Lystræninginn - 01.03.1977, Blaðsíða 39
SKÁLDSÖGUR
SÁLMURINN UM BLÓM-
IÐ eftir Þórberg Þórðarson.
Sagan um Litlu manneskjuna,
Sobbeggi afa og Mömmu-
göggu, meistáraverk Þórbergs
frá sjötta áratugnum, loksins
komið í nýrri útgáfu.
KERLINGARSLÓÐIR eftir
Lineyju Jóhannesdóttur.
Aðalpersónan er barn ungl-
ingsstúlku sem flyst frá einum
ættingja til annars i því rót-
leysi nútíma Reykjavíkurlífs
sem höfundur er svo einkar
skyggn á. Hér er fjallað um
vandamál sem ekki hafa fyrr
verið tekin til meðferðar í ís-
lenskum bókmenntum.
LJÓÐ
JAPÖNSK LJÓÐ FRÁ
LIÐNUM ÖLDUM í þýðingu
Helga Hálfdánarsonar.
Þessi bók er enn ein sönnun
snilldar Helga Hálfdánarson-
ar sem skálds og þýðanda.
Útkoma hennar er öllum
ijóðaunnendum mikið fagn-
aðarefni. Gullfalleg bók yst
sem innst.
Tryggvi
Emilsson
ÆVIMINNINGAR
FÁTÆKT FÓLK eftir Tryggva Emilsson.
Útkoma þessarar bókar sætir einna mest-
um tíðindum á þessum vetri.
Einstæð öreigafrásögn frá Akureyri og
Eyjafjarðardölum á fyrstu áratugum þess-
arar aldar.
Frásagnargáfa höfundar er einstæð og
bókin fulltrúi hins besta í alþýðlegri, ís-
lenskri frásagnarlist.
-------- '
SAGNFRÆÐI
GALDRAR OG BRENNUDÓMAR eftir
Siglaug Brynleifsson.
Hér segir frá óhugnanlegustu 'vitfirringu
sem yfir landið hefur gengið og var einkum
bundin við Vestfirði. Rakinn er uppruni og
saga galdrafársins á Íslandi frá fyrstu
galdrabrennunni til hinnar síðustu. Þetta
er sérstæð bók, mjög forvitnilegt sagn-
fræðirit og skemmtilegt aflestrar.
i
f BrX mlSlli;.
- Ljónshjarta -f-
Astrid LindgrerT:
ÆVINTÝRI
BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA eftir
Astrid Lindgren.
Sagan um bræðurna Jónatan og Snúð
Ljónshjarta og ævintýri þeirra i furðu-
landinu Nangijala. Fögur, uggvænleg og
áhrifamikil frásögn um gott og illt — og
um leið full af töfrum og skáldskap. Þetta
er ævintýri sem á ríkulegt erindi, bæði við
börn og fullorðna.
MÁ L
OG
MENNING
H
E
I
M
S
K
R
I
N
G
L
A