Lystræninginn - 01.03.1977, Blaðsíða 18

Lystræninginn - 01.03.1977, Blaðsíða 18
annað i hel, nauðgar hvert öðru, keyrir hvert annað niður. Sagði ég þér frá bil- slysinu við Hréarskeldu? Billinn £6r i klessu þegar hann kejurði á tré. Stðrt sterklegt tré. Þeir voru einir á veginum. Engir félks- bilar, engir áætlunarbilar. Einmannaleik- inn umlauk þá. Hraðinn var kominn uppí 170. - Góður bill, sagði maðurinn og sló hend- inni nokkrum sinnum á stýrið, - kraft- mikill. Billinn skildi eftir sig þoku- slóð. Maðurinn dró sigarettu uppár vas- anum og kveikti i henni með kveikj- ara. - Eiginlega keyrum við of hratt, sagði hann, - finnst þér ekki við keyra of hratt? - Já, sagði Markás. - Ég furða mig á þvi að fólk skuli keyra svona hratto Satt að segja furða ég mig á þvi að allt þetta góða fólk sé svona gefið fyrir að drepa hvert annað. Finnst yður það ekki furðulegt? - Já, sagði Markás, - mér finnst það lika furðulegt. - Þér eruð finn náungi. Það er samt furðulegt að allt þetta góða fólk sem lifir þessu fyrirmyndarlifi sé svona æst i að drepa hvert annað. 1 nafni góð- mennskunnar. - Þér eruð brjálaður, sagöi Markús allt- ieinu, - brjálaður. Maðurinn. hló hljóðlega og sagði; - Heljarmikið fallegt sjálfsmorð. Annars var það hérna sem það gerðist... Hér hjá þessu tréi. Hann benti hirðuleysislega á stóra tréð sem stóð niðri á akrinum. Billinn þaut eftir veginum sem lá i beygjum. Keyrði á rauðu yfir gangbraut- ina. Áfram i átt til Kaupmannahafnar. Hjá bensinstöð hægði hanr. ferðina og keyrði að tanknum. Afgreiðslumaðurinn kom til þeirra. - Fylla, sagði maðurinn og steig átúr bilnum. Markás sat kyrr með báðar hendur krepptar i sætinu. Maðurinn kallaði innum gluggann: - Eigum við ekki að liðka okkur? Markús steig átár bilnum. - Það er gott að fá smá hreyfingu, sagði maðurinn og gekk rösklega fram og aftur. Markás fylgdi honum eftir i hæfilegri fjarlægð og hljóp næstum við fót. Maðurinn gekk hraðar og hraðar. Markús fylgdi á eftir i hæfilegri fjarlægð. - Jæja, sagði maðurinn, - við verðum að halda áfram. Komdu. Hann gekk að bilnum'. - Heyrðu, sagði Markás og stóð kyrr, - heyrðu mig... Maðurinn snéri sér við. Markás gekk hægt til hans. Hann kreppti hnefann, lyfti honum. Maðurinn horfði brosandi á hann. - Nei, sagði hann, - nei. Þér eruð svo fínn náungi. Markási féllust hendur og fylgdi honum. Þeir settust inni bilinn og keyrðu áfram. Vernharður Linnet þýddi 18

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.