Fréttatíminn - 03.12.2016, Blaðsíða 68
jólin. 8 | helgin. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2016
Yndislegt að gefa og
þiggja upplifun í jólagjöf
Flúðasigling, matjurtanámskeið og dáleiðsla
meðal gersema í Óskaskríninu.
Unnið í samstarfi við Óskaskrín
Færst hefur í aukana að fólk kjósi að gefa ástvinum upp-lifun í jólagjöf – slíkt kemur í veg fyrir að óþarfa dót
safnist upp og gefur fólki tækifæri
til þess að skapa ógleymanlegar
minningar. Óskaskrín hefur um
árabil boðið upp á öskjur sem inni-
halda upplifun af ýmsum sortum;
yndislega matarupplifun, köfunar-
námskeið, nudd eða dekur, svo fátt
eitt sé nefnt.
Gjöfin hentar einkar vel að gefa
þeim sem „eiga allt“ og ekki síð-
ur þeim sem annað hvort hafa
lítinn tíma til þess að velja gjafir
eða kjósa frekar að gefa inneign
í minningarbankann en einhverja
hluti sem mismikil þörf er fyrir.
Hægt er að fá óskaskrín sem
hentar öllum, ungum sem öldn-
um og innan hvers skríns er val
um nokkrar upplifanir þannig að
sá sem gefur þarf ekki að ákveða
hvers lags upplifun sá sem þiggur
kýs.
Nýtt fyrir þessi jól – um enn meira
að velja
Fyrir þessi jól kynnir Óskaskrín
nýjar útgáfur af skrínum:
• Útivist
• Eðal Dekur
• Námskeið
• Glaðningur fyrir tvo
Í útivistarskríninu má meðal annars
finna norðurljósa- og jöklaferð,
fjórhjólaferð um Reykjanes, köf-
un og flúðasiglingu. Í eðaldekrinu
má til að mynda finna dáleiðslu,
lúxus andlitsmeðferð og klippingu
og litun. Í námskeiðaskríninu er til
dæmis fjarnámskeið í ljósmynd-
un, námskeið og garðhönnun og
matjurtanámskeið. Í glaðning fyrir
tvo innihalda skrínin alls konar
dekur og rómantík fyrir tvo/tvö/
tvær að njóta. Þar má finna hót-
elgistingu, spa og námskeið í Bjór-
skólanum og ýmislegt fleiri sem
gaman er að upplifa með ástvini.
Óskaskrín fæst í Eymundsson
og verslunum Hagkaups á höfuð-
borgarsvæðinu. Einnig er hægt að
panta Óskaskrín beint heim að dyr-
um gegnum vefsíðuna oskaskrin.is
Þetta er fljótleg og einföld upp-
skrift að súkkulaðibúningi sem
tekur ekki nema nokkrar mínútur
að búa til, en þarf að standa í kæli
í nokkra klukkustundir áður en
hann er borinn fram. Því hentar
að gera hann að morgni eða jafn-
vel deginum áður. Gott hráefni
er lykilatriðið í uppskriftinni og
því er mikilvægt að nota góð egg
og gott smjör en fyrst of fremst
eins gott súkkulaði og völ er á.
Súkkulaðið á helst að vera dökkt á
bilinu 60-80%.
Súkkulaðibúðingur
2 egg, við stofuhita
170 g dökkt gæða súkkulaði, saxað
4 msk vatn
4 msk strásykur
4 msk ósaltað smjör
fínmalað sjávarsalt
• Eggjahvítur og eggjarauður eru
aðskildar. Eggjahvíturnar eru
stífþeyttar.
• Súkkulaði, vatni, sykri og smjöri
og örlitlu af salti er blandað
saman í stálskál sem er sett yfir
pott með sjóðandi vatni. Hitinn
á að vera nægur til að súkkulað-
ið bráðni, en það má ekki vera
of mikill hiti.
• Þegar súkkulaðið er bráðnað
og öllu hefur verið blandað vel
saman þá er skálin tekin af hit-
anum og eggjarauðunum bland-
að saman við. Eggjahvítunum er
næst blandað varlega saman við
með sleikju þar til búðingurinn
hefur náð jafnri og sléttri áferð.
• Búðingnum er hellt í glös eða
skálar sem eru settar í kæli,
helst í nokkrar klukkustundir.
• Borið fram kalt með þeyttum
rjóma.
Fljótlegur eftirréttur
Leyndarmálið að góðum súkkulaðibúðingi er
gott súkkulaði.
Unnsteinn Manúel Stef-ánsson og Eva María Jónsdóttir tóku við hlutverki verndara UN Women á Íslandi þann
25. nóvember síðastliðin. Þau tóku
við af leikkonunni Unni Ösp Stef-
ándóttur og mannfræðiprófess-
ornum Sigríði Dúnu Kristmunds-
dóttur. Dagsetningin var ekki
tilviljun; 25. nóvember er alþjóð-
legum baráttudagur Sameinuðu
þjóðanna gegn kynbundu ofbeldi.
Unnsteinn og Eva María tóku við
keflinu í ljósagöngu UN Women.
Mikilvægt að karlar taki þátt
Þegar verndarar UN Women eru
spurðir hvers vegna þeir hafi
ákveðið að taka hlutverkið að sér
segir Unnsteinn það vera mikil-
vægt að fá fleiri karlmenn til að
taka þátt í baráttu samtaka eins og
UN Women. „Kynbundið ofbeldi
og misrétti kvenna er oftast
af karlavöldum. Þess vegna
þurfum við ekki síður að taka
þátt í umræðunni.
Ég held það sé
mikilvægt að
skoða af hverju
mannskepnan
beitir ofbeldi.
En ekki síður hef
ég mikla trú á fram-
tíðinni og hvernig
menntun og þekking muni breyta
kjörum kvenna t.d. í þriðja heim-
inum. Og þar með breytist allur
heimurinn,“ segir Unnsteinn um
nýtt hlutverk sitt sem verndari
sem hann tók nýlega að sér ásamt
Evu Maríu Jónsdóttur sem bætir
við: „Að taka afstöðu með mann-
úð, mannréttindum og mann-
legri reisn er nauðsynlegt. Ef
tækifæri býðst til að gera það á
áþreifanlegan hátt er maður
fljótur að þiggja það og
stökkva um borð með
samtökum eins og UN
Women.“
Kvenmiðuð neyðar-
aðstoð
Aldrei hafa fleiri konur
verið á flótta í heimin-
um. Konur í Mosul og þar í kring
flýja nú grimman veruleika og
búa við skelfilegar aðstæður. UN
Women samhæfir aðgerðir hjálp-
arsamtaka og tryggir konum og
stúlkum kvenmiðaða neyðar-
aðstoð til dæmis með dreifingu
sæmdarsetta. Tekið er mið af þörf-
um kvenna eftir aðstæðum og er
innihald sæmdarsettanna í takt
við þær þarfir. UN Women dreifir
nú sæmdarsettum til kvenna á
flótta í Írak sem innihalda dömu-
bindi, sápu, tannbursta, tann-
krem, teppi, barnaföt, tvo pakka
af bleium, uppþvottasápu, hand-
klæði og vasaljós. Ein jólagjöf er
andvirði sæmdarsetts fyrir konu á
flótta. Jólagjöfin kostar 3.990 krón-
ur og fæst á www.unwomen.is.Unnsteinn Manúel og Eva
María Nýir verndarar UN
Women á Íslandi
Að taka afstöðu með mannúð,
mannréttindum og mannlegri
reisn er nauðsynlegt
Unnsteinn Manuel og Eva María nýir verndarar UN Women á Íslandi.
Sæmdarsett Inniheldur t.d. dömubindi, tannbursta, sápu og vasaljós.
Spa Yndislegt er að gefa
afslöppun og dekur í jólagjöf.