Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Qupperneq 53
Við eru fagfólk og verðum að mæta persónunni allri - sál
og líkama. Þú sem hjúkrunarfræðingur berð mikla ábyrgð því
framkoma þín getur skipt sköpum um líðan skjólstæðingsins.
Valdið er mikið!
Það að gera betur í dag en í gær hlýtur að vera markmiðið
í allri hjúkrun. Það er e.t.v. erfitt þegar fólk er þreytt og finnst
jafnvel auðveldara að yppta öxlum og segja: „Ég vinn bara
hér.“ Stuðningur við hjúkrunarfræðinga þarf að vera að ijár-
magn sé sett í að manna vel deildir þar sem hjúkrunarþyngd er
mikil. Einnig að hlustað sé á hvernig hjúkrunarffæðingum
liður, þá fyrst kemur kraftur í stað þreytu. Vinnugleði smitar út
frá sér, er hvetjandi og auðveldar allt erfiði.
Ég vil að lokum hvetja ykkur til dáða. Munið að sjúklingar
geta ekki leyft sér að gefast upp, hvað þá þið sem heilsuna
hafið og haldið framtíð hjúkrunar i hendi ykkar! Um leið og
ég óska ykkur alls hins besta í starfi vil ég senda öllum 20 ára
hjúkrunarfræðingum kveðjur svo og öllum öðrum sem ég hef
haft þann heiður og ánægju af að starfa með.
Elísabet Haraldsdóttir
elhar@binet.is
oa un ví-tntfnÁAr
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinnum á ári.
Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar skoðanir og
viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunarífæðinga leggur
metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns,
fróðleiks og ánægju.
Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umfjöllunar
um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar
greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast í tvennt,
annars vegar er um að ræða fræðigreinar og hins vegar
fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og
greinar sem á ýtarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun,
hvort heldur sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun,
hjúkrunarkennsla, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar-
og heilbrigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra
rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri nálgun viðfangsefna
og vönduð vinnubrögð. Möguleiki er að óska eftir að fræðigreinar
verði ritrýndar.
Við umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að verði
ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók
sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og
gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í
handbókinni er ýtarlegar leiðbeiningar um hvemig skrifa eigi handrit
að fræðilegum tímaritsgreinum. I handbókinni er einnig að finna
upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur
verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum.
Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til
að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja ffá settum reglum.
í örfáum atriðum víkur ritneftid frá leiðbeiningum Handbókar
sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar
tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af viðeigandi tímariti. Til að
auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinum þijú lykilorð. I
handbókinni er megináhersla á megindlegar rannsóknir, einkum
tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur sig hins vegar ekki við
megindlegar rannsóknir og er fengur að greinum sem hafa
margvíslegar aðferðafræðilegar nálganir.
Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg viðfangsefni
hjúkrunar og byggjast að einhveiju leyti á fræðilegum heimildum
ásamt athugunum og/eða reynslu höfunda. Þar skiptir miklu
frumleiki í umfjöllun og efnistökum, menningarlegur margbreytileiki
i hjúkrun og þróun hjúkrunar. I blaðinu er einnig að finna viðtöl við
fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til
hjúkrunarfræðinga.
í félagslega hluta timaritsins eða fréttahlutanum er greint frá
kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að
finna fréttir frá svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá því
helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum félagsins.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í
samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur
metnað í að tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit.
Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur.
Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en
aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni
þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina
Tímaritsgreinar skulu sendar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Einn höfundanna þarf að vera
ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf að koma
fram í bréfi sem sent er með handritinu.
Frágangur handrits
Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók
sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem
gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í
handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi
handrit að fræðilegum tímaritsgreinum.
Á forsíðu handritsins þarf að koma fram heiti tímaritsgreinar-
innar, nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaður/vinnustaðir
höfunda(r); heimilisfang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur
fyrir samskiptum við tímaritið. Utdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á
að vera 100-150 orð.
Lengd almennra fræðslugreina skal vera 2.500 orð og ritrýndra
greina 3.500 orð. Handritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum
o.s.frv. skal vera með tvöfoldu linubili. Öll handrit skulu send inn í
þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfunda(r). Handrit skulu
ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er eftir því að þau séu ritrýnd.
Útgáfuferli
Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann höfund sem
er ábyrgur fýrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega
að greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu greinar lesa
fulltrúar í ritnefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til
umsagnar. Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók
sálfræðiritsins við mat á tímaritsgreinum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002
117