Fréttatíminn - 03.12.2016, Síða 58
58 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. desember 2016
Slæmar
fréttir fyrir
grænmetisætur
og fólk sem elskar
alvöru sýrðan rjóma.
Það er ekki lengur hægt að fá sýrð-
an rjóma á Íslandi. Það er að segja
alvöru sýrðan rjóma sem fram-
leiddur er úr hreinum rjóma.
MS framleiddi þar til fyrir
skömmu 36% sýrðan rjóma sem
framleiddur var úr rjóma en fram-
leiðslu hans hefur verið hætt. Nú
er einungis hægt að fá 10% og 18%
sýrðan rjóma og ástæðan er, að
sögn sölustjóra MS, lítil eftirspurn.
Slíkur sýrður rjómi er að sjálf-
sögðu ekki hreinn heldur drýgð-
ur með mjólk og hleyptur með
hleypiefnum. Því minni sem fitan
er því fjær er varan hefðbundnum
sýrðum rjóma. Fólk virðist ekki
lengur vilja mat með alvöru fitu
heldur magrar mjólkurvörur.
Í Frakklandi, þaðan sem sagan
segir að sýrður rjómi sé upp-
runinn, er hann samkvæmt hefð-
inni búinn til úr ógerilsneyddum
rjóma sem inniheldur náttúru-
legar bakteríur sem þykkja hann
þegar hann fær að standa. Þar
sem rjóminn okkar er gerilsneydd-
ur í dag, þá er nútímaaðferðin sú
að bæta mjólk-
ursýrugerlum við
rjóma.
Í dag er sýrður rjómi á Ís-
landi framleiddur með því að
bæta mjólkursýrugerlum, gelatíni
og ostahleypi við undanrennu-
blandaðan rjóma. Það er meira og
minna sú aðferð sem MS, Mjólka
og Kú nota við sína framleiðslu á
fituskertum sýrðum rjóma. Slæm-
ar fréttir fyrir grænmetisætur, því
gelatín er dýraafurð, og slæmar
fréttir fyrir fólk sem vill alvöru
sýrðan rjóma en fær þess í stað
gelatínhleypt undanrennubland.
Arna og Biobú hafa ekki enn
hafið framleiðslu á sýrðum rjóma
en þangað til er ekkert mál að gera
sinn eigin. Ýmsar aðferðir eru í
boði, en sú auðveldasta inniheld-
ur sítrónusafa. Þú setur rjóma í
pott og sýður hann upp. Þegar
suðan er að koma upp kreistir
þú sítrónusafa út í, setur lokið á
og leyfir honum að standa í tvo
tíma. Þá ertu kominn með sýrðan
rjóma sem geymist í 7-10 daga í
ísskáp. Önnur einföld aðferð er
að nota AB-mjólk og kaffipoka. Þá
setur þú kaffipoka á stórt glas eða
annað ílát og hellir svo um 2 dl af
AB-mjólk í kaffipokann. Þá byrjar
mysan að leka niður og eftir rúma
klukkustund ertu kominn með
flauelsmjúkan sýrðan rjóma. | hh
Enginn sýrður rjómi
framleiddur á Íslandi
Nú er einungis hægt
að fá 10% og 18%
sýrðan rjóma,
ekki 36%.
Ástæðan
er, að sögn
sölustjóra
MS, lítil
eftirspurn.
Klæða sig upp eins
og persónurnar
Skam-æðið mikla heldur áfram.Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Svo virðist sem Skam-æðið sem
gripið hefur um sig meðal Íslend-
inga ætli engan endi að taka. Fyrir
þá sem ekki vita um hvað ræðir er
Skam norskt unglingadrama sem
slegið hefur í gegn á Íslandi. Nú
hefur verið stofnaður aðdáenda-
hópur meðal Íslendinga og hafa
meðlimir hópsins tekið upp á að
deila myndum af sér þar sem þeir
eru staddir í Noregi, hafa klætt sig
upp eins og aðalpersónur þátt-
anna eða eru staddir á stöðum þar
sem þættirnir hafa verið teknir
upp. Fréttatíminn fékk að birta
myndir af nokkrum krökkum sem
deilt hafa myndum með öðrum
aðdáendum.
Sara Sólrún Aðal
steinsdóttir er mikill
aðdáandi þáttanna og
fór á settið. Hún sá bæði
menntaskólann þar sem
þættirnir eru teknir
upp, bekkinn þar sem
nokkrar senur hafa ver
ið teknar og síðan hitti
hún sjálfan Isak, aðal
persónu í þriðju seríu
Eir Andradótt
ir birti þessa
mynd af sjálfri
sér með aðdá
endum Skam.
Þar stælir hún
hana Nooru
sem hún segir
uppáhaldið sitt
í þáttunum.
Malena Sif Ásbjarnardóttir tók þessa
mynd. Hún var stödd þar sem tekin var
sena af vinkonunum Vilde og Nooru
þegar þær áttu saman mikilvægt spjall
um töffarann William sem bræddi
hjörtu þeirra beggja. Vilde hleypur líka
upp tröppurnar í nokkrum senum til
að hreyfa sig.
Óskar Steinn Ómarsson tók
þessa mynd í Noregi íklædd
ur í ekta „russedress“.
Hann minnir óneitanlega
á einhvern í Penetrators
klíkunni. Er þetta hinn
íslenski PenetratorChris?
Fyrsta íslenska vefgalleríið
Vefsíðan Islanders með nýtt verkefni.
„Auður Gná og Íris Ann stofnuðu
Islanders vefsíðuna sem hefur ver-
ið í gangi í tæpt ár. Núna erum við
þrjár hins vegar komnar í lið með
þeim. Ég, Þórdís og Elísabet. Við
verðum umsjónarmenn Islanders
Gallery sem verður eitt þeirra ver-
kefna sem verða í gangi á heima-
síðunni,“ segir Sigþóra Óðins,
ein forsvarsmanna fyrsta vefgall-
erís sinnar tegundar á Íslandi.
Veftímaritið Islanders hefur vakið
athygli fyrir vandaða umfjöllun
um margbreytileg íslensk heim-
ili. Í ljósi þess hve góðar viðtök-
ur tímaritið hefur fengið verður
næsta skref stigið og vefgallerí
stofnað.
„Við verðum með opnunarsýn-
ingu sem ber heiti Go Pink Your
Self og fer fram í merkilegu húsi
í sögu íslenskrar bygginarlistar
sem hannað er af Högnu Sigurðar-
dóttur arkitekt. Þar sýnum við
málverk eftir Kristin Má Pálma-
son en líka pappírsverk sem unnin
voru sérstaklega fyrir galleríið. Við
munu síðan kynna til leiks nýja
listamenn með tveggja mánaða
millibili. Opnunarsýningin verður
eins dags opnun í eiginlegu rými
og í framhaldinu verða verkin á
vef Islanders,“ segir Sigþóra.
„Það er ekkert galleríi á Íslandi
með svona mikla áherslu á vef-
sýningu og sölu.Til eru listrými
og gallerí sem sýna verkin sín á
vef en eru með eiginlegar starf-
stöðvar. Islanders Gallery verður
ekki þannig heldur nánast bara á
netinu. Islanders er alþjóðlegur
vefur fyrir almenning til að kynn-
ast menningarkimum í gegnum
myndefni og greinar sem við von-
umst til að hafi samflæðandi áhrif
fyrir þá sem hafa áhuga á hönnun,
innanhúshönnun, myndlist og
menningu.“ -bg
Elísabet,
Sigþóra og
Þórdís.
Eitt verka sýningarinnar.
2017
DAGATAL
FULLKOMIN YFIRSÝN
ALLT ÁRIÐ Á EINU PLAKATI
(40X50CM)
Fæst á IBN.IS og í Eymundsson