Lystræninginn - 01.03.1977, Qupperneq 27

Lystræninginn - 01.03.1977, Qupperneq 27
urinri minn„ - Vertu nú góður. - Þú sem hefur alltaf verið svo þægur drengur. - Mannstu þegar þú varst litill? - Vertu nú þægur við hana mömmu þína„ - Farðu úr jakkanum. Gerðu það drengurinn minn. - Ætlarðu ekki að gegna? - Þú svarar mér ekki einu sinni„ - Ég skil ekki af hverju barnið lætur svona. Klara: Þetta kemur af þvi að dekra of mikið við hann. Gústaf: Vert þú ekki að skipta þér af þessu„ Georg: Nú vildi ég fara að fá jakkann. Gústaf: Stattu ekki svona eins- og múmia„ Sestu heldur og drekktu kaffið þitt. - Heyrirðu það„ (sonurinn byrjar að gera hermannaæfingar) Rósa: Hvaða tilburðir eru þetta? Klara: Sérðu ekki að hann er i hermannaleik? Rósa: Ég sé ekki að þetta sé neinn leikur„ - Hættu nú þessum látum. Gústaf: Hættu drengur, - Já, ætlarðu ekki að hætta. Georg: Ég mundi fara úr jakkanum ef ég væri i þinum sporum. Rósa: Þú heyrir hvað Ge- org segir„ Georg: Ég ræð þér eindregið til að fara úr jakkanum. - Ég ræð þér eindregið til þess. - Ég aðvara þig. Benedikt: (byrjar að marséra) Áfram gakk. Einn, tveir - einn, tveir.... (o.s.fr.) Snú. Einn, tveir - einn, tveir „„„„ (o.s.fr.) Snú„ (og þannig aftur og aftur) Gústaf: Þú óvirðir búninginn. - Skilurðu það ekki, - Þú óvirðir hann. - Þú ert ekki neinn hermaður. - Heyrirðu það„ Þú ert ekki hermaður. - Það fylgir því ákveðin ábyrgð að bera þennan bún- ing. - Það fylgja því skyldur. - Hann er tákn hugsjóna. - Hann er tákn frels— is. - Það á að sýna búningnum virðingu. - Það á að sýna honum sömu virðingu og þjóðfánanum. - Þú ætlar ekki að hætta. - Það mætti halda að þú hefðir ekki fengið neitt uppeldi. - Það er ekki að sjá að þú gangir i skóla. Georg: Nú vil ég fá jakkann. - Ég vil fá jakkann. - Ég vil fá jakkann ef þér er sama. Gústaf: Hlýddu hermanninum. Georg: Þolinmæði minni eru takmörk sett. Gústaf: Hlýddu honum áður en verra hlýst af. Georg: Ég hef reynt á þolinmæði mína til hins ýtrasta. - Þú ættir að hætta að marséra og fara úr jakkanum. Rósa: Þú ert þó ekki að reyna að stofna til vand- ræða? Georg: Þú ættir að hætta að mars- éra. Rósa: Drengurinn minn hlýddu. Georg: þú ættir að hætta þvi strax. - Ég skipa þér að hætta að marséra. Rósa: Drengurinn minni Georg: Ég skipa þér. Gústaf: Hvað ætlarðu þér eiginlega? Georg: Hættu að marséra. - HÆTTU (stend- ur upp - pilturinn marsérar enn einu sinni fram og til baka, nemur siðan staðar og gerir æfingar) Georg: Ég vil fá jakkann. - Ég vil fá jakkann, segi ég. Gústaf: Láttu Georg hafa jakkann. Georg: (stigur skref i áttina til pilts- ins) Ég vil fá jakkann minn. (pilturinn hættir æfingunum og stendur kyrr) Jakk- ann. (hermaðurinn stigur annað skref) Jakkann, segi ég. - Þú ætlar ekki að láta mig hafa jakkann? (hermaðurinn stigur annað skref - pilturinn tekur upp byssuna) Rósa: Almáttuguri Klara: Bennii Gústaf: Gættu að þér drengur. Georg: Jakkann minn. Benedikt: Sestu. Rósa: Þetta er hættulegt vopn. Georg: Settu byssuna niður. Benedikt: Sestu. Rósa: Það má drepa með þessu vopni. Gústaf: Ég vona að þú vitir hvað þú ert að gera. Georg: þú ætlar ekki að setja byssuna niður. Benedikt: (stigiir skref fram) SESTU. (hermaðurinn sest — piltur— inn við hin sem einnig hafa staðið upp) Og þið lika. Gústaf: Eigum við ekki að fara að hætta þessum leik. Benedikt: Já setjist þið. (þau setjast) Rósa: Þú ger- ir okkur hrædd. Benedikt: Hljóð. Gústaf: Reyndu að sýna ofurlitla skynsemi. Benedikt: HLJÓÐ. Hér er áriðandi til- kynning: - Friðurinn er i hættu. Styrj- öld er yfirvofandi. Myrkraöflin hafa hreiðrað um sig á meðal þjóðarinnar og brugga henni fjörráð. Við höfum þegar séð fyrstu merkin: Rotnunina. Frumurnar deyja, heilinn verður sljór, viljinn lamast. óvinirnir hafa dregið lokur 27

x

Lystræninginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.