Lystræninginn - 01.03.1977, Blaðsíða 24
verið mjúkur leir i höndum Steinunnar
Jðhannesdóttur leikstjóra. Þóra Grétars-
dóttir, i hlutverki Dafne, skilaði sinu
einnig mjög vel, enda mun þetta ekki hafa
verið nein frumraun hennar á sviði.
Ester Halldórsdóttir, i Ijlutverki lækn-
isins, komst einnig mjög vel frá þessu;
þótt óöryggi á texta gætti hjá henni,
hafði það ekki sjáanleg áhrif á leik
hennar. Fremur fannst mér Aldo litlaus
persóna, hverjum svo sem um má kenna.
Helgi Finnlaugsson, sem Antonio, kom
mjög vel fyrir, en staldraði aðeins stutt
við á sviðinu.
Leikmyndin var mjög einföld, enda nauð-
synlegt að hafa hana sem meðfærilegasta
fyrir farandleikhtás „
Margt smávægilegt, svo sem svunturnar
og myndin framan á borðinu (sem gleymd-
ist að setja á sinn stað) setti skemmti-
legan blæ á leikinn.
I heild fannst mér leikurinn góður og ef
marka má undirtektir sýningargesta eru
fleiri sama sinnis.
I virðingarskyni við hina gömlu leikhús-
hefð, sem Fo byggir á, léku Selfyssing-
arnir með hálfgrímur, og setti það sinn
svip á verkið.
Þvi miður fannst mér þetta koma illa nið-
ur á skýrmælgi lögregluþjónsins, sem
virtist beina orðum sinum upp i gervi-
nef sitt.
Ingis
Sá sem stelur fæti
Leikflokkurinn sunnan Skarðsheiðar:
SYSTIR MARÍA
Fyrr á þessu leikári sýndu þingeyingar
þetta leikrit Charlotte Hastings. Hún
var óþekkt skrifstofustúlka er verkið
var frumflutt i London og varð fræg af
þó sú sól sé farin að lækka á lofti.
Leikstjóri er Auður Guðmundsdóttir„
Leikfélag Vestmannaeyja:
RAUÐHETTA
Barnaleikrit Evgenís Schwarts er annað
verkefni L.V. á þessu leikári. Leik-
stjóri er Magnús Axelsson, en aðstoðar—
leikstjóri Sigurgeir Scheving. Þess má
geta að þetta er þriðja barnaleikritið
sem áhugamannafélögin frumsýna á þessu
leikári.
Leiklistarfélag M.H;
DREKINN
Dreki Schwarts er þriðja leikrit hans
sem sett er á svið á þessu leikári.
Jósef Djúgasvilí féll það þó ekki i geð
og var leikurinn ekki sýndux þar eystra
meðan gamli maðurinn réði rikjum.
Örnólf-ur Árnason þýddi leikritið sem
ekki hefur verið sýnt á sviði hérlendis
fyrr. Leikstjóri er Þórunn Sigurðarsóttii
Leiklistarklúbburinn Aristófanes:
A ÚTLEIÐ
Klúbbur þessi starfar í Fjölbrautarskól—
anum i Breiðholti og sýnir þar hið góð-
kunna leikrit Suttons Vanes.
Leikstjóri er Sigurður Lindal.
Leiknefndin i Vik:
AFBRÝÐISSÖM EIGINKONA
Verkefni vikurbúa er að þessu sinni
einn hinna ensku farsa, Afbrýðissöm
eiginkona eftir Paxton og Hoile.
Ungmennafélagið Drangur og Kvenfélag
Hvammshrepps standa að leiknefndinni„
Leikstjóri er Kristján Jónsson.
Litla leikfélagið:
KOPPALOGN
Þetta félag er nýstofnað i Garðinum og
hefur valið sem fyrsta verkefni velþekkt
leikrit Jónasar Árnasonar.
Leikstjóri er Sævar Helgason.
Litla leikfélagið:
KOPPALOGN
Þetta félag er nýstofnað i Garðinum og.
hefur valið sem fyrsta verkefni vel-
þekkt leikrit Jónasar Árnasonar.
Alltaf er gleðilegt þegar áhugamanna-
félögin sýna verk islenskra samtima-
höfunda. Leikstjóri er Sævar Helgason.
Menningarfélag Flensborgar:
ö ÞETTA ER INDÆLT STRÍÐ
Þetta ágæta verk leiksmiðju Joans
Littlewoods var sýnt í Þjóðleikhúsinu
24