Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1976, Qupperneq 44
Félagsgjöld
Félagsgjöld í HFI eru nú, samkv. samþ.
affalfundar frá 1974 15% aí 18. lfl. 3.
þrep. Samkvæmt því hefðu félagsgjöld
1976 orðið kr. 10.500 fyrir hjúkrunarfræð-
inga í fullu og starfi (voru kr. 8.000
1975).
A stjórnarfundi 3. nóv. 1975 var sam-
þykkt, með tiliiti til fjárhags félagsins, að
innheimta félagsgjöld óbreytt á fyrri hluta
ársins 1976. Fulltrúafundur tekur ákv. um
félagsgjöld og mun tillaga um lækkun
prósenttölunnar verða lögð fyrir fundinn.
Félagsfundur
HFÍ hélt félagsfund í Domus Medica 20.
janúar s.l. kl. 20.30.
Fundarefni: Menntunarmál hjúkrunar-
fræðinga.
Ingibjörg Helgadóttir, formaður HFI,
setti fundinn og bauð fundarmenn vel-
komna og lét í Ijós ánægju sfna yfir því
hversu góð fundarsókn væri, þrátt fyrir
mikla snjókomu og ófærð.
Formaður tilnefndi Þuríði Backman
fundarstjóra og Sigríði Einvarðsdóttur og
Unni Rósu Viggósdóttur, fundarritara.
Ingibjörg Helgadóttir og Nanna Jónas-
dóttir fjölluðu því næst um menntunar-
mál hjúkrunarfræðinga og þá afstöðu sem
stjórn HFI hefur tekið, og Sigurveig Sig-
urðardóttir talaði um mikilvægi samstöðu
félagsmanna í jafn veigamiklu máli.
Formaður skýrði m. a. frá því, að núver-
andi stjórn HFI hafi komist að þeirri nið-
urstöðu að hún treysti sér ekki til að
styðja tillögu fyrrverandi stjórnar HFÍ
varðandi hjúkrunarnám (2. tölublað 1974).
Tillaga þessi var send nefnd þeirri, er
starfar á vegum menntamálaráðuneytisins
og endurskoða á gildandi löggjöf um
hjúkrunarnám. Frá nefndinni var skýrt í
„Fréttabréfi I mars 1974“.
Þær breytingar hafa orðið í nefndinni að
Elín Eggerz Stefánsson baðst lausnar sem
fulltrúi félagsins vegna skoðanamunar við
stjórn HFÍ, og Sigurhelga Pálsdóttir, yfir-
kennari baðst lausnar sem starfsmaður og
ritari nefndarinnar, vegna anna í HSL
Við störfum starfsmanns og ritara tók
Elín Eggerz Stefánsson.
Stjórn HFÍ tilnefndi þá formann félags-
ins, Ingibjörgu Helgadóttur í stað Elínar.
Markmið þessa fundar var að kynna af-
stöðu stjórnar HFÍ til endurskoðunar á
gildandi löggjöf um hjúkrunarnám og
leita álits félagsmanna með það fyrir aug-
um að leggja það síðan fram í nefndinni.
Afstaða stjórnarinnar var í meginatriðum
á þessa leið:
38
1. Við endurskoðun á lögum Hjúkrunar-
skóla Islands er nauðsynlegt að vinna
að samræmingu á námi skólans og
hjúkrunarnámi Háskóla Islands, þannig
að stefnt sé að því að grunnmenntun í
hjúkrun verði öll á sama stigi í fram-
tíðinni.
2. Inntökuskilyrði í HSt verði stúdents-
próf eða sambærilegt próf (gera þyrfti
ráff fyrir 2ja-3ja ára aðlögunartíma).
3. Nýi hjúkrunarskólinn annist framhalds-
menntun í sérgreinum hjúkrunar.
4. Nemendur þiggi ekki laun á námstím-
anum (eigi aðgang að lánasjóðum
námsmanna).
5. Nauðsynlegt er að hjúkrunarfræðingar
eigi ,að loknu hjúkrunarnámi, kost á
menntun í kennslu, stjórnun og rann-
sóknum á hjúkrunarsviði og að sú
menntun verði innan H.í. Hér yrði að
gera ráð fyrir því að hjúkrunarnáms-
brautinni í H.í. verði breytt frá núver-
andi mynd þannig að hún annist ein-
göngu menntun fyrir hjúkrunarfræð-
inga.
6. Kennslukraftur:
Hjúkrunarfræðingar er þegar hafa öðl-
ast kennararéttindi annast kennslu í
grunn- og sérnámi með aðstoð annarra
hjúkrunarfræðinga. Kennslu í H.í. ann-
ist þeir hjúkrunarfræðingar er þegar
hafa lokið framhaldsmenntun í kennslu
og stjórnun ásamt kennurum H.í. og í
byrjun verði fengnir kennarar erlendis
frá eftir því sem þörf krefur.
Stjórnin telur að með þessu verði tryggt
að þeir hjúkrunarfræðingar, sem Ijúka
munu framhalds- og/eða æðri menntun,
til viðbótar við þá grunnmenntun sem er
sameiginleg allri hjúkrunarstéttinni, verði
í þeirri aðstöðu að geta metið þarfir allrar
stéttarinnar og þá þjónustu sem hún lætur
í té.
Um 30 manns tjáðu sig um málið, ýmist
með eða á móti. Greinilegt var þó að til-
lögur stjórnarinnar áttu yfirgnæfandi fylgi
að fagna.
I umræðunum kom m. a. fram að stjóm
Reykjavíkurdeildar HFÍ hafði einnig end-
urskoðað afstöðu sína gagnvart stuðnings-
yfirlýsingu við tillögu stjórnar HFÍ (2.
tölubl. 1974).
Fundinn sóttu 170 manns og honum lauk
kl. 0.30. /. Á.
Þakkir
Stjórn og ritstjórn HFÍ ásamt deild heilsu-
verndarhjúkrunarkvenna, þakka ég fögur
blóm mér send sjötugri.
Ennfremur þakka ég vinum og samherj-
um annars konar kærleiksvott og biff ykkur
öllum blessunar.
Margrét Jóhannesdóttir.
Rit send skrifstofu HFl
árið 1975
Frá Dansk Sygeplejerád:
Administration af sygeplejen.
Anatomi og Fysiologi, 1. hefti.
„Sygepleje i forbindelse med ileo- og
colostomiopererede patienter"
Anatomi og Fysiologi, 2. hefti.
Samfundsmedicin.
Geriatrisk medicin og langtidsmedicin.
„En undersögelse vedrörende sygepleje -
Sygeplejerskens rette forskningsomráde".
Frá Svensk sjuksköterskeförening:
Rapport om utredning angáende sjuks-
köterskors/assistenters medverkan i per-
sonalanskaffning under kvallstid samt
veckoslut och helger.
Behörighet för innehav av sjuksköterske-
tjánster.
Kopplade avdelningar.
Redovisning av SHSTF :s hefattnings-
nomenklaturgruppers arbete fram till
oktober 1974 - delrapport II.
Lákemedels-rákning.
Frá Finlands sjuksköterskeförbund:
Hálsovárdsutbildningskommitténs betánk-
ande. (Forkortning).
Frá Esselte Studium, Svíþjóð:
„Integration och helhet i sjukvárdsut-
bildningen".
„Attityder till sjukvárdsarbete och sjuk-
várdsstudier".
„Aldrande och áldringsvárd. Biologiska,
psykologiska och sociala aspekter".
Frá Torbjörn Lundman AB, Svíþjóð:
„Akutvárd vid hjártinfarkt".
Frá Idunn Heldal Haugen, Det kongelige
sosialdepartm ent:
NOU 1973: 12 Organisasjonsmönster for
sykepleietjenesten pá postplan.
NOU 1974: 32 Intern opplæring i helse-
sektoren.
NOU 1975: 35 Funksjons- og ansvarsom-
ráde for avdelingssykepleiere og kontor-
assistenter.
NOU 1975: 48 Bemanning og personell-
normering ved kirurgiske og medisinske
sykeposter.
Frá Norsk Sykepleierforbund:
Grunnleggende sykepleie I.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS