Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Side 48
háskólann í Árósum og á því tímabili lagði hún einnig leið
sína til Islands til að læra íslensku. Einn prófessoranna, sem
kenndi henni, frétti af því og bað hana um að vera túlkur á
heimili íyrir unglinga sem áttu við ýmis vandamál að stríða en
þar var þá ung íslensk stúlka. „Ég var þá 29 ára en hún var 15
ára. Þetta varð til þess að ég hóf afskipti af geðverndarmálum
ungmenna og við byggðum upp deild 1969-’74 við Monte-
bello á Helsingjaeyri,“ en þau málefni hafa verið henni afar
hugleikin alla tíð síðan.
Árið áður höfðu leiðir hennar og Pálínu Sigurjónsdóttur
hjúkrunarfræðings legið saman í námi í kennslu og stjórnun við
hjúkrunarháskólann og hafa þær haldið sambandi alla tíð síðan.
Lísa er þekkt íyrir baráttu sinni fyrir auknum réttindum geð-
sjúkra. Hún hefúr einnig verið virk í Amnesty International og
ollu yfirlýsingar hennar miklu fjaðrafoki í dönskum fjölmiðlum
á níunda áratugnum þegar hún lét hafa eftir sér að það væri brot
á mannréttindum þegar sjúklingar væru settir i spennitreyjur,
sem hún sagði reyndar vera úrræði notað þar sem of fátt
starfsfólk væri á sjúkrahúsinu. Þá var hún hjúkrunarforstjóri á
geðsjúkrahúsinu Nordvang í Glostrup en þar var hún í 11 ár.
Viðhorf hennar komu fyrst fram í danska hjúkrunartíma-
ritinu „Sygeplejersken“ en þar var hún í ritnefhd og um tíma
formaður ritnefndar. Hún hefur ritað fjölda greina og bækur
um umhyggju fyrir sjúklingum, og ábyrgð hjúkrunarfólks sem
sinnir þeim sem eiga við geðræna örðugleika að stríða og gaf
m.a. sjálf út bókina „Ansvar og ansvarlighed - om sygeplej-
erskens pligter og rettigheder". Þá bók ætlar hún að gefa út
aftur í endurbættri útgáfu, segist þó varla hafa tíma til þess,
hún sé búin að gera það sem hún hefúr getað til að uppfylla
metnað sinn, nú vilji hún bara hafa það skemmtilegt.
Hún segir hafa orðið heilmiklar breytingar á hjúkrunar-
starfinu þann tíma sem hún hafi unnið við það. „Hjúkrunar-
starfið á í vök að verjast í okkar samfélagi þar sem umhyggja
fyrir öðru fólki hefur minnkað í tæknisamfélagi nútímans.“
Hún segist afskaplega hrifin af ferðalögum og fer stundum
með litlum fyrirvara eins og þegar þær vinkonurnar fóru til
New York. „Við sátum og vorum að ræða um hvað það væri
gaman að skreppa til New York þegar við ákváðum að drífa
okkur þangað strax daginn eftir og stoppa í þrjá daga á
Islandi,“ segir hún og rifjar upp nokkur atriði úr mjög
skemmtilegri ferð. „Það er betra að ferðast meðan maður
hefur heilsu til, því margir geta ekki ferðast þegar þeir eru
orðnir of gamlir,“ bætir hún við. Hún hefúr farið víða bæði í
tengslum við starfið og í fríum, „hef verið í Afríku, svo sem í
Kenýa og Egyptalandi, í Bandaríkjunum, New York, New
Orleans, Kaliforníu og Pennsylvaníu og Kanada.“ Nú í maí
ætlar hún til Gotlands og Eylands í Svíþjóð, til Belize í Mið-
Ameríku í júní og í september til Barcelona og Bilbao á Spáni,
m.a. til að skoða byggingarlist. Hún fer einnig oft að
heimsækja vini sína í London og til hennar í Kaupmannahöfn
koma margir gestir, segir hún á leið út á næstu strætisvagna-
stöð þar sem leiðir skilja.
rvé-t-tiY' frÁ fAAÁtilÁuw.
Frá fagdeild heilsugæslu-
hjúkrunarfræðinga
Síðastliðið ár gekk stórslysalaust hjá fagdeild heilsugæslu-
hjúkrunarfræðinga. Félagatalan hélst nokkuð í jafnvægi eftir
mikla uppsveiflu árið áður. Stjórnin hafði uppi ýmsar hug-
myndir að verkefnum en það stærsta sem ýtt var úr vör, var
merki fagdeildarinnar en það var opinberlega kynnt á ráð-
stefnunni „Framtíóarsýn innan heilsugœslunnar“ 13.-14. sept.
sl. Sú ráðstefna var mjög tímabær fyrir heilsugæsluhjúkrunar-
fræðinga og þar kom bersýnilega í ljós sú mikla gróska í
framþróun og rannsóknum sem félagar unnu að en höfðu ekki
komið á framfæri.
Fleiri ráðstefnur voru á árinu og má þar helstar nefna
alþjóðlega ráðstefnu skólahjúkrunarfræðinga sem haldin var í
Danmörku í júlí. Hana sóttu sex hjúkrunarfræðingar héðan og
allir komu þeir aftur reynslunni ríkari. Þriðja samnorræna ráð-
stefnan á vegum NoSB (norrænt samstarf hjúkrunarfræðinga
sem vinna með börn) var haldin í Bergen í september. Fag-
deildin styrkti einn stjórnarmann, Önnu Eyjólfsdóttur, á ráð-
stefnuna en hún er fulltrúi okkar fagdeildar í þessu samstarfi.
Aðalfundur fagdeildarinnar var síðan haldinn 21. nóv. sl.
og var sú nýbreytni tekin upp að halda fundinn kl. 17 og bjóða
upp á súpu og léttar veitingar. Þar var Margrét Gunnarsdótir
bókasafnsfræðingur með fyrirlesturinn „Leit í leik og starfi“
sem fjallaði um notkun internetsins og vakti það mikinn áhuga
viðstaddra. Einnig kynnti Sonja S. Guðjónsdóttir hjúkrunar-
fræðingur þá þjónustu sem Lyfja býður. Ekki er vitað hvort
súpan eða fýrirlestrarnir heilluðu meira, en aðsóknin að
fúndinum var meiri en elstu menn muna.
Fjórða ráðstefna NoSB verður haldin á íslandi haustið
2003. Að henni standa fagdeild bamahjúkrunarfræðinga og
fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga. Fagdeildin vill hvetja
alla sem vinna með bömum og fyrir börn, t.d. að forvörnum,
meðferð og endurhæfingu, að huga að þessari ráðstefnu. Þama
gefst tilvalið tækifæri til að kynna rannsóknir, nýjungar í starfi
eða hvað annað sem kann að vekja áhuga ráðstefnugesta.
Fyrir hönd fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga,
Sigrún K. Barkardóttir, sibark@ismennt.is
112
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002