Fréttatíminn - 03.12.2016, Síða 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
Menningarumfjöllun
Nerdist er afar vinsælt hlaðvarp þar sem fjallað er um dægurmenningu
á léttu nótunum. Þekktir leikarar, tónlistarmenn og skemmtikraftar eru
teknir í um klukkutíma löng viðtöl um þeirra smekk, feril og það sem
þeir eru að fást við hverju sinni. Þetta eru æðislegir þættir þótt titillinn sé
orðinn nánast merkingarlaus þar sem nördamenningin sem var í upphafi
jaðarmenning sérlegra áhugamanna um teiknimyndasögur, ofurhetjur,
tölvu- og hlutverkaleiki hefur blandast meginstraums dægurmenningu
og nær nú einnig yfir almenna umfjöllun um hvers kyns sjónvarpsefni og kvik-
myndir.
Konungar íslensks nördahlaðvarps eru og verða Hefnendurnir, þeir Hugleikur
Dagsson og Jóhann Ævar Grímsson sem hættu á toppnum eftir hundrað þætti.
Þeir halda þó enn reglulegar bíósýningar og sinna aðdá-
endum sínum (Jarðarbúum) vel á fésbókarsíðu þáttarins.
Einnig verð ég að minnast á þáttinn Englaryk fyrir vitrænan
slúðurskammt um fræga fólkið í Hollywood. Þátturinn er í
umsjá þeirra Drafnar Aspar Snorradóttur-Rozas og Hönnu
Eiríksdóttur sem eru fagdömur fram í fingurgóma. Ég kynni
einnig til sögunnar nýtt, hrátt en efnilegt Soundcloud varp:
Dashing Through the Snow þar sem kvikmyndagerðarkon-
urnar Lovísa Lára Halldórsdóttir og Nanna Höjgaard Grett-
isdóttir glápa á eldgamla þætti af Keeping up with the Kar-
dashians og spjalla um þá og sitt eigið líf á ensku.
Hryllingur
The Last Podcast on the left er brjál-
æðislega hress og fyndin þáttaröð um
alls kyns hrylling, bæði raunveru-
legan og skáldaðan. Þar er rætt um
fjöldamorðingja, vampírur, geimver-
ur, mannætur, draugagang og djöfla.
Efnistökin ná svo langt inn í dimmustu
afkima mannkyns að eina leiðin til
þess að höndla það svo þol-
anlegt sé er með öfgakenndu
gríni. Þáttastjórnendur hafa þó
ávalt unnið heimavinnuna sína
og gagnrýnin hugsunin skín í
gegn um glensið. Ég get samt
ekki hlustað á þá þegar ég er ein
heima.
My Favorite Murder – Sannar
sakamálasögur sagðar af tveimur
blíðlyndum og kímnum vin-
konum sem deila hrollvekjandi
áhugamáli og heillast af því sem
þær eru hræddastar við.
„Ég nenni ekki lengur að
hlusta á yfirborðskennt
kurteisishjal dægurmála-
þátta eða pólitískt þras
fréttatíma. Nú hlusta ég
tímunum saman á fólk
sem fellir grímuna á bak
við upptökutækið, talar
af óheflaðri og óritskoð-
aðri ástríðu um það sem
það hefur áhuga á og
gaman af og skellir því á
netið í formi streymandi
hljóðskráa.“
Grín
Icetralia er fyrsta og eina íslensk/ástralska hlaðvarpið í heiminum. Uppi-
standararnir Hugleikur Dagsson og Jonathan Duffy eru hvorki frá sömu
heimsálfu né með sömu kynhneigð en smella svo vel saman að unun er
á að hlýða. Þeir deila með hvor öðrum og hlustendum drepfyndnum og
einlægum reynslusögum af daglegu amstri, vandræðalegum misskiln-
ingi og sívaxandi vináttu. Að hlusta er eins og að vera fluga á vegg þegar
menn eru á góðu „trúnó“ nema þúsund sinnum skemmtilegra. Til að
kóróna stemninguna geta hlustendur einstaka sinnum fengið tækifæri
til þess að vera viðstaddir upptöku þáttarins en þá er hann tekinn upp á
skemmtistað í bænum og jafnast á við bestu uppistandssýningar.
Ef þið eigið ykkur uppáhalds grínista er ansi líklegt að hann sé annað
hvort að stjórna sínu eigin hlaðvarpi eða hafi verið gestur í hlaðvörpum
annarra og ekki ætti að vera flókið að hafa uppi á þeim. Ég mæli til dæm-
is með The Doug Stanhope podcast og Monday Morning – Bill Burr
Tónlistarumfjöllun
Hefðbundin hlaðvörp leggja áherslu á
talað mál og það gerir einnig tónlist-
arhlaðvarpið Fílalag í umsjón samfé-
lagsrýnisins Bergs Ebba og tónlist-
armannsins Snorra Helgasonar. Það
hefur fest sig rækilega í sessi og á að
baki hundrað þætti og dyggan hóp
fylgjenda (Fílahjörðin). Stjórnendur
taka fyrir nokkurra mínútna langt
lag í hverjum þætti og fíla það í tætl-
ur á klukkutíma, ræða um hughrif
þess og menningarlegt samhengi á þann hátt að ómögulegt er að
hrífast ekki með.
Að sjálfsögðu eru svo margir dúndurgóðir tónlistarþættir sem
sendir eru út á hefðbundnum útvarpsrásum einnig í boði sem
poddköst eins og til dæmis Arnar Eggert sem spáir og spekúlerar í
diskói jafnt sem dauðarokki og grefur upp gullmola sem rata sjald-
an í dagspilun, Langspil þar sem Heiða Eiríks kembir nýútkomna
íslenska tónlist, leikur lög og tekur viðtöl við tónlistarmenn og svo
er kletturinn Rokkland enn í traustum höndum Óla Palla. Mannrækt og
andleg málefni
On Being í umsjón blaða-
mannsinns Kristu Tippett eru
margverðlaunaðir þættir um lífið
og tilveruna. Þarna eru stórar sið-
ferðislegar spurningar ræddar á
pollrólegum nótum við andlega
þenkjandi rithöfunda, skáld, leið-
toga, eðlisfræðinga og þar fram
eftir götunum. Fínt að sofna út frá
þessum.
Radiolab eru þekktir heimildar-
þættir um vísindi og mannlega
tilveru með heillandi hljóðheimi
sem senda hugann á flug.
Flutt í Ármúla 40 // 108 Reykjavík // Sími 534 2727 // www.alparnir.is // e-mail: alparnir@alparnir.is
Góðar jólagjafir
Svigskíði
Pakkatilboð
25% afsláttur
Fjallaskíði
Pakkatilboð
25% afsláttur
Gönguskíði
Pakkatilboð
25% afsláttur
Snjóbretti
Pakkatilboð
25% afsláttur
Áfram ísland
Skíðaúlpa herra
Jólatilboð
Verð
39.995
Mikið
úrval
af fatnaði
Hinir vinsælu
MICROspikes
keðjubroddar
Verð kr. 9.995
Mikið úrval
af húfum,
sokkum og
vetlingum
Verð frá kr. 1.495
Salomon X-Ultra Mid
Til bæði fyrir dömur
og herra
Verð kr. 25.995
Lúffur
Verð frá kr. 5.995
Salomon Speedtrack
Verð kr. 14.995
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Skíðabuxur í stærð
128 til 176.
Verð kr. 9.995
Softshell buxur.
Verð kr. 14.995
Shoftshell jakki,
Verð kr. 24.995
20%
jólatilboð
Sjón er sögu ríkari, mikið úrval
af flottum vörum í jólapakkann
100% merino
ullarfatnaður
Fyrir skíðagöngugarpa
Dömu úlpur,
einnig til á herra
Verð frá kr. 19.995
byko.is
Allt í jólapakkann!
AUKINN
AFGREIÐSLUTÍMI
FRAM AÐ JÓLUM
SJÁ NÁNAR Á
BYKO.IS
• Gróðurinn
• Jarðfræðin
• Fuglarnir
• Fiskarnir
• Sagan
• Minjarnar
• Smádýrin
• Göngu- og
hjólaleiðirnar
Allt um Elliðaárdal í nýrri og
ríkulega myndskreyttri bók
Aðalhöfundar bókarinnar eru Árni
Hjartarson jarðfræðingur og Helgi
Máni Sigurðsson sagnfræðingur. Að
auki skrifa Guðmundur Halldórsson
skordýrafræðingur og Ívar Gissurarson
ritstjóri hvor sinn kafla.
Allt þetta og svo miklu fleira er að finna í þessari nýju
og falleguu bók.