Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Síða 36
NÁMSKEIÐ
FYRIR
DEILDAR'
HJÚKR UNAR'
KONUR
FræSsluviálanefnd
Hjúkrunarfélags íslands
gekkst fyrir því, dS haldid
var námskei'ö fyrir deitdar-
' hjúkrunarkonur dagana 31.
janúar—18 febrúar 1972 aö
Hótel Loftleiöum. Er þetta
annaö námskeiö sinnar teg-
undar, en hiö fyrra var
haldiö aö Hallveigarstööum
dagana 19. apríl — 8. maí
1971. Af þessu tilefni
hringdi ritstjórnin til
nokkurra þátttakenda og átti
viö þá stutt spjall.
Elsa Kemp, aðstoðarforstöðu-
kona, Vífilsstöðum.
Álítur þú, aö slíkt námskeiö
sem þetta sé mikill ávinningur
fyrir stéttina?
Já, það tel ég-. Þarna voru
kynntar ýmsar stofnanir, og var
það mjög jákvætt, t. d. má
nefna Félagsmálastofnunina og
Tryggingastofnunina. Að nám-
skeiðinu loknu höfum við meiri
möguleika á að kynna þessar
stofnanir fyrir sjúklingum og
svara fyrirspurnum þeirra.
Einnig fannst mér mjög fræð-
andi að heimsækja sjúkrahúsin,
t. d. Kleppsspítalann. Þangað
hafði ég ekki komið, síðan ég
var nemi, og þar hafa orðið
geysilegar breytingar til hins
betra. Námstímarnir um stjórn-
un almennt og stjórnun sjúkra-
deilda voru mjög fræðandi og
eiga eflaust eftir að koma að
góðu haldi.
Kom námskeiöiö þér á óvart?
Það voru nokkrar hjúkrunar-
konur héðan, sem sótt höfðu
fyrra námskeiðið, og voru þær
búnar að kynna þetta fyrir okk-
ur, þannig að ég get ekki sagt,
að námskeiðið hafi komið mér
á óvart.
Er eitthvaö, sem þú vildir
gagnrýna?
Mér fannst allt námsefnið,
sem tekið var fyrir, koma að
miklu gagni, og hefði ekkert af
því mátt missa sig.
Mundir þú sækja hliöstætt
námskeiö, ef kostur væri á?
Já, mjög gjarnan, ef ég hefði
tækifæri til.
Hvaö er þér efst í huga aö
námskeiöinu loknu?
Mér er efst í huga, hversu
mikil undirbúningsvinna liggur
að baki, og álít þetta gífurlega
mikið framtak af hálfu þeirra,
sem að námskeiðinu stóðu, og
að sjálfsögðu er ég mjög þakk-
lát fyrir að hafa haft tækifæri
til þátttöku.
Lilja Harðardóttir, yfirhjúkr-
unarkona, Slysavarðstofu Borg-
arspítalans.
Telur þú, aö slík námskeiö
eigi aö halda reglulega?
Já, a. m. k. einu sinni á ári,
og þá væri æskilegt að gefa
fleiri en deildarhjúkrunarkon-
um kost á að sækja námskeiðin.
Þetta er mjög góður undirbún-
ingur fyrir þær, sem síðar taka
að sér störf deildarhjúkrunar-
kvenna. Þessi tvö námskeið,
sem haldin hafa verið, hafa
ljóslega sýnt áhuga hjúkrunar-
kvenna á slíkri fræðslu.
Kom námskeiöiö þér á óvart?
Já, mér fannst námskeiðið
vera yfirgripsmeira en ég bjóst
66 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS