Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
16. nóvember
Andy Woodward, fyrrum leikmað-
ur Bury og Sheffild United, var
fyrstu til að stíga fram og greina
frá misnotkun sem hann varð fyrir
á aldrinum 11 til 15 ára er hann
spilaði fyrir Crew Alexandra.
22. nóvember
Steve Walters kemur fram í kjöl-
farið og segist einnig hafa verið
beittur ofbeldi af hendi Bennell
meðan hann spilaði með Crewe
Alexandra.
23. nóvember
Paul Stewart, fyrrum landsliðs-
maður Englands og leikmaður
Tottenham, greinir frá því að hann
hafi orðið fyrir kynferðislegu of-
beldi af hendi Frank Roper, þjálf-
ara Blackpool, sem að hans sögn
beitti hann ofbeldi daglega í 4 ár.
23. nóvember
David White, fyrrum framherji
Manchester City, skýrir frá því
að hann hafi einnig sætt ofbeldi
af hendi Bennell á sama tímabili
þegar hann spilaði með unglinga-
liði Whithill FC í Manchester.
24. nóvember
The Guardian greinir frá því
að ónafngreindur fyrrum
knattspyrnumaður hafi haft sam-
band við lögreglu og tjáð henni
að hann hafi orðið fyrir misnotkun
af hendi Georgs Ormond, fyrrum
þjálfara unglingaliðs Newcastle
United, en hann var fangels-
aður árið 2002 fyrir brot gegn
ungum knattspyrnudrengjum á
Newcastle-svæðinu.
25. nóvember
Jason Dunford og Chris Unsworth
koma fram í fjölmiðlunum og
segja frá misnotkun af hendi
Bennell þegar þeir voru ungir
leikmenn.
27. nóvember
Anthony Hughes segir í samtali
við The Sunday Mirror að Bennell
hafi misnotað sig þegar þeir sátu í
sófa á meðan hann var í æfinga-
búðum hjá Crewe Alexandra.
27. nóvember
Ian Ackley segir í viðtali við BBC
að hann hafi einnig orðið fyrir
misnotkun af henni Bennell.
ur hann tvívegis verið sakfelldur
í Bretlandi, eða á árunum 1998 og
2015, en þá hlaut hann tveggja ára
dóm fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára
dreng sem átti sér stað 1980.
Síðastliðinn þriðjudag var Benn-
ell síðan ákærður fyrir átta kynferð-
isbrot gegn 14 ára gömlum dreng en
brotið mun hafa átt sér stað á árun-
um 1981 til 1985, Málið verður tekið
fyrir af breskum dómstóli þann 14.
desember.
Það er því ljóst að þrátt fyrir að
Bennell hafi ítrekað komist í kast
við lögin fyrir misnotkun á ungum
drengjum hafi hann fengið að starfa
óáreittur innan íþróttahreyfingar-
innar með börnum. Nokkuð sem
hefur vakið upp miklar spurningar
og harða gagnrýni eftir að málið var
gert opinbert í fjölmiðlum. Margir
af þeim sem stigið hafa fram hafa
greint frá því að það hafi í raun ver-
ið alvitað að Bennell hafði afbrigði-
legar kenndir til drengja en eitt af
því sem knattspyrnusambandið
rannsakar nú eru ásakanir um að
forráðamenn liðanna hafi borgað
ungmennum og foreldrum þeirra
gegn því að tilkynna ofbeldið ekki
til lögreglu.
Sjálfur sagði Bennell, þegar hann
gaf skýrslu fyrir dómi árið 2015, að
hann væri skrímsli en hann var í
kjölfar dómsins settur í ævilangt
bann innan knattspyrnuheimsins.
Hann var látinn laus úr fangelsi fyrr
á þessi ári og tók þá upp nafnið Ric-
hard Jones. Hann býr nú í Bucking-
hamshire og vinnur við að gera við
tölvur. Nýjustu fregnir herma að
hann hafi fundist meðvitundarlaus
á heimili sínu síðastliðinn föstudag
og dvelur nú á sjúkrahúsi. Ekki hef-
ur komið fram hver orsökin er og
hvort hún tengist málinu en lög-
reglan verst allra frétta.
Bauð uppáhöldum heim
Bennell starfaði við að uppgötva
unga hæfileikaríka fótboltamenn og
gat þar af leiðandi spilað stórt hlut-
verk í framtíð ungra drengja. Hann
starfaði lengst af hjá Crew Alex-
andra sem var þekkt fyrir að þjálfa
efnilega fótboltamenn sem margir
hverjir áttu eftir að ná langt innan
íþróttarinnar. Einnig tengdist hann
félögunum Stoke City, Manchester
City og fleiri liðum víðsvegar um
Bretland.
Hann þótti valdamikill inn-
an knattspyrnuheimsins og hafa
margir af leikmönnunum, sem stig-
ið hafa fram, sagt frá því að þeir hafi
verið hræddir um að Bennett kæmi
í veg fyrir frekari frama ef þeir
létu ekki undan kröfum hans. Það
er þekkt að Bennell bauð drengj-
um sem voru í uppáhaldi að gista
heima hjá sér þar sem þeir fengu
Frank Roper, þjálfari unglingaliðs Blackpool, (til hægri á mynd) á að hafa beitt Paul Stewart, fyrrum leikmann enska lands-
liðsins, hrottalegu ofbeldi.
skyndibita, fengu að leika við apa
og hunda sem voru í eigu hans í og
horfðu á hryllingsmyndir. Þeir hafi í
raun fengið að gera allt sem þá lang-
aði til.
Hann átti það til að segja hrika-
legar draugasögur í þeim tilgangi að
vekja upp hræðslu og fá drengina til
að deila með sér rúmi.
Svo virðist sem foreldrar drengj-
anna hafi treyst Bennell og sum-
ir fögnuðu jafnvel athyglinni þar
þeir sem töldu að þetta væri liður
í að auðvelda drengjunum að ná
frama innan íþróttarinnar. Í eitt
sinn tjáði einn drengjanna föður
sínum frá því hvað átti sér stað á
heimili Bennell og gekk þá hópur
foreldra á hann. Mun Bennell hafa
grátið og sagt að hann myndi aldrei
snerta drengina aftur. Foreldrarn-
ir, sem voru áhyggjufullir að ef lög-
reglan kæmist í málið myndi það
hafa slæm áhrif á frama drengjanna
og trúandi því að hann myndi láta
af þessu hátterni, létu málið kyrrt
liggja.
Fleiri íhuga að stiga fram
Allir þeir sem hafa stigið fram
glíma enn við afleiðingar ofbeld-
isins. Ótti, kvíði og skömm hafi lit-
að líf þeirra og hafi haft neikvæð
áhrif á starfsframa og fjölskyldu-
líf. Paul Stewart, fyrrum landsliðs-
maður Englands, segir Frank Roper
skrímsli sem hafi hótað því myrða
fjölskyldu sína. Hann hafi sífellt ver-
ið hræddur og vanlíðanin leiddi til
þess að hann leitaði á náðir eiturlyf-
ja og áfengis. Hann fagnar því að
Woodward hafi stigið fram og hvet-
ur aðra þolendur til þess að gera
það sama.
Í breskum fjölmiðlum kem-
ur fram að f leiri nafntogaðir
knattspyrnumenn íhugi að stíga
fram á næstu dögum og það er ljóst
að málinu er hvergi nærri lokið.
Paul Stewart, fyrrum landsliðsmaður
segir níðinginn hafa hótað að myrða
fjölskyldu sína ef hann segði frá
ofbeldinu.FORDRYKKUR – freyðivín
TE GRAFINN LAX
Skallottukrem, dillmæjó, hrogn, súrdeigs kex
ANDABRINGA
Gulrótarkrem, portvínssósa
ÍSLENSKT LANDSLAG
Nauta tartar, reyktur ostur, rúgbrauð, pikklaður
laukur, ediksnjór
LETURHUMAR
Jólatré og beurre noisette
SVÍNASÍÐA
Reykt sellerí-purée, kirsuberjasósa, fersk epli,
pikklaður skallottulaukur
GRILLUÐ NAUTALUND
Jarðskokka og hvítsúkkulaði-purée, steiktar næpur
með sveskjum og heslihnetum, ka-hollandaise
EFTIRRÉTTUR
JÓLAKÚLA
Kryddkex, karamelluseruð hvítsúkkulaðimús,
epla og fáfnisgrasfylling
8.900 kr.
7 rétta jólaveisla
FRÁ KL. 17
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
Austurstræti 16 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 551 0011
JÓLIN Á
APOTEKINU