Fréttatíminn - 16.12.2016, Page 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Ég sat með strákunum eftir skóla og hlustaði á þá úthúða Donald Trump. Þó ég væri auð-vitað sammála þeim
í einu og öllu sagði ég við þá að
þeir hefðu um tvo möguleika að
velja. Annað hvort gætu þeir barið
hausnum í vegginn í fjögur ár eða
sætt sig við það að Donald Trump
hefði verið kosinn forseti. Umsvifa-
laust ruku þeir á fætur og byrj-
uðu að berja hausnum í eldhús-
vegginn,“ útskýrði nágrannakona
mín í New York fyrir mér daginn
eftir að Donald Trump var kjörinn
forseti Bandaríkjanna. Synir henn-
ar eru 11 ára.
En nú er ríflega mánuður liðinn
frá því að ljóst var að Trump yrði
næsti forseti Bandaríkjanna og
þegar er byrjað er að smíða sviðið
í miðri höfuðborg landsins fyr-
ir formlega vígsluathöfnina sem
verður haldinn 20. janúar. Frá
og með þeim degi stýrir Donald
Trump landinu og er gert ráð fyrir
að hann sé þar með búinn að skipa
í flestar þær 4.000 stöður sem
skipt er út þegar nýr forseti tekur
við. Ólíkt forverum sínum nældi
Trump sér í forsetaembættið gegn
vilja þeirra sem ráða Repúblikana-
flokknum og mætir hann því til
leiks óháður þeirri vel smurðu vél
sem flokksmaskínur stóru flokk-
anna tveggja eru þegar kemur að
stjórnarskiptum. Hvort sem það
Bryndís Ísfold skrifar um það sem ráða má úr afrekum
Donalds Trump á undanförnum dögum, áður en hann
tekur formlega við sem forseti Bandaríkjanna.
Trump tístir á Kínverja
og ræður vini Pútins
– allt á einni viku
megi teljast heilbrigðismerki eða
ekki, að hvorugur stjórnmála-
flokkurinn sé nú við völd nema að
litlu leyti, ber undirbúningsferli
Trumps þess svo sannarlega merki
að nú séu nýir tímar.
Á milli þess sem Trump húð-
skammar leikarann Alec Baldwin
á Twitter fyrir að vera ósanngjörn
eftirherma sín í spaugstofuþætti
þeirra Bandaríkjamanna, Saturday
Night Live, eða tekur snúning á
umræðum um tilgang lífsins með
söngvaranum Kanye West á gulli
þöktu heimili sínu í New York borg,
ræður hann æðstu yfirmenn lands-
ins í margvísleg embætti og rífur
kjaft á Twitter við stórveldi heims-
ins. Ekkert er sem áður var, þetta
er hinn nýi raunveruleiki stjórn-
málanna og ráðningar Trumps eru
ekki fjarri þessum nýja fáránleika.
„Þú getur líka ekkert gert nema
sætta þig við orðinn hlut,“ ítrek-
aði nágrannakona mín með and-
vörpunartóni.
Margsaga verðandi forseti
Eins og með allt sem viðkemur
Trump, er engin leið að átta sig al-
veg á því hvort það sem hann lætur
út úr sér sé handahófskennt blaður
eða úthugsuð leikflétta. -Er Trump
heimskur eða hæfur? Það er undir-
liggjandi tónn í allri umræðu og
mögulega felst snilldin einmitt í
því að láta fólk velkjast í vafa um
hvort um ásetning sé að ræða eða
ekki. Óvissan sem það veldur held-
ur fjölmiðlum við efnið, og efnið er
Trump sjálfur.
Strax eftir kosningar dró Trump
verulega í land með fjölda stór-
karlalegustu yfirlýsinga sinna úr
kosningabaráttunni og veltu menn
fyrir sér hvort hann hygðist hann
stjórna landinu í ríkri sátt. Vonar-
Þessa vikuna virðist
Trump hafa það í hyggju
að búa til nýja stöðu
á hinu landfræðilega
valdatafli heimsins. Hvort
heldur sem er úthugs-
uð langtímastefna eða
bara hending eftir flipp
vikunnar, þá virðist það
hlutskipti heimsins alls
að sætta okkur við orðinn
hlut eða – byrja að berja
hausnum í vegg.
Myndir | Getty
Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12 s: 551-4007, Meba, Kringlunni s: 553-1199,
Meba - Rhodium, Smáralind s: 555-7711 Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554 4320
Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úr-
smiður, Hafnargötu 49 s: 421-575 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi s: 462-2509
RAYMOND WEIL söluaðilar