Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Qupperneq 7
Ritstjóraspjall ........
Gegn fordómum
Sjúkdómar virðast vera misfínir ef svo
má að orði komast. Ekki kann ég þó að
raða þeim í virðingarstiga eftir heitum en
hitt er næsta víst að ekki þykir mjög fínt
að þjást af geðsjúkdómum. Það gildir þó
um þá sem aðra sjúkdóma að líklega
velur sér enginn að þjást af þeim en
ýmiss konar geðröskun er meðal
algengustu sjúkdóma, einkum meðal
ungs fólks og aldraðra.
Svo algengir eru þeir að um fjórð-
ungur þeirra sem fá fullan örorkulífeyri
fá hann vegna geðröskunar. Samkvæmt
upplýsingum heilbrigðisáætlunar til árs-
ins 2010, sem gefin var út af heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu, gera fram-
tíðarspár ráð fyrir að mesta aukingin
verði í geð- og taugasjúkdómum þannig
að fram til ársins 2020 muni þessir
sjúkdómar valda 15% af sjúkdómabyrð-
inni. 22% þeirra sem eru eldri en 5 ára
þjást af geðröskun á Islandi og því má
gera ráð fyrir að 50 þúsund íslendingar
5 ára og eldri þjáist af einhvers konar
geðröskun á hverjum tíma.
Miklir fordómar hafa löngum fylgt
þessum sjúkdómum en fordómarnir
byggjast auðvitað fyrst og fremst á
þekkingarleysi og ótta við hið óþekkta.
Viðtal við Ingibjörgu Guðmundsdóttur
hjúkrunarfræðing, sem þjáðist á tímabili
af þunglyndi en fann leið til bata sem
hún sagði frá hér í tímaritinu í 2. tbl.
2001, vakti mikla athygli, m.a. annarra
fjölmiðla. Og fyrir skömmu stóð Geð-
hjálp að fjársöfnun og kynningarátaki á
þessum málaflokki með mjög góðum
árangri og hafa eflaust orðið töluverðar
viðhorfsbreytingar í samfélaginu í
kjölfarið, einkum þó vegna þess fólks
sem hefur stigið fram og rætt um sín
veikindi og bataleiðir af hreinskilni.
I þessu tölublaði er sjónum m.a. beint
að geðhjúkrun og hvemig unnt sé að
stuðla að betri geðheilsu með forvörnum
og góðri aðhlynningu. Flestum ber saman
um að með öflugu forvamastarfi sé hægt
að greina vandamál fyrr og koma í veg
fyrir langvinn veikindi. Bryndís
Kristjánsdóttir ræðir við hjúkrunarfræð-
ingana Díönu Liz Franksdóttur, Svövu
Þorkelsdóttur, Guðbjörgu Sveinsdóttur og
Bergþóm Reynisdóttur. Sæunn Kjartans-
dóttir skrifar umsögn um bók Þórunnar
Stefánssdóttur Konan í köflótta stólnum
og um sálgreiningu, forvamapistill fjallar
um forvamir á sviði geðheilbrigðis bama.
Eydís Sveinbjamardóttir, Páll Biering og
Salbjörg Bjarnadóttir Qalla um markmið
heilbrigðisáætlunar í geðheilbrigðis-
málum og Björg Guðmundsdóttir segir
frá handleiðslu geðhjúkrunarfræðinga. Þá
er einnig að finna á innsíðum tímaritsins
grein eftir Þóru Jenný Gunnarsdóttur um
hvort sérhæfð meðferð eigi erindi í
hjúkrun, grein um rýni eftir Christopher
Johns, viðtal við Mariuh Snyder og sagt
frá ráðstefnunni Hjúkrun 2002 sem
haldin var á Akureyri.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002
71