Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Síða 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Síða 9
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. árg. 1994 Anna Elísabet Ólafsdóttir, Gunnhildur Valdimarsdóttir og Svala Karlsdóttir Megrunarmeðferð á Heilsustofnun NFLÍ A Heilsustofnun NLFI eru í boði megrunarnámskeið þar sem meginmarkmiðið er að kenna fólki aðferðir sem bceta heilbrigði og efla vilja þess og getu til að ná kjörþyngd. Á fjögurra vikna námskeiði léttist hver þátttakandi að meðaltali um 6,2 kg. Niðurstöður könnunar, sem gerð var meðal 37 þátttakenda á námskeiðum sem haldin voru tímabilið nóvember 1992 til desember 1993, sýna að 60% þeirra höfðu haldið áfram að léttast, um allt að 25 kg. 24% höfðu staðið í stað en 16% höfðu þyngst um 1—5 kg. Anna Elísabet Ólafsdóttir: B.Sc. próf í matvælafræði frá HÍ 1987, framhaldsnám í næringarfræði við Háskólann í Ósló 1991. Starfandi næringarfræðingur við Heilsustofnun NLFÍ frá 1991 til 1994. Rekur Næringarráðgjöfina sf. og er í hlutastarfi sem fræðslu- fulltrúi Náttúrulækningafélags íslands. Gunnhildur Valdimarsdóttir: Próf frá Hjúkrunarskóla íslands 1967, í svæfmgarhjúkrun 1972 og í upp- eldis- og kennslufræði frá KHÍ 1979. Stundar nám við náms- braut í hjúkrunarfræði, HÍ og er hjúkrunarforstjóri Heilsustofnunar NLFÍ. Svala Karlsdóttir: Próf frá Hjúkr- unarskóla íslands 1969 og í skurðhjúkrun 1971. Hjúkrunar- fræðingur við Heilsustofnun NLFÍ frá 1992 til 1994. Nú hjúkrunar- forstjóri við heilsugæslustöðina í Hveragerði. Inngangur Efling heilbrigðis byggir í grundvallaratriðum á virkni og framlagi einstaklingsins og þeim lífsstíl sem hann velur sér. Þetta rýrir þó ekki mikilvægi almennra heilsuverndandi þátta, en mikilvægt er að fólk hafi styrk og þekkingu til að tileinka sér möguleika sem fyrir hendi eru og hugrekki til að taka á sig ábyrgð á eigin heilbrigði. Ekki er alltaf auðvelt að koma f veg fyrir sjúkdóma og sjá nýjar víddir til að auka vellíðan og lífsyndi. Þessir þættir koma fram í athöfn og hugsun í daglegu lífi og þeim lífsmáta sem einstaklingurinn fylgir, fjölskylda hans eða stærri samfélög. Venjur tengdar mataræði, hvíld, hreyfingu og hvers konar líkamsstyrkingu eru snar þáttur í menningu hverrar þjóðar og ganga í arf frá foreldrum til barna og frá þjóðfélagshópum til þjóðfélagshópa. Ekki er um að ræða líffræðilegan erfðaþátt heldur arfleifð af lífsmunstri sem getur verið erfitt að breyta (Edelman og Mandle, 1986). Þar sem hver einstaklingur tileinkar sér ákveðn- ar venjur sem í heild mynda ákveðinn lífsmáta getur hann breytt venjum sínum og skapað sér nýjar að eigin vild. Út frá athugun á eigin ástandi setur hann sér markmið varðandi breytingar á lifnaðarháttum, s.s. mataræði og hreyfingu. Mikil- vægt er að líta til langs tíma því allar breytingar verður að gera á löngum tíma. Tími er því lykil- atriði í lífsstílsbreytingu og er rík áhersla lögð á að megrunarmeðferðin sé aðeins byrjun á löngu ferli. Einstaldingurinn lærir hægt og sígandi að laga sig að nýjum venjum sem hann velur sjálfur og sættir sig við, með það að markmiði að ná kjörþyngd og halda henni til frambúðar (Björvell, 1991). Aðferð Til að koma til móts við þarfir þeirra sem stöðugt eru að glíma við offitu var hafist handa við undirbúning að megrunarnámskeiðum í Heilsu- stofnun NLFI um mitt ár 1992. Fyrsta námskeið- ið var haldið í september 1992. Námskeiðstími var fjórar vikur og fylgdu hóparnir, sem skipaðir voru 5-8 manns, ákveðinni stundaskrá þær fjórar vikur sem námskeiðin stóðu. Meðferðin var byggð upp með aðaláherslum á líkamsrækt, fræðslu og stuðn- ing. I líkamsræktinni felst hreyfing og þjálfun, slökun, hvíld og almenn styrking. I fræðslunni er lögð áhersla á aukna þekkingu á heilbrigðu líferni og aðferðum til að ná árangri í að bæta heilsuna. Þá er ætíð markvisst stuðlað að viðhorfsbreytingu þátttakenda. 1 stuðningi felst m.a. eftirlit, viðtöl, leiðbeiningar, hvatning og mat á úthaldi í þjálfun- armeðferð. Sérhæfð meðferð hjá sjúkraþjálfara og/eða sjúkranuddara var einstaklingsbundin og ekki inni í hefðbundinni dagskrá. Meðferðarteymi var skipað lækni, hjúkrunar- fræðingi, næringarfræðingi, sjúkraþjálfara og 9

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.