Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Qupperneq 20
lega því danska og norska. En þessi ráðstöfun, að senda
hjúkrunarnema til lokanáms til Danmerkur eða Noregs,
væri kostnaðarsöm fyrir þjóðina. Og svo hefði þessi
ráðstöfun valdið íslenskum hjúkrunarnemum erfiðleikum. í
greininni líkir Sigríður unga íslenska hjúkrunarnemanum,
sem með brennandi áhuga hefur ákveðið að gera sjúkra-
hjúkrun að lífsstarfi slnu, við munaðarlaust barn þegar hún
þarf að yfirgefa landið til að Ijúka hjúkrunarnáminu. Sigríður
segir:
Dettur mér þá oft í hug foreldralaust barn, sem nýtur
uppeldis síns á fleiri mismunandi heimilum, þar til
það er talið fleygt og sjálfbjarga. Margan góðan hlut
má gera úr brotasilfri og víst er um það, að margur
nýtur maður hefir farið varhluta af heildarkenndinni I
uppeldi sínu; en jafnframt er það engum vafa bund-
ið, að fleiri munu þeir vera, er á slíkri leið glata ein-
hverju, og þá oft því bezta og göfugasta í fari sínu.
Má því telja aðstöðu þess barns, er í uppvextinum
nýtur samfelldra góðrar áhrifa, ólíkt betri.
(Sigríður Eiríksdóttir, 1927b).
Eina ósk stjórnarkvenna í Félagi íslenskra hjúkrunar-
kvenna og eflaust margra annarra hjúkrunarkvenna á
íslandi var að hjúkrunarnám íslenskra framtíðarhjúkrunar-
nema færi undir góðir handleiðslu og stjórn fram á Land-
spítalanum. Þá er næst að kanna hvort hjúkrunarkonum
hér á landi hafi orðið að ósk sinni.
Kærkomin heimsókn
Mánuður er til kosninga til Alþingis. Mánudagurinn 13. júní
er runninn upp. Prúðbúnar einkennisklæddar hjúkrunar-
konur standa við Reykjavíkurhöfn. Strandferðaskipið ísland
kemur siglandi inn á höfnina (ísland er væntanlegt hingað,
1927). Von er á gestum. Hjúkrunarkonurnar, Sigríður
Eiríksdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarkvenna,
Sólborg Bogadóttir, varaformaður félagsins, og Kristjana
Guðmundsdóttir, ritari félagsins, ganga að íslandinu og
taka hlýlega á móti Charlotte Munck, formanni Samvinnu
hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum, Agnes Bugge, for-
stöðukonu Sindsygehospitalet í Nykobing á Sjálandi í
Danmörku, Hedvig Post, yfirhjúkrunarkonu Welander-
hjemmet í Kaupmannahöfn, Helmi Dahlström, yfir-
hjúkrunarkonu Viborg Lánssjukhus í Finnlandi, Sonja
Koroneff, yfirhjúkrunarkonu í Helsingfors í Finnlandi, Lyyli
Swan, forstöðukonu Lappvikens Centralanstalt í Helsing-
fors í Finnlandi, Bergljot Larsson, formann Norsk Syke-
pleierskeforbund í Ósló, Bertha Wellin, formann Svensk
Sjuksköterskeförening av 1910 í Stokkhólmi í Svíþjóð,
Greta Mueller, forstöðukonu Frederika Bremer-Forbundet
sjuksköterskebyraa í Stokkhólmi, og Elisabet Lind, verk-
smiðjuhjúkrunarkonu í Stokkhólmi (Erla Dóris Halldórs-
dóttir, 2000a). Norsku hjúkrunarkonurnar, þær Karen von
20
Bertha Wellin, formaður Svensk Sjuksköterskeförening av
1910 (sænska hjúkrunarkvennafélagsins) á þilfari strand-
ferðaskipsins ísland á leið á hjúkrunarmót Samvinnu
hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum sem haldið var i Reykjavik
dagana 13. - 22. júni árið 1927.
Myndin er i eigu Félags islenskra hjúkrunarfræðinga.
Tangen Brynildsen, forstöðukonu við Flaukeland Sykehus í
Björgvin í Noregi, og Bertha Sönberg, forstöðukonu við Dr.
Lindboes Klinik í Ósló, vantar í hópinn en þeirra er von
með norska strandferðaskipinu Lyra þriðjudaginn 14. júní
(Bertha Sönberg, 1927).
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarkvenna hafði undirbúið
komu hjúkrunarkvennanna hingað til landsins með sér-
stakri dagskrá. Var meðal annars leitað til Alþingis og
fékkst styrkur fyrir heimsókninni. Þá hafði stjórn félagsins
farið þess á leit við Verslunarráð að fá lánaðan Kaupþings-
salinn í Eimskipafélagshúsinu til fundarhalds fyrir fulltrúa-
mót Samvinnu hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum og
fékkst leyfi fyrir því (Erla Dóris Halldórsdóttir, 2000a).
Eftir hlýlegar móttökur við Reykjavíkurhöfn var hjúkr-
unarkonunum fylgt á heimili í borginni. Ýmsir aðilar höfðu
boðist til að veita hjúkrunarkonunum gistingu á meðan á
dvöl þeirra stæði. Til dæmis hafði hinn norskættaði
stöðvarstjóri símans, Bjarne Forberg, og móðir hans, frú
Jenny A. Foberg, boðist til að veita einni hjúkrunarkonu
gistingu á heimili þeirra að Laufásvegi 8 í Reykjavík, á
meðan á dvöl hennar stæði hér á landi vegna mótsins
(Bertha Sönberg, 1927, Manntal fyrir Fteykjavík, 1927).
Sama dag og hinar erlendu hjúkrunarkonur komu til
íslands fóru þær að skoða Þjóðminjasafn íslands. Síðan
var haldið í skoðunarferð í Hjúkrunarfélagið Líkn á Báru-
götu 2 í Reykjavík. Danska hjúkrunarkonan, Christophine
Mikkeline Bjarnhéðinsson, formaður stöðvarinnar, tók á
móti hópnum og sýndi þeim stöðina. Líkn skipulagði
heimahjúkrun í borginni handa efnalitlu fólki sem ekki hafði
ráð á að leita sér sjúkrahússvistar (Erla Dóris Halldórs-
dóttir, 2000a).
Þriðjudaginn 14. júní fóru hjúkrunarkonurnar til Hafnar-
fjarðar og í heimsókn á spítala St. Jósefssystra þar I bæn-
um. St. Jósefsspítalinn í Hafnarfirði var nýr spítali en hann
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 77. árg. 2001