Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Page 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Page 58
ráðstefnan sem félagið er í forsvari fyrir, auk þess sem félagið sá um að halda rannsóknarráðstefnu hjúkrunarrannsakenda í Evrópu (WENR) vorið 2000. Að þessu sinni var ráðstefnan haldin í samvinnu félagsins og fleiri aðila. Hjúkrunarfræði- deild Háskóla íslands, heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert með sér sam- komulag um að standa saman að árlegri rannsóknaráðstefnu. Þetta samkomulag var gert að frumkvæði félagsins þar sem eðlilegt er talið að þekkingarsetur hjúkrunarfræðinga séu formlegir aðilar að ráðstefnunni. Einnig er Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri samstarfsaðili ráðstefnunnar hér norðan heiða. Þetta var því á margan hátt tímamótaráðstefna. Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, setti ráðstefnuna og Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, flutti ávarp. Að því loknu söng Inga Eydal, formaður Norðausturlandsdeildar, nokkur lög við undirleik Daníels Þorsteinssonar. Gestafyrirlesarar voru tveir: Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, verkefnastjóri hjúkr- unar á sjúkrahúsi og heilsugæslustöð Akraness, flutti fyrir- lestur sem hún nefndi Samræmd hjúkrunarsb'áning - lykill að bœttri þjónustu, kennslu og rannsóknum og sagði m.a. frá starfi sínu við að koma á samræmdri hjúkrunarskráningu á sjúkrahúsinu á Akranesi. Frá Minnesota kom dr. Mariah Snyder, prófessor við hjúkrunardeild Minnesotaháskóla þar sem hún hefur starfað síðasta aldarfjórðunginn. Þar hefur hún verið í fararbroddi varðandi þróun doktorsnáms í hjúkrunar- fræði, stofnun meistaranáms í öldrunarhjúkrun og myndun þverfaglegs meistaranáms í sérhæfðum meðferðarformum (complementary therapies). Dr. Mariah Snyder hélt fyrirlestur um sérhæfða hjúkrunarmeðferð í fortíð, nútíð og framtíð auk þess sem hún stýrði vinnusmiðju með hjúkrunarffæðingum þar sem viðfangsefnið var hvemig hægt sé að tryggja gæði og öryggi sérhæfðrar hjúkrunarmeðferðar. Á ráðstefnunni voru auk þessara tveggja erinda kynntar niðurstöður 20 rannsókna sem hjúkrunarfræðingar hafa unnið undanfarin ár. Ráðstefnustjóri var Þóra Ákadóttir. Aðalbjörg J. Finnbogadóttir. 122 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 78. árg. 2002

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.