Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Page 8
MYND 1. Hluti útbúnaðar við ECLA meðferð á Landspítala.
j ! 1 [i » ' 1 K . / jj*- . . ;
f *■ [juj J_f|j í U 1 jjf
i1 Ká ^ > ir. .ár fr /■ I I U i
p M
Mi 59
minnkuð með því að lækka líkamshita niður
í 34 - 35 gráður á Celcíus, ásamt því að fram-
kalla algera vöðvaslökun og djúpt meðvit-
undarleysi.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir voru blóðgasgildi
sjúklings í öndunarvél á 100% súrefni óviðun-
andi. Innöndunarþrýstingur í lungum fór
hækkandi og féll sjúklingur verulega í súrefnis-
mettun við allt áreiti, s.s. við sogun frá barka-
slöngu og hreyfingu. Á fjórða degi frá slysi var
ljóst að einungis full lungnaaðstoð utan líkama
gæti bjargað lífi sjúklings.
Eftir að ECLA meðferð var hafin var sjúk-
dómsgangur áfram stormasamur. Sjúklingur
fékk nýrnabilun og þurfti kviðskilun í 2-3 sólar-
hringa sem framkvæmd var af hjúkrunarfræð-
ingum á gjörgæsludeild. Auk endurtekinna
blóðsýkinga fékk sjúklingur tvisvar loftbrjóst
svo að setja þurfti inn brjóstholskera. Kalsár
komu á tær og hæla beggja fóta vegna lélegrar
blóðrásar til húðar en hún var afleiðing lang-
varandi kælingar.
Loftskiptahæfni lungans batnaði smám
saman og var ECLA meðferð hætt á 39. degi.
Við tók venjuleg meðferð í öndunarvél og var
sjúklingur vaninn af öllum svæfinga- og deyfi-
lyfjum. Ströng andleg og likamleg endurhæfing
var fram undan. Barkaslanga var fjarlægð á 74.
degi frá slysi og útskrifaðist sjúklingur af gjör-
gæsludeild fáum dögum síðar.
Hvaö er ECLA (extracorporeal lung
assistance)?
Með tilkomu aðferða til að súrefnismetta blóð
utan líkama (extracorporeal oxygenation) urðu
fyrstu opnu hjartaaðgerðirnar mögulegar á
sjötta áratugnum (Estrada,1992; Roberts og
Jones,1990). í kjölfarið þróuðust aðferðir sem
beita mátti hjá sjúklingum með læknanlegan
lungnasjúkdóm þegar hefðbundnar aðferðir
reynast árangurslausar. ECLA meðferð er
lungnaaðstoð sem felst í því að blóði er veitt
út úr líkama og dælt í gegnum gervilunga
sem mettar blóðið súrefni og fjarlægir kol-
I