Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 03.12.2016, Side 72

Fréttatíminn - 03.12.2016, Side 72
Alla laugardaga Gjafir sem raunverulega skipta máli Prins Póló og Gosar vekja athygli á Sönnum gjöfum með Jólakveðju. Húllafjör á Eiðistorgi Fyrir þá sem vilja gera eitt- hvað öðruvísi um helgina er til- valið að skella sér í Húllafjör á Eiðistorgi á milli 16 til 18, þar sem Unnur María Húlladúlla stendur vaktina. Húllafjörið er fyrir alla aldurs- hópa og Húlladúllan verður með nóg af húllahringjum; litla krakka- hringi, hringi fyrir fullorðna og nokkra risahringi. Þátttakend- um er boðið að koma og prófa að húlla. Húlladúllan mun ganga á milli, gefa góð ráð og kenna skemmtileg trix, en hún segir að allir geti lært að húlla. Húllafjörið og kennslan er ókeypis en þátttakendur eru hvattir til að leggja nokkra aura í söfnunarbaukinn til að styrkja Húlladúlluna við gerð húllahringj- anna sem hún er lofuð fyrir. Hægt verður að kaupa tilbúna húllahringi á Eiðistorgi en það er líka hægt að panta hringi hjá Húlladúllunni í litum að eigin vali. Sannar gjafir UNICEF stuðla að því að bæta líf barna víða um veröld. Þær eru lífsnauðsynleg hjálpar- gögn, s.s. teppi, ormalyf, jarð- hnetumauk og fleira sem getur skipt sköpum fyrir börn sem búa við sára neyð. „Slíkar gjafir verða sífellt vinsælli og það er yndis- legt. Fólki finnst bæði gaman að gefa þær og við heyrum að fólki finnist gaman að fá þær. Það er svo sannarlega hægt að láta gott af sér leiða um jólin,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, kynningarstýra UNICEF. Hægt er að kaupa Sannar gjafir á unicef.is og fær þá kaup- andinn afhent gjafabréf en UNICEF sér um að gjöfin komi að góðum notum hjá þeim sem mest þurfa á að halda. Í gær frumfluttu Prins Pólo og Gosar lagið Jólakveðja en það verð- ur notað til þess að vekja athygli á Sönnum gjöfum. „Prins Póló samdi lagið og gaf UNICEF það. Frábært framtak hjá honum sem mun veita okkur ómetanlega hjálp við að vekja athygli á þessum fal- legu jólagjöfum,“ segir Sigríður. Hægt er að hlusta á lagið á unicef. is þar sem einnig er hægt að panta Sanna gjöf, eins og áður sagði. Sigríður Víðis Jónsdóttir. Mynd | Hari Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac „One Week Flat“ Minnkar þembu og vindgang Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort fyrir tvo á gamanleik eins og þeir gerast bestir Úti að aka 9.950 kr. Miði fyrir tvo á þessa vinsælu fjölskyldusýningu og geisla– diskur með tónlistinni Blái hnötturinn 10.600 kr. Gjafakort fyrir tvo ásamt leikhúsmáltíð fyrir sýningu eða í hléi Ljúffengt leikhúskvöld 12.950 kr. Sérstök jólatilboð Gefðu töfrandi stund í jólagjöf! Gjafakort Borgarleikhússins

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.