Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 45
FRÉTTIR og TILKYMR
Hjúskapartilkynnlngar.
Rannveig S. Ólafsdóttir og Árni Sören-
sen.
Sigríður Snæbjörnsdóttir og Sigurður
Guðinundsson.
Guðrún Ólafsdóttir og Sigurjón Ey-
steinsson.
Ólafía Pálsdóttir og Arnar H. Guð-
jónsson.
Erna B. Sigurðardóttir og Helgi Hjálrn-
arsson.
Ágústa Jónsdóttir og Þórliallur Þor-
valdsson.
Erna G. Sigurjónsdóttir og Gunnar
L. Björnsson.
Dórothea Sigurjónsdóttir og Hilniar
Karlsson.
Erla Friðriksdóttir og Halldór Jónas-
son.
Alniemiur fólagsfundur HFI
var haldinn mánudaginn 20. marz s. I.
í Súlnasal Hótel Sögu.
Fundarefni:
1. Nýir félagar teknir inn.
2. Kosning fulltrúa á þing SSN.
3. Uniræður uin samstarf hjúkrunar-
kvenna og neina á deildunuin. Lilja
Óskarsdóttir stjórnaði umræðunum.
34 nýútskrifaðar hjúkrunarkonur voru
tekiiar inn í HFI. Forinaður ávarpaði
hina nýju félaga og bauð þá velkomna.
Síðan fór frani kosning fulltrúa á þing
SSN. Kosnir voru söinu fulltrúar og sátu
á s. I. þingi.
Því næst fóru frani umræður uni
samstarf hjúkrunarkvenna og nema.
Þátttakendur í uniræðunum voru fyrir
liönd hjúkrunarkvenna: Lilja Óskars-
dóttir deildarhjúkrunarkona, Landspítal-
anuin, og Sigríður Júlíusdóttir, lijúkr-
unarkona, Landspítalanuni. Fyrir hönd
lijúkrunarnenia: H. Jóhanna Steinþórs-
dóttir, nýútskrifuð hjúkrunarkona, Mar-
grét Gunnarsdóttir hjúkrunarneini, Björg
Ólafsdóttir hjúkrunarnenii, Ólína Torfa-
dóttir hjúkrunarnemi og Helga Einars-
dóttir lijúkrunarnemi.
Yniislegt har á góma í uniræðum þess-
um og virtist ýmsu áhótavant í sam-
starfinu. Margvíslegar fyrirspurnir komu
frá nemunum, sem dæmi má nefna:
Hvernig getur hjúkrunarkonan hreytt
störfuin sínum, til að nemandiun fái
seni mest út úr námi sínu og starfi á
deildum? Heldur voru hjúkrunarkonur
tregar við að koma upp og svara fyrir-
spurnum. Þeim til afsökunar má kannski
segja, að auðveldara sé að draga gall-
ana og það, sem miður fer, frain í dags-
ljósið, en erfiðara að koma ineð hald-
góð ráð til úrbóta, enda varð raunin
sú, að lítið kom af góðum ráðum frá
nemunum. Móttaka neinans á deild og
einkunnaseðillinn voru rædd m. a. Gerði
Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarkona það
að tillögu sinni, að skipuð yrði þriggja
manna nefnd til að endurskoða ein-
kunnaseðilinn.
Uinræðurnar urðu allfjörugar undir
lokin, og urðu niargir nemar til að
taka til máls. Einstaka sýndi viðleitni
við að nefna það, sem þær gátu verið
ánægðar með, eins og góða tíma og til-
sögn á suniuni deildum. Vonum við, að
einhver megi hafa gagn af umræðum
þessum, en auðséð var, að efnið liefði
mátt ræða töluvert lengur en tímiiin
leyfði á þessum fundi.
Al|ijói>a
lijúkrunarkveimadagurimi.
Hinn 12. inaí 1972 eru liðin 152 ár
frá fæðingu Florence Niglitingale. Hjúkr-
unarfélög í niörgum löndum lialda þenn-
an dag hátíðlegan til minningar um
Florence Nightingale, sem lagði grund-
völlinn að nútíniahjúkrun, og einnig
lialda þau liann hátíðlegan til minningar
um brautryðjendur lijúkrunarstéttarinnar
í heimalöndum sínuin.
Arið 1965 samþykkti framkvæmda-
stjórn ICN, að 12. maí skyldi vera al-
þjóðlegur hjúkrunarkvennadagur.
I tilefni þessa dags liefur ICN lagt
fram tillögu um efni, sem hin ýmsu
hjúkrunarfélög geta síðan haft sem uppi-
stöðu í dagskrá á alþjóða lijúkruuar-
kvennadaginn í viðkomandi landi.
AHaldagskrárefni þetta ár mun fjalla
um hlutverk hjúkrunarkonunnar í stefnu-
niótun og áætlunargerð innan heilbrigðis-
þjóiiustunnar.
GRÍSK HJÚKR UNARKONA HEIMSÆKIR ÍSLAND
Gríska hjúkrunarkonan Vasiliki Georg-
opoulou jrá Larissa kom hingaS til
lands 26. marz. Hún var á vegum Al-
þjóðalieilhrigðismálastofnunarinnar og
dvaldist hér eina viku til að kynna sér
ýmsa þætti hcilbrigðismála hér á landi.
Heimsótti hún Reykjalund, Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur, Hjúkrunar-
skóla íslands, Leitarstöð Krahbameinsfé-
lags Islands, Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar, Landspítalann og Borgarspítal-
ann.
Hingað kom hún frá Englandi og
fór liéðan sömu erinda til Noregs og
Finnlands.
Vasiliki Georgopoulou er yfirhjúkrun-
arkona heilsuverndarstöðvar Larissa, en
undir hennar stjórn starfa 20 heilsu-
veriidarhjúkrunarkonur.
Hún lauk hjúkrunarnámi árið 1960
við hjúkrunarskólann, sem Evangelismos-
spítalinn í Aþenu rekur, en það er ann-
ar hezti hjúkrunarskóli Grikklands. Hinn
er skólinn, sem Rauði kross Grikklands
starfrækir, en alls eru 9 hjúkrunarskólar
í Grikklandi. Allir eru þeir þriggja ára
skólar, en til viðbótar er krafizt eins
árs starfstíma, áður en nemendur fá
full réttindi sem hjúkrunarkonur. At-
hyglisvert er, að í Grikklandi er krafizt
undirhúningsmenntunar, er samsvarar
stúdentsprófi liér.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 75