Fréttatíminn - 03.12.2016, Qupperneq 62
fjörið. 2 | helgin. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2016
Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið.
Fást í öllum helstu matvöruverslunum
og í fiskborði stórmarkaðanna.
Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn
Hvað ertu að lesa?
„Ég verð að viðurkenna að ég set
nýjar bækur miskunnarlaus neðst
í staflann. Nú er ég til að mynda
að lesa Geirmundar sögu heljar-
skinns eftir Bergsvein Birgisson,
en hún kom út í fyrra. Ég stefni
samt á að lesa Þorstein frá Hamri
og Heiðu fjallabónda og smásögur
Andra Snæs. Ég er því miður bú-
inn með Ör eftir Auði Övu en það
gerði manni eflaust ekkert illt að
lesa hana aftur á jólanótt. Á nýja
árinu ætla ég að halda áfram að
lesa ekki Der Mann
ohne Eigenschaften
og Don Kíkóta.“
Arnar Már
Arngrímsson
Jólalegur eggjapúns með diskóívafi
Ási á hinum sjóðheita Pablo Discobar kominn í jólaskap.
„Þetta er alveg klassískur drykkur í
desember. Góður eggjapúns klikkar
seint. Þessi er mjög frísklegur og það
geta allir gert hann heima hjá sér,“
segir Ásgeir Már Björnsson barþjónn.
Ási, eins og hann er jafnan kallað-
ur, stendur vaktina á Pablo Discobar
sem nýlega var opnaður í Veltusundi,
þar sem veitingastaðurinn Einar Ben
var áður. Pablo Discobar er litrík-
ur og líflegur staður og þar svífur
skemmtilegur 80’s-andi yfir vötnum
sem passar vel við fjölbreytta kok-
teila sem Ási og hans fólk reiða fram.
Eggjapúns Ása
45 ml Diplomatico Reserva
Exclusiva romm
1 egg
60 ml nýmjólk
15 ml kanilsíróp
10 ml sérrí
Hristið með klaka en berið fram
án klakans. Hægt að nota blandara
ef vill. Rífið múskat yfir og berið
fram.Mynd | Hari
Reyndu nú að skilja!
Jólaspilið í ár á mörgum heimilum
í ár verður án efa spilið „Mouth
trap“. Spilið hefur tröllriðið
internetinu að undanförnu en
ófáar klippur hafa verið birtar á
Youtube af fólki að spila spilið.
Það fer þannig fram að tveir og
tveir eru saman í liði. Annar kepp-
andinn þarf að setja upp í sig góm
sem er til þess gerður að halda
vörunum frá tönnunum þannig
að ekki er hægt að nota varirnir
til þess að mynda stafi og hljóð en
stóla algerlega á tungu og tenn-
ur. Keppandinn dregur spjöld
með orðum sem hann þarf að lesa
þannig að liðsfélagi hans skilji
hann. Þetta er hægara sagt því að
gómurinn virkar afar takmark-
andi þegar kemur að því að segja
sum orðin og mynda sum hljóð.
Úr verður hin besta skemmtun og
víst að flestir enda með magapínu
af hlátri eftir kvöldstund í Mouth
trap. Spilið er nú loks komið í
Spilavini.
Leystu orkuna
úr læðingi
Orkusýningin í Ljósafossstöð er
skemmtileg og fræðandi fyrir alla
aldurshópa, en þar geta orkubolt-
ar fengið tækifæri til að leysa orku
úr læðingi með því að nota eigin
þyngd, styrk og afl. Hver vill ekki
prófa að safna rafeindum, dæla úr
lónum, fanga vindinn og lýsa upp
heiminn á 120 árum.
Ljósafossstöð er staðsett á Sogs-
svæðinu við Úlfljótsvatn og er í
um 50 mínútna akstursfjarlægð
frá Reykjavík. Það er því tilvalið
að skella sér á rúntinn með fjöl-
skylduna og kom við á sýningunni.
Opið er alla daga frá 10 og 17.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Það er mikil lífsgleði í söngnum, sérstaklega þegar maður syngur í kór hjá Hilmari Erni. Hann er svolítið öðru-
vísi stjórnandi, smitar út frá sér
gleði og fær alla til að gera sitt
besta,“ segir Trausti Valdimars-
son, meltingarsérfræðingur og for-
maður kórsins Söngfjelagsins, sem
heldur aðventutónleika í Lang-
holtskirkju á sunnudaginn. Þema
tónleikanna í ár er keltnesk og írsk
jólatónlist í bland við íslenska. Þá
verður frumflutt jólalag Söng-
fjelagsins 2016 eftir Olgu Guðrúnu
Árnadóttur.
„Írland er svo skylt okkur
þannig við finnum okkur mjög vel í
þessum írsku lögum. Mann langar
eiginlega bara að fara að dansa við
þessa tónlist,“ segir Trausti sem er
að vonum spenntur fyrir tónleik-
unum.
Frábær félagsskapur
Trausti hefur sungið í kór síð-
an hann var barn og foreldar
hans sungu mikið fyrir hann og
systur hans sex í æsku. „Ég var
svo frægur að vera í kór hjá Jóni
Stefánssyni, kórstjóra og organista
í Langholtskirkju, sem lést fyrr
á þessu ári. Ég var níu ára þegar
hann stjórnaði kór í Árbæjarskóla.
Við vorum þrír strákar og þrjátíu
stelpur. En hann kenndi mér fyrst
að syngja í kór.“ Þá tók Trausti þátt
í kórstarfi bæði í menntaskóla og
háskóla, söng með Dómkórnum í
tíu ár og hefur sungið með Söng-
fjelaginu í fimm ár.
„Að syngja er besta leiðin til að
hvíla hugann, sérstaklega syngja
í kór með öðrum. Samkenndin og
félagsskapurinn er svo frábær. Það
er alls konar fólk í kórnum; lista-
fólk, kennarar og tónlistarfólk,
sem er mjög gaman að hitta. Svo
förum við í kórferðalög og æfinga-
búðir.“
Hreifst af þríþraut
En söngurinn er ekki eina áhuga-
mál Trausta. Hann stundar líka
þríþraut af miklu kappi. „Mað-
ur má ekki láta sér leiðast. Pabbi
sagði alltaf að maður ætti að lifa
til fulls. Lifa alveg fram í andlátið.
Það er mjög gott mottó.“
Þríþrautinni kynntist hann árið
2005 en þá hafði hann stund-
að hlaup í nokkur ár. „Ég byrjaði
að hlaupa þegar ég var þrítugur
og hætti að reykja. Þá greip mig
hlaupafíkn. Smám saman var
ég farinn að hlaupa of mikið og
meiðsli fóru að hrjá mig, þannig
ég fór að synda og hjóla líka. Það
er svo gaman að geta spriklað
eitthvað á hverjum degi,“ segir
Trausti kankvís.
Gott að vera meira en læknir
Þá hefur hann tvisvar tekið þátt í
WOW-cyclothon, í fyrra skiptið í
fjögurra manna hópi sem honum
þótti ansi strembið og sá ekki fyrir
sér að fara aftur. „Það var alveg
klikkað, hrikalega erfitt. Ég ætlaði
aldrei aftur.“ En það átti eftir að
breytast. Í fyrra voru Trausti og
vinur hans teknir inn í tíu manna
lið fyrir cyclothon-ið í staðinn fyrir
tvo sem meiddust. Hópurinn sam-
anstóð aðallega af verkfræðing-
um og lögfræðingum og kölluðu
þeir sig Félag miðaldra skrifstofu-
manna. „Þeim fannst það voðalega
fyndið þegar hópurinn var stofn-
aður og þeir voru fertugir. En það
er kannski ekki eins fyndið núna
þegar þeir eru orðnir fimmtugir.
En við vorum allavega með lang-
hæstan meðalaldur í keppninni.
Við héldum að þetta yrði rólegt
dúll því þeir hétu þessu nafni, en
það var mikil keppnisharka og stíf-
ar æfingar,“ segir Trausti en hon-
um fannst líka gaman að prófa að
taka þátt í keppninni með stærri
hópi.
„Það er svo gaman að leika sér.
Þegar maður er í svona stress-
starfi, eins og læknastarfið getur
verið, þá er nauðsynlegt að gera
líka eitthvað annað. Ekki vera
alltaf læknir, heldur starfa sem
læknir og hugsa stundum um eitt-
hvað annað. Sumir eru nefnilega
bara það sem þeir starfa við. Ég er
ekki þannig.“
Söngfjelagið mun halda tvenna
tónleika á sunnudaginn, klukkan
16 og 20 í Langholtskirkju, þar sem
boðið verður upp á einstaka há-
tíðarstemningu. Kórnum til halds
og trausts verða svo írskir hljóð-
færaleikarar og söngvarar.
„Það er svo gaman að
leika sér“
Trausti Valdmarsson meltingarsérfræðingur er algjört hreystimenni og
söngfugl mikill. Hann keppir í þríþraut og syngur með Söngfjelaginu
sem heldur aðventutónleika á sunnudag. Hann segir sönginn bestu
leiðina til að hvíla hugann.
Trausti hrausti Trausti kynntist þríþraut fyrir rúmum áratug og hefur stundað íþróttina af
kappi síðan. Hér að hann að hjóla í Hvalfirðinum í Járnmanninum. Mynd | Arnold Björnsson
Að syngja er
besta leiðin
til að hvíla hugann,
sérstaklega syngja
í kór með öðrum.
Samkenndin og fé-
lagsskapurinn er svo
frábær.