kópavogi var sá að stjórn hinna vinnandi stétta (sem var við völd 1934-38) ákvað að skipta upp og deila út tveimur ríkisjörðum, Kópa- vogsjörðinni og Digranesjörðinni. Þetta voru stórar jarðir en ekki sér- staklega merkilegar bújarðir. Upp- skiptin voru með tvennum hætti: stærri nýbýli sem voru norðan við núverandi Nýbýlaveg og síðan blett- ir sem voru sunnan megin Nýbýla- vegar og hver þeirra var einn hekt- ari að stærð. Þetta var í raun ein af kreppuráðstöfun stjórnvalda á þessum tíma. Afi fékk einn af þess- um hekturum og það fylgdi sú kvöð að viðkomandi varð að rækta sinn hektara upp á tíu árum, en heilsárs- hús voru ekki leyfð. Á þessum tíma var Kópavog- ur hluti af Seltjarnarneshreppi og þar vestur frá var mönnum ekki að skapi að íbúar færu að reisa sér íbúðarhús í Kópavogi. Húsnæðis- hallærið var hins vegar svo mikið Það var berangurslegt á Digraneshálsi þegar fyrstu húsin risu þar. Landslagið var stórgrýtt og íbúarnir höfðu mikið fyrir að sprengja og brjóta niður klappir og kletta. Hér eru Guðdís og Reynir á mynd. Amma og faðir Leifs Reynissonar. að margir freistuðust til þess. Það er síðan ekki fyrr en Kópavogur slitnar frá Seltjarnarnesi og verður hrepp- ur, 1948, að upp koma stórfelld áform um að mynda kaupstað.“ Reiðhjólið nauðsynlegt Leifur segir ljóst að reiðhjólið hafi verið forsenda þess að byggð mynd- aðist svo snemma í Kópavogi. „Á þessum fyrstu árum var, eðli máls- ins samkvæmt, enga vinnu að fá í Kópavogi og margir þeirra sem þar byggðu höfðu ekki ráð á bif- reiðum á þessum árum og því var reiðhjólið hið mesta þarfaþing. Sú var til dæmis reyndin með afa minn sem sótti vinnu sem málari inn til Reykjavíkur. Þannig að fyrstu árin var bara hjólað þarna á milli. Í upphafi skorti margt í þessum búskap. Vatn urðu menn sér úti um með því að grafa brunn, afi var með vindmyllu til að framleiða rafmagn í lýsingu og hópferðir voru farnar í þvottalaugarnar fyrstu árin. Á stríðs- árunum kemur rafmagn í húsin, síð- an vatnsveita og skólp og loks skóli í bæinn eftir stríð, 1949. Þessum breytingum og þróun á þjónustu og auknum bæjarbrag lýsi ég í bókinni. Ég sá bara að saga afa og ömmu, Guðdísar Guðmundsdóttur, spann- aði eiginlega alveg sögu bæjarfélags- ins og þess vegna brá ég á það ráð að tengja þetta svona saman.“ Mynd | Hari Leifur Reynisson sagnfræðing- ur hefur fundið samhljóm í sögu afa síns og ömmu og sögu Kópavogs. Afi hans, Sveinn Móseson, fór til vinnu í Reykja- vík á reiðhjóli þegar þéttbýli var að myndast í þessum bæ sem í dag er annað fjölmenn- asta sveitarfélag landsins. ÁTT ÞÚ RÉTT Á SLYSABÓTUM? Tryggvagata 11 | 551 6412 | Vogun.is | Vogun@vogun.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.