Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
„Saga afa er saga Kópavogs“
Þau voru ekki endilega stór húsin sem risu fyrst í þéttbýlinu á Digraneshálsi.
Síðar, þegar hagur íbúanna vænkaðist, voru þau oft stækkuð og endurnýjuð.
„Þessi saga fyrstu áranna í þéttbýl-
ismyndun Kópavogs byggir á minni
fjölskyldusögu sem ég hef verið að
rannsaka síðustu ár. Sveinn Móses-
son, afi minn, var meðal þeirra
fyrstu sem byggðu sér hús í Kópa-
vogi þegar þéttbýli tók að myndast
þar. Við vorum mjög nánir á sínum
tíma þó að langt sé milli kynslóða,
hann fæddur 1907 en ég 1971. Ég
fékk gamla tímann eiginlega beint
í æð frá honum og held að hann hafi
kveikt hjá mér sagnfræðiáhugann.
Hann sagði mér til dæmis sögur af
Guttóslagnum og þessar sögur heill-
uðu mig mikið,“ segir Leifur Reyn-
isson.
Önnur bókin um afa
Leifur segir að afi sinn, Sveinn, hafi
verið fróður alþýðumaður og þegar
Kópavogur er næst fjölmenn-
asta sveitarfélag landsins, á eftir
höfuðborginni. Þar búa nú ríflega
34 þúsund manns og enn stækk-
ar bærinn. Þéttbýlismyndun í
bænum á sér hins vegar ekki ýkja
langa sögu. Hún hófst á 4. áratug
síðustu aldar og kaupstaðar-
réttindi hlaut Kópavogur ekki
fyrr en árið 1955. Þá voru íbúarnir
3783 talsins. Leifur Reynisson
sagnfræðingur hefur verið að
kanna þessa sögu á undanförnum
mánuðum og hann speglar hana
í gegnum sögu afa síns, Sveins
Mósessonar. Leifur hefur nú ritað
bókina Landnemar í Kópavogi.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
kom að því að rannsaka sögu hans
fór Leifur í stóran frændgarð sinn
til að leita efnis, finna ljósmyndir
og safna sendibréfum og alls konar
pappírum og taka viðtöl við þá sem
mundu gamla tíma. „Þessi bók er
verk númer tvö þar sem ég skrifa
um afa minn,“ segir Leifur. „Ég hef
líka skrifað um fyrstu árin í lífi hans
vestur á fjörðum þar sem ég spegl-
aði sögu hans í samfélagsbreyting-
um á fyrstu áratugum 20. aldar. Ég
dró fram mynd af umbreytingu frá
bændasamfélagi og yfir í nútíma-
þjóðfélagið sem þá var að hefja inn-
reið sína.
Síðar er afi meðal allra fyrstu
frumbyggja Kópavogs þegar hann
byggir sér hús þar á árunum 1937-
38. Ég fann myndir frá þessum tíma
á filmum í gömlum vindlakassa
og sá að þær vörpuðu ljósi á þess-
ar breytingar sem ekki hefur ver-
ið skrifað mikið um, það hvernig
Kópavogur verður til út af ákveðn-
um félagslegum og sögulegum að-
stæðum.“
Kópavogur úr kreppu
Leifur nálgast því sögu Kópavogs
í gegnum Svein afa sinn og bróður
hans, Finnjón Mósesson. Báðir voru
þeir málarar sem komu sér upp húsi
í Kópavogi. „Þéttbýli í Kópavogi
kemur til upp úr kreppunni miklu
í upphafi fjórða áratugarins,“ seg-
ir Leifur. „Þetta var ótrúlega mikil
sveit á þessum árum og þarna var
fólk að koma undir sig fótunum sem
ekki náði í lóð eða húsnæði í Reykja-
vík. Þannig féll afi í þann flokk sem
var oft kallaður „landshornaflakk-
ararnir á hálsinum“ en þar var
vísað til Digraneshálsins, þar sem
byggðin byrjaði fyrst.
Sögulegur bakgrunnur þéttbýlis
í Kópavogi var sá að stjórn hinna
vinnandi stétta (sem var við völd
1934-38) ákvað að skipta upp og
deila út tveimur ríkisjörðum, Kópa-
vogsjörðinni og Digranesjörðinni.
Þetta voru stórar jarðir en ekki sér-
staklega merkilegar bújarðir. Upp-
skiptin voru með tvennum hætti:
stærri nýbýli sem voru norðan við
núverandi Nýbýlaveg og síðan blett-
ir sem voru sunnan megin Nýbýla-
vegar og hver þeirra var einn hekt-
ari að stærð. Þetta var í raun ein
af kreppuráðstöfun stjórnvalda á
þessum tíma. Afi fékk einn af þess-
um hekturum og það fylgdi sú kvöð
að viðkomandi varð að rækta sinn
hektara upp á tíu árum, en heilsárs-
hús voru ekki leyfð.
Á þessum tíma var Kópavog-
ur hluti af Seltjarnarneshreppi og
þar vestur frá var mönnum ekki
að skapi að íbúar færu að reisa sér
íbúðarhús í Kópavogi. Húsnæðis-
hallærið var hins vegar svo mikið
Það var berangurslegt á
Digraneshálsi þegar fyrstu
húsin risu þar. Landslagið var
stórgrýtt og íbúarnir höfðu
mikið fyrir að sprengja
og brjóta niður klappir og
kletta. Hér eru Guðdís og
Reynir á mynd. Amma og
faðir Leifs Reynissonar.
að margir freistuðust til þess. Það er
síðan ekki fyrr en Kópavogur slitnar
frá Seltjarnarnesi og verður hrepp-
ur, 1948, að upp koma stórfelld
áform um að mynda kaupstað.“
Reiðhjólið nauðsynlegt
Leifur segir ljóst að reiðhjólið hafi
verið forsenda þess að byggð mynd-
aðist svo snemma í Kópavogi. „Á
þessum fyrstu árum var, eðli máls-
ins samkvæmt, enga vinnu að fá
í Kópavogi og margir þeirra sem
þar byggðu höfðu ekki ráð á bif-
reiðum á þessum árum og því var
reiðhjólið hið mesta þarfaþing. Sú
var til dæmis reyndin með afa minn
sem sótti vinnu sem málari inn til
Reykjavíkur. Þannig að fyrstu árin
var bara hjólað þarna á milli.
Í upphafi skorti margt í þessum
búskap. Vatn urðu menn sér úti um
með því að grafa brunn, afi var með
vindmyllu til að framleiða rafmagn
í lýsingu og hópferðir voru farnar í
þvottalaugarnar fyrstu árin. Á stríðs-
árunum kemur rafmagn í húsin, síð-
an vatnsveita og skólp og loks skóli
í bæinn eftir stríð, 1949. Þessum
breytingum og þróun á þjónustu og
auknum bæjarbrag lýsi ég í bókinni.
Ég sá bara að saga afa og ömmu,
Guðdísar Guðmundsdóttur, spann-
aði eiginlega alveg sögu bæjarfélags-
ins og þess vegna brá ég á það ráð að
tengja þetta svona saman.“
Mynd | Hari Leifur Reynisson sagnfræðing-
ur hefur fundið samhljóm í
sögu afa síns og ömmu og sögu
Kópavogs. Afi hans, Sveinn
Móseson, fór til vinnu í Reykja-
vík á reiðhjóli þegar þéttbýli
var að myndast í þessum bæ
sem í dag er annað fjölmenn-
asta sveitarfélag landsins.
ÁTT ÞÚ RÉTT Á
SLYSABÓTUM?
Tryggvagata 11 | 551 6412 | Vogun.is | Vogun@vogun.is