Fréttatíminn - 03.12.2016, Side 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
kosningarnar eru frábær rök
fyrir konungsstjórn“ og beitti þar
svipuðum rökum og Tolstoy. Það er
tímanna tákn að slíkar greinar birt-
ist í blöðum á borð við New York
Times og The Guardian, sem vana-
lega teljast vinstra megin við miðju
í framsetningu.
Konungur Bandaríkjanna fundinn
Michael Rosenblum skrifar í
Huffington Post: „Við erum stál-
heppin að hafa aldrei haft sturlaða
manneskju í Hvíta húsinu. Það gæti
breyst núna. Flökkusaga ein segir
frá því að George Washington hafi
verið boðið að verða konungur
Bandaríkjanna Hann hafnaði því.
Kannski voru það mistök. George
og Martha Washington áttu engin
börn. En niðjar Washington-ætt-
arinnar eru um 8 þúsund talsins
í gegnum bræður hans, Agustine
og Samuel. Ef Washington hefði
tekið tilboðinu, væri konungur
Bandaríkjanna í dag Paul Emery
Washington, fyrrverandi forstjóri í
byggingarvöruverslun. Við ættum
kannski að hringja í hann?“
Sagan skrýtin skepna
Þetta hljómar allt saman skringi-
lega. Á síðasta áratug var trú heims-
byggðarinnar á lýðræði í hæstu
hæðum. Eftir kalda stríðið og hrun
kommúnismans trúðu margir,
þeirra frægastur líklega bandaríski
stjórnmálafræðingurinn Francis
Fukuyama sem skrifaði um „Enda-
lok sögunnar“, að 21. öldin myndi
einkennast af stöðugu stjórnarfari
lýðræðislegra, markaðssinnaðra,
mannúðlegra og frjálslyndra afla.
Nú þegar rúm 15 ár eru liðin af
þessari öld finnst okkur þetta hjá-
kátlegt. Óstöðugleiki í stjórnarfari
virðist aukast dag frá degi og hið
ótrúlega virðist sífellt handan við
hornið. Samt hefðum við flissað yfir
þeirri vitleysu að Donald Trump
yrði næsti forseti Bandaríkjanna
fyrir örfáum misserum. Er ekki
þverstæða sögunnar einmitt að í
hugum samtímamanna virðist allt
geta gerst, að minnsta kosti margt,
en að þeir atburðir virðist óumflýj-
anlegir eftir á og sérstaklega þegar
árin líða? Kannski er því ekki vit-
laust að gera ráð fyrir möguleikan-
um á að fjöldahreyfingar myndist
sem hvetji til stofnunar konung-
dæma í löndum þar sem slíkt er alls
ekki að finna.
Kóngskosning í Brasilíu
Árið 1993 var haldin þjóðarat-
kvæðagreiðsla um stjórnarskrár-
breytingar í Brasilíu. Þær fóru fram
eftir að stjórnlagaráð hafði komið
saman, eftir að herforingjastjórn-
in fór frá völdum 1988. Skipuleggja
þurfti stjórnkerfið upp á nýtt. Lítill
hluti stjórnlagaráðsins var skipaður
konungssinnum sem náðu að koma
því í gegn að þjóðin yrði spurð
Stemning í brúðkaupsafmæli Karls Gústafs Svíakonungs og Sylvíu drottningar árið 2001.
hvort hún vildi frekar hafa for-
seta eða konung. Helstu rökin fyr-
ir þessu voru að tímabilið til 1889,
þegar keisaradæmi ríkti í landinu,
hefði verið mikið blómaskeið í
stjórnarfari en að 20. öldin hefði
einkennst af stöðugum valdarán-
um og almennum óstöðugleika. Í
kosningabaráttunni steig fram einn
af afkomendum Pedro II. keisara,
C prins af Orléans-Braganza, sem
fæddur var í Frakklandi en gerði
tilkall til krúnunnar. Úrslit þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar voru að 86
prósent kusu að Brasilía yrði áfram
lýðveldi. Þrátt fyrir að það þýddi yf-
irgnæfandi stuðning fannst mörg-
um ansi merkilegt að 13 prósent
manna vildu gera landið að kon-
ungsdæmi.
Hví ekki íslenskan kóng?
Gleymum því svo ekki að ýmsir
Íslendingar veltu fyrir sér á fyrri
hluta 20. aldar að stofna konung-
dæmi á Fróni þegar landið næði
fullu sjálfstæði. Þegar Norðmenn
hlutu sjálfstæði frá Svíum árið
1905 buðu þeir Karli danaprins
krúnuna. Hann varð Hákon sjö-
undi. Skiptar skoðanir höfðu verið
um þetta en á endanum fór svo að
mikill meirihluti Norðmanna kaus
að gera landið að konungdæmi. Há-
kon varð vinsæll í Noregi og þótti
standa sig vel þegar landið lenti
undir grimmilegu hernámi Þjóð-
verja í síðari heimsstyrj-
öldinni. Og líklega
voru allmargir hér
á þeirri skoðun
að Ísland ætti
að eiga sinn
konung þegar
landið fengi
loks langþráð
sjálfstæði frá
Dönu m. Og
helst þá ein-
hvern með fína
ættartölu, er-
lendan mann af
evrópskum kon-
ungsættum, eins og
venjan var þá í slíkum
málum. Einn þeirra var
tónskáldið Jón Leifs.
Árið 1937 ritaði hann
greinina „Ísland frá er-
lendu sjónarhorni“ þar
sem hann ræddi um ýmislegt sem
betur mætti fara hér á klakanum.
Framtíð þjóðarinnar eftir sam-
bandsslit væri í hættu vegna van-
hæfni íslenskra stjórnmálamanna
sem væru lítt færir um að halda um
valdataumana í landinu.
Íslendingar menn með mönnum
„Eg skal játa það, að eg er persónu-
lega kominn á þá skoðun, að eina
velferðarleiðin fyrir Ísland sé að
halda áfram að vera konungsríki.
Langbezt væri náttúrlega að hafa
eigin konung, sem væri búsettur í
landinu, gerðist íslenzkur og lifði
með þjóð sinni í blíðu og stríðu,“
skrifaði Jón Leifs. „Við yrðum að
byggja konungsbústað; það yrði
svo að segja eini stofnkostnaður-
inn.“ Mikilvægast væri að huga
að því hvaða konungsætt hentaði
Íslendingum best. „Konungsfjöl-
skylda mundi skapa hér bæði innri
og ytri menningu, með eigin fyrir-
dæmi, þó ekki væri með öðru, og
við Íslendingar mundum þá verða
menn með mönnum, jafnvel meira
en það, í samanburði við ýmsar
þjóðir. Sumir Íslendingar virðast
gagnsýrðir af þeirri villu, að kon-
ungar og konungsfjölskyldur sé
iðjulaust fólk, sem lifi í munaði og
jafnvel hálfgerðu siðmenningar-
leysi, en sannleikurinn er þessu
alveg gagnstæður.“ Margt bendir
svo til að Jón Leifs hafi verið einn
þeirra sem buðu þýska prinsinum
og nasistanum Friedrich Christian
af Schaumburg-Lippe konungstign
árið 1938. Það voru furðuleg áform
sem aldrei komust langt.
Dýrt drasl?
Í síðustu viku var tilkynnt í Bret-
landi að viðgerðir á Buckingham-
-höll í London, aðsetri bresku kon-
ungsfjölskyldunnar, muni kosta
skattgreiðendur um 52 milljarða ís-
lenskra króna. Þetta hefur komið af
stað enn einu fárinu í breskum fjöl-
miðlum. Sér í lagi þar sem drottn-
ingin er sjálf vellauðug og öll kon-
ungsfjölskyldan sömuleiðis.
Það er því ýmsir van-
kantar og álitsefni
þegar kemur að
kóngafólkinu.
Óstöðugleiki í stjórnar-
fari virðist aukast dag
frá degi og hið ótrúlega
virðist sífellt handan við
hornið. Samt hefðum við
flissað yfir þeirri vitleysu
að Donald Trump yrði
næsti forseti Banda-
ríkjanna fyrir örfáum
misserum.
Elísabet Breta-
drottning nú í
vikunni. Myndin
er tekin í veislu.
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
HREINDÝRABORGARI 175 G
Brioch brauð, rauðlaukssulta,
piparrótarmayo, Búri, romain salat,
vöufranskar, truumayo
2.890 kr.
JÓLABOX
• Tvíreykt hangikjöt, epli, skallotlaukur, laufabrauð
• Flatkaka, bleikja, klettasalat, rjómaostur, dill
• Saltfiskur, sætmús, lotusrót, tómat-chutney
• Andabringa, piparrótar-blómkálspurre, portvínssósa
3.590 kr.
JÓLA
JÓLA
GASTROPUB