Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Page 9

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Page 9
Ingibjörg R. Magnúsdóttir NÁM HEILBRIGÐISSTÉTTA Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaráSuneytinu, kynnir hér nýja reglugerð um nám sjúkraliða. Haustið 1965 fengu þrjú sjúkrahús leyfi heil- brigðisyfirvalda til að halda námskeið í sjúkra- hjálp. Það voru Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri, St. Jósefsspítali að Landakoti og Klepps- spítalinn. Nokkru síðar bættust Borgarspítalinn og Landspítalinn í hópinn og haustið 1966 Sjúkrahús Akraness. Reglugerð um sjúkrahjálp var gefin út af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í nóv. 1965. Þar var kveðið á um tilgang námsins, inntöku- skilyrði, próf og einkunnagjöf, kostnað við nám- skeið, laun nemenda og fleira. Námstími var ákveðinn 8 mánuðir, námið var fyrst og fremst verklegt, en bóknám um 80—100 stundir. Á þessum árum hafa verið haldin 31 nám- skeið og brautskráðir 359 sjúkraliðar alls. Það skiptist þannig niður á sjúkrahúsin: Rorgarspítalinn Námskeið 6 Sjúkro.liðar brautskr. 66 Fj órðungss j úkrahúsið á Akureyri 6 80 Kleppsspítalinn 5 36 Landakotsspítalinn 6 80 Landspítalinn 5 68 Sj úkrahús Akraness 3 29 Alls 31 359 í desember s.l. gaf heilbrigðis- og trygginga- oiálaráðuneytið út nýja reglugerð um nám og störf sjúkraliða. Þær breytingar, sem gerðar v°i'u, eru þær, að námið er lengt úr 8 mánuðum UPP í 1 ár og bóknám verður nú um 208 stundir ulls. Nýjum námsgreinum var bætt við, svo sem sálarfræði og sjúkdómafræði, og aðrar auknar. Hin nýja reglugerð var send sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum, en þó þykir mér rétt að birta hana hér í heild. Stj.tíð. B, nr. 254/1971. Reglugerð um nám og störf sjúkraliða I. KAFLI Markmið og stjórn sjúkraliðaskóla. 1. gr. Samkvæmt reglugerð þessari og með leyfi ráðherra er deildaskiptum sjúkrahúsum heimilt að starfrækja sjúkraliðaskóla. 2. gr. Hlutverk skólans er að kenna fólki einföld hjúkrunarstörf, er það síðan vinnur undir stjórn hjúkrunarkvenna. 3. gr. Forstöðukona sjúkrahússins er skólastjóri skólans og ber ábyrgð á honum gagnvart heil- brigðisráðuneytinu. II. KAFLI Inntökuskilyrði. 4. gr. Inntökuskilyrði skólans eru: 1. Umsækjandi skal vera fulh-a 18 ára. 2. Umsækjandi skal hafa lokið lokaprófi skyldu- námsins. 3. Umsækjandi skal vera heilsugóður andlega og líkamlega. 5. gr. Umsóknir um skólavist skal senda foi’stöðu- konu. Umsókn skal fylgja: 1. Staðfest afrit af prófskírteini. 2. Læknisvottorð. 3. Sakavottorð. 4. Meðmæli (vinnuveitanda eða skólastjóra). III. KAFLI Námstími og námsefni 6. gi’. Námstími skólans skal vera 1 ár, þar með talið sumarleyfi. Námið er bæði bóklegt og verklegt. í byrjun TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 43

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.