Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 30
Bæklunarlækningadeild
tekin til starfa
BæMunardeild Landspítalans var formlega
opnuð mánudaginn 7. febr. s. 1. Deildin er sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Þessi nýja deild er á annarri hæð í Austur-
álmu nýbyggingar spítalans, og eru þar 23
sjúkrarúm.
Deildarhjúkrunarkona er Jóhanna Bene-
diktsdóttir.
En yfirlæknir deildarinnar, er dr. med.
Stefán Haraldsson, auk hans starfa við deildina
sérfræðingarnir Höskuldur Baldursson og Jó-
hann Guðmundsson.
Hjúkrunarnám fyrir ljósmæður
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
gengst fyrir kennslu í hjúkrunarfræðum fyrir
ljósmæður, svo þær geti öðlazt hj úkrunarrétt-
indi.
Kennslutímabilið verður um 2 ár og hefst 1.
október 1972.
Rétt til þátttöku eiga allar ljósmæður, að af-
loknu inntökuprófi. — Fyrir inntökupróf verður
þátttakendum gefinn kostur á 4—6 vikna undir-
búningsnámskeiði.
Um sumarfrí
Úr lögum um orlof frá 24. desember 1971:
1. gr.
Allir þeir, sem starfa í þjónustu annarra gegn
launum, hvort sem þau eru greidd í peningum
eða öðrum verðmætum, eiga rétt á orlofi ásamt
orlofsfé eða launum samkvæmt reglum þessara
laga.
2. gr.
Lög þessi rýra ekki víðtækari eða hagkvæm-
ari orlofsrétt samkvæmt öðrum lögum, samn-
ingum eða venjum.
Samningur um minni rétt til handa launþeg-
um en lög þessi ákveða er ógildur.
3. gr.
Orlof skal vera 2 dagar fyrir hvern unninn
mánuð á síðasta orlofsári og reiknast hálfur
mánuður eða meira sem heill mánuður, en
skemmri tími telst ekki með. Það telst vinnu-
tími samkvæmt þessari grein, þótt maður sé frá
vinnu vegna veikinda eða slysa, meðan hann
fær kaup greitt, eða hann er í orlofi. Sunnu-
dagar og aðrir helgidagar teljast ekki orlofs-
dagar.
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
María Pétursdóttir, hjúkrunarkennari, mun
annast stjómun námsins, en lokapróf fara fram
við Hjúkrunarskóla Islands.
Umsóknir um þetta nám svo og undirbúnings-
námskeiðið sendist til ráðuneytisins fyrir 1. júní
og þar eru veittar allar frekari upplýsingar.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
24. apríl 1972.
Vr U. gr.
Af orlofinu skal a. m. k. 21 orlofsdagur veitt-
ur á tímabilinu frá 2. maí til 15. september. Ef
orlof er skemmra en 21 dagur, skal það veitt
í einu lagi á þessu tímabili. Afganginn af orlof-
inu skal einnig veita í einu lagi, en það má
veita á öðrum tíma árs.
Vr 7. gr.
Atvinnurekandi skal greiða í orlofsfé 8%%
af launum.
Ákvæði til bráðabh’gða:
Orlofslaun fastra starfsmanna miðast við 22
daga virka á árinu 1972.
Að öðru leyti vísast til fyrri ákvæða um orlof,
í Lög og reglur er varða ríkisstarfsmenn, 1.
kafla, 1. gr. í reglugerð um orlof og veikinda-
forföll, þar sem segir: Þeir starfsmenn, sem
hafa 10 ára starfsaldur, skulu fá orlof í 24 virka
daga. Starfsmönnum, sem eiga að baki lengri
starfsaldur en 15 ár, skal veita orlof allt að
27 virkum dögum.