Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Qupperneq 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Qupperneq 25
Nemaárin í Hjúkrunarkvennaskóla íslands Það er talsvert vatn runnið til sjávar síðan ég hóf nám í Hjúkr- unarskóla Islands. Við vorum nokkuð stór hópur sem hittumst á Landspítalalóðinni haustið 1956. Þorbjörg Jónsdóttir skóla- stjóri heilsaði okkur glaðlega og leiddi hópinn yfir hlaðið að glænýrri byggingu sem var Hjúkrunarskóli íslands og varð heimili okkar næstu þrjú árin. Glæsilegt og fallegt heimili, þar voru kennslustofumar líka fyrir bæði bóklegt og verklegt nám. Við fengum þama hver okkar herbergi, búið smekklegum og þægilegum húsgögnum. Seinna bættust tveir ungir karl- menn í hópinn, þeir fyrstu til að hefja hjúkrunarnám á íslandi, en þeir bjuggu úti í bæ. Námsárin voru á margan hátt góður tími, við kynntumst mjög vel við að búa i heimavist, tengdumst sterkum vinabönd- um. Það var ómetanlegt að geta hist að lokinni vakt og spjall- að saman í býtibúrinu sem var á hverjum gangi, þar voru alltaf til kringlur, mjólk og kaffi. Við gengum allar í gegnum mikla lífsreynslu við störf okkar á sjúkrahúsinu þar sem við kynnt- umst heimi þjáninga og dauða, sumar í fyrsta sinn, en líka lækningu og bata, sem betur fer. Maður hafði mikla trú á læknavísindunum og von til þess að sigrast mætti á sjúkdóm- um í ríkara mæli í framtíðinni. Það var gott að geta rætt um hlutina, geta unnið sig út úr erfiðum tilfinningum og geta hlegið saman. Þegar litið er til baka, finnst mér við nemamir hafa gegnt æði margþættu hlutverki. Við vorum alltaf mjög nálægt sjúkl- ingunum. Þeir tjáðu sig stundum við okkur um hluti sem þeir höfðu ekki getað rætt um við aðra. Oft var það spurningin um trúna, erfiðar spurningar um tilgang lífsins. Við vomm þannig í eins konar hlutverki sálusorgara. Það var mikilvægt að bregðast ekki þá, að láta ekki eigin vanmátt og óvissu hafa áhrif, heldur fýlgja rödd hjartans af bestu vitund. Við vomm einnig eins konar lifandi „monitorar“, sátum yfir sjúklingum sem þurfti að fylgjast náið með, sem vom að vakna eftir svæfingu, nýkomnir úr aðgerð, eða voru dauðvona. Það kom fyrir að fólk dæi á sjúkrahúsinu án þess að ættingi væri viðstaddur. Einhvem veginn minnist ég þess ekki að það hafi verið talað svo mikið um að sinna þyrfti andlegum þörfum sjúkl- ingsins, en ég held að öllum hafi þótt það eðlilegt. Trúarlegar þarfir voru ekki mikið ræddar, en nú er það komið í lög um réttindi sjúklinga að þeim beri að sinna. Það var samþykkt árið 1997 og minnir okkur enn frekar á að við erum að sinna manneskju en ekki sjúkdómi eða líkamshluta. Sjúkrahúsin eru orðin gríðarlega tæknivædd en meðal heilbrigðisstétta og ekki síst hjúkxunarfræðinga er hjartað á réttum stað og þeir eru vakandi fyrir þörfinni á heildrænni umönnun, enda hjúkrun kynnt sem „hugur, hjarta og hönd“. Það er ef til vill tímanna tákn að nýverið hóf kristilegt félag heilbrigðisstétta námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk í samvinnu við sjúkrahúsprestana. Þar fer fram fræðsla um hvernig hægt er að nálgast og sinna trúarþörf sjúklings. Er það ekki svo að eftir því sem tæknivæðingin verður meiri verður þörfin fyrir heildræna umönnun brýnni? Rannveig Sigurbjörnsdóttir einiberg@love.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki með þjónustu allan sólarhringinn. Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002 89
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.