Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Page 7
Alþjóðleg baráttumál
Tvær litlar auglýsingar, sem birtast í þessu
tölublaði, eru umfjöllunarefní mitt í þessu
spjalli. í báðum tilfellum eru alþjóðasamtök
kvenna að auglýsa fundarefni á alþjóðlegum
degi samtaka þeirra. Sá fyrri er 8. mars,
alþjóðlegur baráttudagur kvenna, sem Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga á aðild að, en
þar er yfirskriftín „Fordómar og kynþáttamis-
rétti". Sá síðari er dagur Alþjóðasamtaka
hjúkrunarfræðinga, ICN, 12. maí, afmælis-
dagur Florence Nightingale, sem að þessu
sinni er helgaður baráttu gegn ofbeldi.
Þessi málefni tengjast því fordómar og
misrétti af ýmsu tagi er ein algengasta
orsök ofbeldis og undirrót styrjalda um
heim allan. Ofbeldi gegn konum byggist
einnig á fordómum og misrétti.
Alþjóðasamtök hjúkrunarfræðinga, ICN,
eiga uppruna sinn í alþjóðasamtökum
kvenna og baráttumálin eru því svipuð, það
er tiltekinn hópur sem lætur sig þessi
málefni varða, fólk sem ber virðingu fyrir
manneskjunni hvar sem hún stendur með
tilliti til kynferðis, kynþáttar eða stéttar.
Ég hitti hjúkrunarfræðing um dagínn sem
sagði mér frá því að þegar hún var við nám
erlendis hefði hún haft dóttur sína hjá
kóreskri dagmóður. Dagmóðirin talaði
eiginlega ekkert nema móðurmál sitt.
Aðspurð hvort hún hefði ekki látið það trufla
sig þegar hún hefði tekið ákvörðun um að
hafa barnið hjá henni, var svarið nei og hún
bætti við að það væri auðvelt að sjá hvort
viðkomandi væri almennileg manneskja þó
ekki væri hægt að tala við hana á sama
tungumáli. Dóttir hennar hefði lært kóresku
og fengið mikinn áhuga á asískri menningu. í
framhaldinu spunnust umræður um hvernig
umönnunarstörf tengjast mismunandi
menningu þjóða, hjá sumum þjóðum er mjög
vel hlúð að börnum, öldruðum og þeim
hópum sem standa höllum fæti, það er
einfaldlega hluti menningar þeirra. Við getum
því lært ýmislegt af þessum þjóðum.
ICN hefur í tilefni alþjóðadagsins f ár sent
aðildarfélögum sínum skýrslu um hvað sé
hægt að gera til að draga úr og koma í veg
fyrir ofbeldi. Skýrslan er birt óþýdd í heild
sinni á heimasíðu félagsins www.hjukrun.is. í
heilbrigðisáætlun til ársins 2010 er vitnað í
Evrópumarkmið þar sem stefnt er að því að
árið 2020 verði búið að draga verulega úr
meiðslum, örorku og dauða sem orsakast af
slysum og ofbeldi á Evrópusvæðinu, en
árlega þarf að veita 80 milljónum einstakl-
inga læknismeðferð vegna slysa á Evrópu-
svæðinu, sem verða á vinnustöðum,
heimilum, í skóla eða í frítíma. Á hverju ári
lenda 340 af 100.000 íbúum í umferðar-
slysum í löndum Evrópusambandsins.
Konur eru að mestu leyti þolendur
ofbeldis en talið er að 1/3 kvenna sæti ein-
hvers konar ofbeldi á lífsleiðinni. Talið er að
markvissar aðgerðir til að fækka slysum og
koma í veg fyrir ofbeldi og það heilsutjón,
sem af því verður um heim allan, sé
hagkvæmasta og fljótvirkasta fjárfesting
sem nokkurt þjóðfélag getur lagt í.
í þessu tölublaði er að finna grein um
rannsóknir í hjúkrun eftir Hildigunni
Svavarsdóttur og seinni hluta greinar eftir
Erlu Dóris Halldórsdótur um hvaða þátt
konur áttu í stofnun Landspítalans. Að auki
er í blaðinu umfjöllun fimm hjúkrunar-
fræðinga um upplýsingatækni og hjúkrun
en samnefnd ráðstefna, sem haldin var á
liðnu ári, vakti mikla athygli. Ýmislegt fleira
er að finna, svo sem framhald könnunar
um vinnuálag hjúkrunarfræðinga, réttur
starfsmanna vegna veikinda og slysa og
ýmislegt annað efni sem lesendur hafa
vonandi gagn og gaman af.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001
7